Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frv. sem felur í sér að framlengja það sérstaka gjald sem ákveðið var af erlendum lánum, leigusamningum og fleiri slíkum skilmálum. Sú breyting er hins vegar gerð frá gildandi lögum í þessu frv. að undanþáguheimildir núgildandi laga eru rýmkaðar nokkuð. Einkum er þar um að ræða heimild til að undanskilja þegar gjaldið er á lagt lán sem sérstaklega eru tekin vegna stuðnings við mikilvægar útflutningsgreinar.
Enn fremur er í frv. kveðið á um að ekki einungis lánasamningar vegna reksturs flugvéla og kaupskipa verði undanþegnir gjaldinu heldur eigi það einnig við um kaupsamninga á millilandafarkostum, flugvélum og kaupskipum.
Þetta gjald, sem hér er mælt fyrir, hefur þjónað tvíþættum tilgangi. Því hefur annars vegar verið ætlað að vera til hömlunar hvað erlendar lántökur snertir og stuðla þannig að því að þær yrðu í framtíðinni minni en þær hafa verið á undanförnum árum vegna þess að þær yrðu dýrari. Hins vegar hefur gjaldið verið tekjuöflunartæki eins og önnur slík gjöld fyrir ríkissjóð.
Þótt það sé ekki löng reynsla af þessu gjaldi í okkar landi held ég að ljóst sé að það hefur virkað töluvert hamlandi hvað erlendar lántökur snertir. Auðvitað má alltaf um það deila hvað það eigi að vera víðtækt og hver framkvæmdin eigi nákvæmlega að vera. En ef litið er á málið í heild hefur það þjónað þessum tilgangi.
Enn fremur hefur verið ákveðið af hæstv. ríkisstjórn að framlengja þetta gjald sem lið í þeirri viðleitni að skapa jafnvægi í ríkisfjármálum. Ég held þess vegna að þau tvíþættu markmið sem frv. er ætlað að þjóna séu nauðsynleg þegar horft er á þá stöðu sem er í efnahagslífi þjóðarinnar. Ég held að þær breytingar sem gerðar eru frá gildandi lögum eigi síðan að stuðla að því að framkvæmdin verði eðlilegri og hnökralausari þegar horft er á reynsluna af þessu ári.
Ég mælist svo til þess, virðulegi forseti, að frv. verði vísað til hv. fjh.- og viðskn. að lokinni þessari umræðu.