Málefni aldraðra
Laugardaginn 17. desember 1988

     Frsm. heilbr.- og trn. (Valgerður Sverrisdóttir):
    Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 266 frá hv. heilbr.- og trn. Nefndin hefur fjallað um frv. á fundi og mælir með að það verði samþykkt óbreytt.
    Undir nál. rita Valgerður Sverrisdóttir, Salome Þorkelsdóttir, Guðmundur H. Garðarsson, Stefán Guðmundsson og Guðrún Agnarsdóttir.
    Fjarstaddir afgreiðslu málsins voru hv. þm. Karl Steinar Guðnason og Margrét Frímannsdóttir.