Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1988
Mánudaginn 19. desember 1988

     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
    Herra forseti. Hv. 2. þm. Norðurl. e. beindi til mín nokkrum spurningum varðandi dagskrármálið sem fjallar um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 10/1988, um ráðstafanir í ríkisfjármálum og lánsfjármálum 1988.
    Ég vil í upphafi leyfa mér að minna á að þetta eru lög sem sett voru til staðfestingar bráðabirgðalögum sem sett voru við upphaf ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar. Þetta lántökugjald var sett á miklu fyrr, en reyndar var það hækkað með þeim lögum sem við erum hér að breyta eins og ég efast ekki um að hv. 2. þm. Norðurl. e. man jafn vel og við hin.
    Ég vil fyrst segja um athugasemdir hv. þm. og fyrirspurnir varðandi tillögugreinina hina fyrstu að ég tek undir með hv. 7. þm. Reykn. að a-liður 1. gr. frv. er eingöngu hugsaður til að skýra nánar að hér er verið að heimila undanþágu vegna kaupa eða reksturs á kaupskipum og flugvélum sem notaðar eru í atvinnuskyni en ekki til annarra þarfa. Sá er tilgangur þessa ákvæðis eins og hann skildi og skýrði glöggt. En hvað varðar b-liðinn í tillgr. þar sem orðin ,,eða lenging á lánstíma`` eru felld niður úr 3. tölul. 3. mgr. þessarar 19. gr. laga nr. 10, þá virðist mér að athugasemdir og spurningar hv. 2. þm. Norðurl. e. kunni að einhverju leyti að hafa byggst á misskilningi því þegar 3. tölul. er lesinn í heild sjá menn glöggt að áhrifin af því að fella niður þessi orð eru að heimilt yrði samkvæmt frv. að taka lengra erlent lán í stað skemmra ef kjör væru jöfn að öðru leyti og án þess að lántökugjald kæmi til ef heimildin yrði veitt. Allar hugleiðingar um að þessi breyting þrengi rétt einhverra fyrirtækja eða atvinnugreina virðast mér fjarri lagi. Þetta er einmitt til þess hugsað að greiða fyrir skuldbreytingu á erlendum lánum þannig að heimilt sé að taka án lántökugjalds lengra erlent lán í stað skemmra. Ég fæ ekki með nokkru móti séð að þetta geti talist valda vandræðum í nokkurri atvinnugrein nema síður sé. Þetta er einmitt til þess hugsað að auðvelda mönnum að skipuleggja sinn fjárhag upp á nýtt. Ég beini því til hv. þm., sem ég veit að ber hag skipasmíðaiðnaðarins og annarra samkeppnis- og útflutningsgreina mjög fyrir brjósti, að kynna sér það sem ég hef nú sagt.
    Í sambandi við c-liðinn hefur hv. þm. gert það nokkuð að umtalsefni að viðbót á 4. tölul. við 3. mgr. 19. gr. laga nr. 10/1988 sé ekki mjög nákvæm lögfræði. Hann spurði líka hvort þess væru dæmi í fyrri löggjöf að sett væru slík undanþáguákvæði sem bundin væru við sérstakar aðgerðir stjórnvalda eða sérstakt fyrirkomulag á lántökum vegna tiltekinna atvinnugreina. Ég vil leyfa mér í þessu sambandi að benda hv. þm. einmitt á greinina sem verið er að breyta því að í henni eru undanþáguheimildir fyrir:
    Í fyrsta lagi afurðalán vegna útflutnings, útflutningslán og birgðalán sem tekin eru erlendis eða endurlánað erlent fé til útflytjenda í því skyni að flýta uppgjöri söluandvirðis við framleiðendur útflutningsafurða, svo og önnur lán sem falla undir auglýsingu nr. 309/1986, um erlend lán vegna

útflutningsafurða. Í öðru lagi lán vegna hráefnakaupa fyrirtækja í útflutnings- og samkeppnisiðnaði. Sama á við um lán sem tekin eru erlendis vegna reksturs flugvéla og kaupskipa, töluliður sem líka er verið að breyta með þessu frv., ef að lögum verður.
    Ég fæ ekki séð að þessi viðbótartöluliður, hinn 4., feli í sér mismunun umfram það sem áður var samþykkt, m.a. vona ég að rétt sé tilvitnað með atkvæðum hv. 2. þm. Norðurl. e. Hitt get ég fallist á og reyndar tekið undir að það mætti skerpa þessi orð. En úr því að hér var minnst á, bæði af hv. 2. þm. Norðurl. e. og hv. 7. þm. Reykn., hvort hér væri eingöngu átt við lántökur vegna Atvinnutryggingarsjóðsins, þá vildi ég láta koma fram, hafi það ekki komið fram hér áður í hv. þingdeild, að það er litið svo á að fiskeldislánaákvörðunin, sem ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar tók, um að útvega sérstakt lánsfé vegna þeirrar atvinnugreinar, mundi að skilningi ríkisstjórnarinnar falla undir þetta undanþáguákvæði, svo ég nefni eitt mikilvægt dæmi sem ég veit að hv. 2. þm. Norðurl. e. lætur sér líka annt um. Ég tek undir það með honum að það er ástæða til þess hér í hv. þingdeild og hv. fjh.- og viðskn. þessarar deildar að kanna það vel hvort lögfræðin sé í góðu lagi. En ég ætla að segja að meiningin sé góð nokk í málinu og ekki hættuleg mismunun í eða umfram það sem áður hefur verið á lögbókina fest með góðra manna atfylgi.
    Meira hef ég eiginlega ekki að segja um þessar beinu spurningar varðandi dagskrármálið. Hins vegar vildi ég í tilefni af því sem hv. 2. þm. Norðurl. e. nefndi hér varðandi Stálfélagið hf. láta það koma fram að ég hef fyrir hönd iðnrn. mælt með því að það félag fái alla mögulega fyrirgreiðslu við lántökur erlendis, þar með að kannað verði til þrautar hvort unnt sé að veita því undanþágu frá lántökugjaldinu. Ég hef beint því til fjmrh., sem að sjálfsögðu fer með framkvæmd þessara laga eins og annarra skattalaga, að kanna það til þrautar hvort aðstæðurnar leyfa það. Þar kæmi m.a. til greina að kanna hvort ákvæði til bráðabirgða í þessum títt nefndu lögum dygði til þess með tilvísun til þess bréfs sem hv. 2. þm. Norðurl. e. las hér upp úr að veita slíka undanþágu. Það mál er ekki fullkannað enda erindið tiltölulega nýstofnað eins
og hv. 2. þm. Norðurl. e. virðist kunnugt. En ég legg til að þetta mál verði kannað betur í hv. fjh.- og viðskn. þessarar deildar. Hér varðar miklu að menn beiti þeim ákvæðum sem þessi lög leyfa og sem þetta frv. biður um að leyft verði til þess að veita útflutnings- og samkeppnisgreinum eðlilegar undanþágur frá þessum lántökuskatti, að þeim verði beitt.
    Ég vona að þetta svari spurningum hv. 2. þm. Norðurl. e. Vegna þeirrar spurningar sem hann líka beindi til mín hér fyrr í dag, ef ég man rétt, hvort það væri meiningin að lán vegna efniskaupa og tækjakaupa ein vegna skipasmíða sérstaklega gætu verið undanþegin gjaldinu, þá á hann væntanlega við að þar væri byggt á 2. tölul. 19. gr. laga nr. 10, sem

hann talaði hér áðan um af svo mikilli sérþekkingu. Það tel ég réttan skilning. Síðan kemur önnur spurning og hún er sú, hvort lántökur vegna innlendra skipasmíðaverkefna eigi að hljóta slíka undanþágu almennt. Því vil ég ekki fortakslaust svara en læt í ljós þá skoðun að það mál tel ég að eigi að kanna og m.a. hugleiða hvort það geti fallið undir lán sem séu tekin vegna sérstakra aðgerða stjórnvalda í þágu útflutningsgreina ef um sérstakan lánaflokk er að ræða til slíkra verkefna. Þetta mál höfum við hæstv. sjútvrh., sem er hér deildarmaður, rætt undanfarna daga og ég vonast til þess að við finnum á því hyggilega niðurstöðu sem þó heldur í heiðri að skatturinn sé rétt á lagður.
    Um málið sem hér er beinlínis til umræðu hef ég ekki meira að segja. En hv. 2. þm. Norðurl. e. beindi auk þess til mín nokkrum spurningum varðandi almenna stöðu útflutnings- og samkeppnisgreina og um gengismál sérstaklega. Ég ætla ekki að lengja þessar umræður um dagskrármálið með því að halda um það efni langar ræður, vildi þó eingöngu um það segja að það er auðvitað rétt og öllum kunnugt, og hv. þingdeildarmönnum mjög vel, að frá því ríkisstjórnin greip til þeirra aðgerða, sem hún ákvað með bráðabirgðalögunum í lok september, hefur staða sjávarútvegsins versnað, eða kannski öllu heldur það mat sem á hana er lagt hefur sýnt lakari útkomu en menn áður töldu lýsa veruleikanum. Það er talið að í stað þess að sjávarútvegurinn sé með afkomu nokkurn veginn í járnum, sé hann í heild með 3--4% halla. Þessi lakari staða skýrist að því er talið er að hálfu af því að hún hafi ekki verið rétt metin, en að hálfu af því, sem auðvitað er alvarlegast, að fisksölukjör og fiskaflahorfur séu nú lakari en þá var talið. Við þessu er náttúrlega fátt að gera annað en að horfast í augu við það eins og það er. En ég vil ítreka þá skoðun mína að breytingar af þessari stærð frá því sem áætlað var, þegar drög voru lögð að þeim efnahagsaðgerðum sem þessi stjórn er og hefur verið og mun framkvæma á næstunni, er ekki meiri en svo að á það verður að reyna enn um sinn hvort það dugi. Ekki vil ég þó segja að frá þessu verði ekki að neinu leyti vikið. Það er ósköp einfalt mál að þessi skilyrði eru jafnan til athugunar. Það er verkefni stjórnvalda á hverjum tíma, en menn mega ekki bregðast svo ótt og títt við því sem gerist í umhverfinu að þeir missi áttirnar. Það er nefnilega líka hættulegt að eltast við hvaða mýrarljós sem þeir sjá.
    Ég bendi á að þó að mönnum finnist syrta í álinn víða þá er það líka í fréttum þessi dægur að Evrópuþjóðir, sem draga fisk úr Norðursjó, hafa nú neyðst til þess að skera niður aflaheimildir sinna veiðiskipa fyrir næsta ár svo mjög að þar sem áður átti að leyfa 150--160 þús. tonna afla af þorski verður hann skorinn niður fyrir 120 þús. tonn, jafnvel niður í 118 þús. tonn. Þar sem áður átti að leyfa 160 þús. tonna afla af ýsu fyrir Evrópubandalagsríkin úr Norðursjó, verður sá afli nú skorinn niður í 60 þús. tonn, og mætti nú sjá minna grand í mat sínum en það. Samtímis eru svo fréttir af því að í Barentshafi

neyðist þær þjóðir sem þau mið nytja til þess að skera niður sínar aflaheimildir um hlutfallstölur miklu hærri en þær sem við verðum sjálfir að horfast í augu við fyrir næsta ár. Sama máli gegnir um annan afla við Noregsstrendur af botnlægum tegundum.
    Þetta eru auðvitað alvarleg tíðindi fyrir þessar fiskveiðiþjóðir en þær fela það líka í sér að þarna muni komin ástæða til þess að ætla að fiskverð á Evrópumarkaði hljóti að fara hækkandi á næstu mánuðum. Áður lá það fyrir að uppskerubrestur og þurrkar í Bandaríkjunum kynnu að valda matvælaverðshækkun og um síðir fiskverðshækkun, eftir þá lækkun sem varð á þessu ári, þegar líða tæki á nýja árið sem nú nálgast senn. Þetta er ekki atriði eða sjónarmið sem metin verða til talna í einu lagi fljótlega, en sýna þó að menn skyldu gá vandlega að áður en þeir laga skilyrðin eins og t.d. gengisskilyrðin að því sem þeim virðist ríkja á líðandi stund.
    Hins vegar fer ég ekki í neinar grafgötur um það að nú er hart í ári fyrir margar útflutnings- og samkeppnisgreinar. En ég vildi benda hv. 2. þm. Norðurl. e. á það að gengisbreyting er þar ekkert lausnarorð. Ég held að hann hafi komist rétt að orði þegar hann fór að velta því fyrir sér hvort raungengið væri rétt til fundið, rétt skráð. Það er einmitt lóðið. Það ræðst ekki af því hvaða nafngengi, hvaða krónutala er skráð á verð erlendra mynta á hverjum degi af Seðlabankanum. Það ræðst líka af því hvernig okkur lánast að hafa taumhald á innlendum kostnaði, á innlendum útgjöldum, á fjárhag ríkisins
og það er m.a. það verkefni sem við ræðum hér í dag. Allt þetta hefur áhrif á gengið, hvernig það dugir mönnum til gengis í rekstri þeirra atvinnugreina sem allt byggist hér á. Auðvitað verður sá grundvöllur sem lífið í landinu hvílir á að vera í lagi, en það er ekki lausnarorð að segja að nú eigi bara að fella gengið. Þetta veit hv. 2. þm. Norðurl. e. vel og ég veit að hann skilur líka að raungengi ræðst ekki eingöngu af því hvaða verðmiði er skrifaður á bandaríkjadollar og aðrar heimsmyntir, heldur ekki síður af hinu hvernig okkur tekst til í þeim verkum sem þjóðin hefur trúað okkur fyrir hér í þessum þingsölum.
    Ég ætla ekki að segja um þetta mikið fleira en læt mínu máli lokið.