Þinghald milli jóla og nýárs o.fl.
Laugardaginn 17. desember 1988

     Halldór Blöndal:
    Hæstv. forseti. Ég hygg að það sé rétt hjá hæstv. sjútvrh. að það er skemmtilegra að tala um vinnubrögð ríkisstjórnar og Alþingis að viðstöddum hæstv. forsrh. Ég hygg að það sé líka einsdæmi að hæstv. forsrh. sé úti í bæ meðan verið er að afgreiða fjárlög. Ég man ekki eftir því að forsrh. hafi látið sig áður vanta í þingsalinn, hafi hann á annað borð verið á landinu, meðan fjárlög eru afgreidd. Það sýnir betur en margt annað þann áhuga sem hann hefur á því starfi sem hér er unnið.
    Vegna þeirra ummæla að það eigi að spyrja hæstv. forsrh. vil ég rifja upp að í fyrirspurnatíma á fimmtudag kaus hæstv. forsrh. að víkja úr salnum í þann mund sem kom að fsp. til hans sjálfs þannig að þeim var ekki svarað. Ég veit ekki þess vegna hvort hæstv. sjútvrh. getur með nokkurri sanngirni ætlast til þess að stjórnarandstaðan doki við og bíði eftir forsrh. Stjórnarandstöðunni er ekki kunnugt um hans ferðir.
    Eitt með öðru sem lýsir þeim vilja sem ríkisstjórnin hefur til að hafa uppi gott samstarf við stjórnarandstöðuna lýsir sér í því að í umræðum um bráðabirgðalög í Ed. hrósaði hæstv. forsrh. sér af því að hafa kynnt eina brtt. eða hugmynd að henni fyrir Borgfl. og Samtökum um kvennalista sem trúnaðarmál, en á hinn bóginn mátti ekki láta nefndarmenn Sjálfstfl. í fjh.- og viðskn. vita um að þessi breyting væri fyrirhuguð. Ég skal ekki segja hversu lengi ég hef verið í fjh.- og viðskn., hversu mörg ár, en ég man ekki eftir því áður og veit ekki til þess áður að ríkisstjórn hafi með þessum hætti ekki sinnt því að kynna stjórnarandstöðunni breytingar á þeim frumvörpum sem þar eru til meðferðar, sem alltaf hefur verið talið mjög nauðsynlegt vegna þess hversu umfangsmikið starf þessara nefnda er, og yfirleitt hafa ríkisstjórnir viljað eiga gott samstarf við slíkar nefndir.
    Hitt er kannski enn þá eftirtektarverðara að hæstv. forsrh. hagar sér með þessum hætti vegna þess að hann hefur ekki meiri hluta í Nd. og er að reyna að kljúfa stjórnarandstöðuna, er að reyna að koma upp tortryggni í röðum stjórnarandstæðinga, spilla fyrir því að þeir geti staðið saman. Þetta er mjög undarleg framkoma, ámælisverð framkoma og ég get fullvissað hæstv. sjútvrh. um að hvað Sjálfstfl. varðar er hún ekki til þess fallin að vekja trú á því að ríkisstjórnin vilji samstarf í þinginu.
    Við umræðuna í Ed. varpaði ég fram þeirri fyrirspurn til þeirra ráðherra sem þar voru hvort þeir væru til viðræðu um samkomulag um einstakar greinar bráðabirgðalaganna, en fékk ekki einu sinni ónot við fyrirspurninni hvað þá að reynt væri að svara henni með nokkrum hætti. Ekki er um það að tala að vel sé við henni brugðist. Ég held að hæstv. fjmrh. væri nær, þegar hann er að svara hér aðfinningum stjórnarandstöðu um samstöðu og vinnubrögð í þinginu, að tala þannig að stjórnarandstaðan hafi löngun til að greiða fyrir málum og semja um mál, en ekki á hinn bóginn þannig að við þurfum að fara í kappræður um hvað sé þinglegt og hvað ekki. Ég get

fullvissað hæstv. ráðherra um það að ég man eftir því að Alþb. hefur gert athugasemdir við fjárlög sem vel geta átt heima nú og væri kannski rétt að rifja upp ef menn vilja. Hitt held ég að skipti meira máli, hæstv. forseti, áður en lengra er haldið í fundahöldum að stjórnarandstaðan fái að vita á undan Dagblaðinu Vísi hvernig til stendur um vinnubrögð. Það er ekki aðeins kurteisi við þingmenn, það er líka kurteisi við starfsfólk Alþingis að ríkisstjórn og forsetar byrji á því að kynna fyrirætlanir sínar í þinginu. Vinnudagar eru langir nú á jólaföstu, það eru margar annir sem bíða heima fyrir hjá fjölskyldum og þess vegna ekki nema kurteisi að láta þá sem vinna hér innan dyra fylgjast með á undan dagblöðum.