Fjárlög 1989
Laugardaginn 17. desember 1988

     Halldór Blöndal:
    Hæstv. forseti. ( ÓÞÞ: Þingmaðurinn verður að víkja úr stólnum því atkvæðagreiðsla er hafin.) ( Forseti: Má ég biðja hv. 2. þm. Norðurl. e. að víkja úr stólnum meðan fram fer atkvæðagreiðsla, síðan mun hann fá orðið um þingsköp.) Hæstv. forseti er búinn að gefa mér orðið um þingsköp og ef hæstv. forseti ætlar að neita mér að tala bið ég um orðið um þingsköp um þann úrskurð.