Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1988
Mánudaginn 19. desember 1988

     Júlíus Sólnes:
    Hæstv. forseti. Þetta mál liggur tiltölulega ljóst fyrir okkur þingmönnum Borgfl. Þetta er arfleifð frá tíð fyrri ríkisstjórnar og er ekki hægt að sjá annað en hér sé enn eitt málið þar sem allir gömlu flokkarnir samanlagt bera fulla ábyrgð á því sem hér er verið að ræða um, þ.e. lántökuskatt á erlendar fjárfestingar. Út af fyrir sig skil ég vel hugsunina hér á bak við. Hún er eflaust fróm og góð. Það er verið að reyna að stemma stigu við þeirri gífurlegu fjárfestingu sem hefur átt sér stað hér undanfarið, reyna að fá fyrirtækin í landinu til að draga úr erlendum lántökum og þar með draga úr fjárfestingunni. Nú er það svo að ég hef alla tíð haldið því fram að það þurfi hér fyrst og fremst að eiga við ríkið sjálft. Þar er rót meinsemdarinnar, hvernig ríkið sjálft hegðar sér í þessum málum. Það leiðir hugann að því hvernig almennt er hægt að líta á hugtakið ,,erlend lántaka``. Ég hef oft áður úr þessum ræðustól fjallað um það fyrirbæri og vakið athygli á því hvað það kemur einkennilega fyrir sjónir að ríkið sjái eitt um allar erlendar lántökur og skammti síðan erlent lánsfé til atvinnuveganna gegnum alls konar sjóði og millifærslustofnanir. Að vísu hefur í seinni tíð verið opnað eilítið fyrir þetta þannig að fyrirtækin geti tekið beint erlend lán. T.d. má vísa í auglýsingu viðskrn. og af því að hæstv. viðskrh. er þarna á næstu grösum væri gaman að heyra sjónarmið hans og kannski fá nánari skýringar á þessari margfrægu auglýsingu viðskrn., hvað hún heimilar að miklu leyti frjálsa erlenda lántöku og með hvaða hætti.
    Ég hef stundum velt því fyrir mér hvað mundi gerast ef við settum okkur það markmið að losa ríkið og stjórnvöld yfirleitt alveg út úr þessu dæmi með því að fara að ráðum ýmissa erlendra iðnríkja. Þau haga yfirleitt sínum málum þannig að ríkisvald í viðkomandi landi og opinberir aðilar taka engin erlend lán. Þeim er það gjörsamlega fyrirmunað. Það er alls ekki ætlast til þess. Það er ekki reiknað með slíkum möguleika. Hins vegar er það í þessum löndum yfirleitt opin og algild regla að öll fyrirtæki og einstaklingar geta fengið að taka þau erlendu lán sem þeim sýnist, en þá á eigin ábyrgð. Það er höfuðmálið. Ég velti því oft fyrir mér hvort ástandið í þessu þjóðfélagi væri ekki allt, allt annað ef við hefðum farið inn á þá braut að ætla ríkinu að fjárfesta aðeins að svo miklu leyti sem það aflar sjálft tekna til slíkra fjárfestinga og í besta falli að það geti þá fjármagnað sínar fjárfestingar umfram tekjur með innlendu lánsfé, þ.e. ef ríkið endilega vill eyða umfram tekjur verði slík umframeyðsla algjörlega fjármögnuð með innlendu lánsfé. Ef innlendi markaðurinn getur ekki útvegað þetta lánsfé til ríkisins verður ríkisvaldið að gera nákvæmlega það sama og fjölskylda gerir þegar hún fær ekki meiri víxla og lán í bankanum. Hún neyðist einfaldlega til að draga saman seglin og endurskipuleggja fjárfestingaráætlanir sínar og eyðslu sína. Það væri betur ef ríkið tæki upp þessa háttu í stað þess að þenja út skuldir erlendis með þeim hætti sem við höfum séð undanfarin ár, en mér skilst að

erlendar skuldir íslenska ríkisins og sjóða sem tengjast ríkinu séu nú í kringum 130 milljarðar kr. Það er því ekki nema von að menn óttist mjög gengisfellingu og því um líkt því að það gefur auga leið að við það stóraukast erlendar skuldir ríkisins. Þessar miklu erlendu skuldir, má segja, eru búnar að eyðileggja gengisfellingu sem hagstjórnartæki því það er ekki lengur hægt að bjarga okkur út úr ógöngum í efnahagsmálum eins og var hægt fyrir nokkrum áratugum þegar gengisfelling gat virkað. Hún virkar ekki lengur einmitt vegna þess hvað erlendar skuldir ríkisins eru orðnar gífurlega miklar.
    Lántökuskatturinn, hugmyndin á bak við hann er að reyna að draga úr þenslunni, þessu furðulega hugtaki sem hagfræðingar seinni ára hafa fundið upp. Það er kannski í því sambandi rétt að minna á það, virðulegi forseti, að á árum áður, þegar hafði verið langvarandi atvinnuleysi hér í þjóðfélaginu, fögnuðu menn því þegar fór eitthvað að hreyfast í atvinnulífinu og einhver þensla komst á. Allt í einu var eftirspurn eftir vinnuafli og menn fóru að framkvæma. Það þótti bara gott hérna á árum áður. En það er eins og á þessum síðustu og verstu tímum gangi allt út á að reyna að draga saman seglin og fara sér hægar og reyna helst að draga úr eftirspurn eftir vinnuafli. Það er eins og það læðist að sá grunur að ýmsum þætti betra ef það yrði umtalsvert atvinnuleysi. Það mundi þá fyrst virkilega draga úr þenslunni. Ég hef einhvern veginn alltaf verið þeirrar trúar að í landi þar sem er heilbrigt efnahagslíf og þar sem atvinnulífið er í lagi sé einmitt mikil þensla og það sé bara af hinu góða, það eigi að vera þensla, því þá eru fyrirtækin að vaxa og dafna. En hér er þetta einhvern veginn þannig öfugsnúið að um leið og það er mikil eftirspurn eftir vinnuafli og kaup fer hækkandi á vinnumarkaðnum hrópa allir úlfur, úlfur! eða þensla, þensla! Það verður að draga saman. Lántökuskatturinn er að sjálfsögðu hugsaður af hálfu þeirra sem settu hann á, þ.e. fyrri ríkisstjórnir, til að draga úr þessari margfrægu þenslu.
    Ég leyfi mér að efast um ágæti þeirrar hugsunar sem felst hér á bak við og vildi beina þeim fyrirspurnum til þeirra sem nú fara með völd og reyndar þingmanna allra hvort það væri ekki umhugsunar vert að endurskoða þetta dæmi
allt saman frá grunni. Ég hef reyndar oft, eins og ég sagði áður, vakið athygli á þessu. Þegar t.d. farið yfir lánsfjárlög sést gjörla hvernig lánsfjárstreymið er í gegnum sjóði ríkisvaldsins, en ég held að fyrirtækin og einstaklingarnir yrðu gerð miklu ábyrgari fyrir þeim fjárfestingum sem þau hyggjast leggja út í ef þeim væri gert að taka erlendu lánin beint, með að sjálfsögðu aðstoð sinna viðskiptabanka, og fengju engar ríkisábyrgðir til slíks.
    Það hefur oft komið fram í umræðum sem hafa farið fram í hv. fjh.- og viðskn. Ed., þar sem við höfum átt mjög fróðlegar og góðar umræður um þessi mál við hina ýmsu fulltrúa atvinnulífsins, að þeir eru nokkuð sammála um að ríkisábyrgðin kosti hugsanlega 2% í vaxtamun, þ.e. erlendu lánin verði að einhverju leyti dýrari. Það er hugsanlegt að vaxtakostnaður sé

um 2% hærri svo það er skiljanlegt að ríkisábyrgðin sé eftirsóknarverð, ég neita því ekki. En ég hef einhvern veginn samt á tilfinningunni að ef hægt er að koma því við að taka erlend lán án ríkisábyrgðar og viðkomandi fyrirtæki og einstaklingar taki slík lán algjörlega upp á eigin ábyrgð væri það miklu heilbrigðara þegar til langs tíma er litið. Það er einhvern veginn miklu betri tilhugsun og mér betur að skapi að hugsa dæmið þannig að Jón Jónsson semji um erlent lán með aðstoð banka síns á Íslandi. Hann leggi eignir sínar að veði fyrir því að það sem hann ætlar að fara út í sé svo öruggt að það borgi sig þá að taka erlent lán með þeirri áhættu sem fylgir og hann standi síðan og falli með þessum gerðum sínum. Ef fyrirætlanir hans fara út um þúfur og þetta mistekst ber hann einn fulla ábyrgð á því að hafa tekið þetta erlenda lán og hann verður þá að sæta því sem það hefur í för með sér eins og ég hef einnig oft bent á. Það gerist þá ekkert annað en það að einhver erlendur banki lætur einhverja lögfræðinga hér heima á Íslandi bjóða upp eignir þessa Jóns Jónssonar, en meira gerist í sjálfu sér ekki.
    Þess vegna hef ég í sjálfu sér ósköp lítið um þetta lántökugjald sem slíkt að segja. Þetta er, eins og ég segi, afkvæmi fyrri ríkisstjórna. Hér er að vísu verið að gera nokkrar breytingar. Úr því að þetta lántökugjald er komið á og það er ekkert sem bendir til þess að það hverfi í bráð finnst mér sumar þær breytingar sem hér eru lagðar til út af fyrir sig eðlilegar og sjálfsagðar. T.d. í 1. gr. a-lið er verið að taka það skýrar fram að lán vegna reksturs og kaupa á kaupskipum og flugvélum sem notuð eru í atvinnuskyni skuli undanþegin. Ég get út af fyrir sig tekið undir með hv. 2. þm. Norðurl. e. að það væri ágætt að fá nánari skýringu á þessu stjórnvaldi í c-lið 1. gr. og það er spurt af minni hálfu einnig: Er hér um að ræða lánið vegna Atvinnutryggingarsjóðs eingöngu eða eru einhver önnur lán sem eru hugsuð undir þessum lið?
    Ég held að ég þurfi ekki að hafa þessi orð um frv. fleiri og hef lokið máli mínu, herra forseti.