Fjárlög 1989
Laugardaginn 17. desember 1988

     Geir H. Haarde:
    Virðulegi forseti. Það er mikilvægt að rugla ekki þessum lið saman við sérstakan styrk til dagblaðanna sem fram kemur í 4. gr. frv. Þar er gert ráð fyrir hvorki meira né minna en 70% hækkun á beinum stuðningi við flokkssneplana í landinu upp í 50 millj. kr. Í hallærinu, í fjárþrengingum ríkissjóðs er þetta tillaga fjmrh. og hæstv. ríkisstjórnar. ( ÓÞÞ: Er það til atkvæðagreiðslu nú?) Þessi blöð, 250, sem hér er verið að fjalla um, renna eflaust flest hver til spítala og annarra stofnana á vegum ríkisins. Slíkum blöðum á hins vegar að gera ráð fyrir á rekstrarliðum þessara stofnana en ekki með opinni heimild eins og hér er um að ræða. Það á að áætla fyrir því sem rekstrarkostnaði hjá þessum aðilum. Þess vegna er þessi grein óþörf og úrelt. Henni á að breyta og ég segi nei.