Halldór Blöndal:
Herra forseti. Ég hef áður beint fyrirspurnum til hæstv. sjútvrh. til þess að reyna að knýja fram hvaða skoðanir hann hafi á afkomu sjávarútvegsins en það er erfitt að fá þann hæstv. ráðherra til þess. Auðvitað er það svo um ríkisstjórn og einstaka ráðherra að þeir þurfa ekki að taka til máls fremur en þeim sýnist og verður stjórnarandstaðan hverju sinni að sætta sig við það. En þó langar mig til að spyrja hæstv. sjútvrh. að því hvort hann vilji skilgreina orð hæstv. viðskrh. hér áðan, þegar hann sagði: ,,Það er hættulegt að eltast við hvaða mýrarljós sem menn sjá.`` --- Að forustumenn sjávarútvegsins séu að eltast við einhver mýrarljós nú þegar þeir láta í ljósi áhyggjur yfir afkomu fyrirtækja sinna og kvíða því að þau séu ekki rekstrarhæf. Er hæstv. sjútvrh. þeirrar skoðunar að þeir séu að elta mýrarljós? Það er auðvitað alveg laukrétt sem hæstv. iðnrh. sagði hér áðan, að afkoman í samkeppnisiðnaði og útflutningsgreinum er mun verri en þessi ríkisstjórn ímyndaði sér þegar hún réðst í efnahagsráðstafanirnar svokölluðu í septembermánuði, enda hefur hæstv. forsrh. síðan afsakað sig með því að hann hafi verið í fílabeinsturni þegar hann myndaði ríkisstjórnina. Þá var hæstv. forsrh. staddur á fundi Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna. Þá var hann staddur mitt á meðal þeirra manna sem voru að tapa sínum fjármunum. Þá var hann staddur á meðal þeirra manna sem voru að segja fólkinu upp atvinnunni.
Ég spurði hæstv. iðnrh. að því áðan hvað mundi gerast ef bæjarstjórn Ólafsfjarðar mundi óska eftir því að taka erlent lán til þess að koma frystihúsunum aftur af stað á Ólafsfirði. Ég spurði líka hæstv. sjútvrh. að því hvort bæjarstjórn Ólafsfjarðar þyrfti að greiða 6% lántökugjald ef hún vildi taka erlend lán til þess að reyna að skjóta traustum stoðum undir atvinnulífið þar. Hvorugur þessara ráðherra ætlaði að svara þessari spurningu. Þó á þeim að vera það kunnugt að í þessu sjávarplássi eru tvö frystihús og bæði notuð. Og þar hafa menn verið að reyna að tala um það hvort ekki sé hægt að ná fram hagkvæmari rekstri með því að sameina fyrirtækin, með því að þessi tvö frystihús séu rekin undir einni stjórn. Það er auðvitað alveg óhjákvæmilegt að við fáum um það upplýsingar hver sé skilningur ráðherranna á þessu atriði.
Ég veit að það fór ekki fram hjá nokkrum þingmanni að hæstv. viðskrh. notaði þessi orð að hann teldi að fiskeldi mundi að skilningi ríkisstjórnarinnar falla undir þetta ákvæði, þ.e. undir væntanlegan . . . ( Viðskrh.: Þessa sérstöku ákvörðun sem ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar tók, að útvega 300 millj. kr. á þessu ári og 500 millj. kr. á því næsta.) Nú, ekki undir lán sem tekin eru vegna sérstakra aðgerða stjórnvalda í þágu útflutningsgreinanna? ( Viðskrh.: Að fiskeldisákvarðanirnar féllu undir það.) Já, og mundu af þeim sökum ekki fá 6% lántökugjald. En hvernig eigum við nú að fella þetta saman? Öðrum þræði var hæstv. iðnrh. hér áðan að lýsa áhyggjum sínum yfir gjaldeyrisöflun okkar Íslendinga vegna þess að við verðum að draga saman sókn í sjávarafla á næsta ári
þó svo að hann gerði sér vonir um það að verð á sjávarafurðum færi hækkandi. Við skulum vona að sá spádómur kunni að rætast. Eftir sem áður hljótum við Íslendingar mjög að velta því fyrir okkur hvernig við getum skotið stoðum undir nýjar útflutningsgreinar, aðrar útflutningsgreinar. Það held ég að sé alveg óhjákvæmilegt.
Ég er dálítið undrandi á því t.d. að hv. 5. þm. Norðurl. e. skyldi ekki spyrja hæstv. ráðherra hvort lán vegna loðdýraræktar féllu undir þann skilning að þar gæti verið um að ræða lán sem tekin væru vegna sérstakra aðgerða stjórnvalda í þágu útflutningsgreina.
Ég veit satt að segja ekki hvernig þingstörfin eru að verða. Það hefur verið fjallað um lánsfjárlög og mér skilst á formanni fjh.- og viðskn. að það liggi ekkert sérstakt fyrir í nefndinni varðandi lánsfjárlögin. Samt sem áður man ég ekki eftir því að ríkisstjórnin hafi í sambandi við lánsfjárlög sent okkur neina greinargerð, skýrslu eða áætlun um það hvernig hún hygðist almennt séð eða hvaða sérstöku aðgerðir stjórnvöld hefðu í hyggju í þágu útflutningsgreina eins og það er orðað hér.
Hæstv. iðnrh. sagði rétt í þessu að afkoma sjávarútvegsins og útflutningsgreinanna væri verri en hann hefði sjálfur búist við. Auðvitað felur það í sér, ef orðin hafa þá einhverja merkingu, að þær ráðstafanir sem ríkisstjórnin hafði áður hugsað sér vegna útflutningsgreinanna eru ónógar, enda komst ráðherrann svo að orði undir öðrum kringumstæðum, að hann talaði um þær efnahagsaðgerðir sem þessi ríkisstjórn er, hefur og mun framkvæma á næstunni --- er, hefur og mun framkvæma á næstunni.
Nú er alveg óhjákvæmilegt að fá um það upplýsingar hvort ríkisstjórnin hafi í hyggju einhverjar nýjar aðgerðir eins og hún kallar í þágu útflutningsgreinanna, einhverjar nýjar lántökur sem kannski eigi að fara fram hjá lánsfjáráætlun, sem ég tel auðvitað að væri mjög hrapallegt einmitt vegna þess að við erum að fjalla um hana nú hér í þinginu þó svo að ég geri mér grein fyrir að undir mörgum kringumstæðum sé hægt að komast fram hjá því að fá
beina lagaheimild samkvæmt lánsfjárlögum til þess að hægt sé að skuldbreyta fyrir fyrirtæki. Ég verð því að óska eftir því að hæstv. iðnrh. tali skýrar um þessi efni og útskýri betur en hann hefur gert hvers vegna hann langar svo mjög og ríkisstjórnina til þess að hafa þetta vald að geta sagt við eitt fyrirtæki: Þú fellur undir aðgerðir ríkisstjórnarinnar, en við næsta fyrirtæki: Þú gerir það ekki. Við vitum að það hafa komið fram tillögur um að synja fyrirtækjum um lán hjá Stefánssjóði sem heitir Atvinnutryggingarsjóður útflutningsgreina. Er það ekki rétt munað? ( Viðskrh.: Jú, það er rétt.) Það hafa komið fram tillögur um að synja þar um lán. Nú skulum við hugsa okkur að þeir aðilar eigi í hlut og við skulum hugsa okkur að peningarnir séu uppurnir og menn séu að reyna að bjarga sér eftir á. Eiga þeir þá að greiða lántökugjaldið? Ef einhverjir í fiskeldi geta nú fengið lán erlendis og lánið fellur ekki undir það sem hæstv.
viðskrh. vitnaði til, lán sem útveguð voru á tímum ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar. Þeir peningar verði uppurnir, en sama þörfin er eftir sem áður hjá þeim fiskeldisfyrirtækjum sem ekki hafa fengið næga fyrirgreiðslu, eiga þá þau fyrirtæki að greiða 6% lántökugjald? Eða ætlar bara ríkisstjórnin þegar þar að kemur að bæta þeim fyrirtækjum við? Er hæstv. ríkisstjórn að biðja um opinn víxil til þess að hún geti að eigin vild og geðþótta skammtað mönnum leyfi til undanþágu frá þessum skatti til þess að fá persónulegar og sérstakar þakkir fyrir hjá viðkomandi atvinnurekendum, eigendum viðkomandi fyrirtækja, til þess að einstakir ráðherrar geti sagt: Ég er að gera ykkur greiða? Hér er hönd mín, hér eru molarnir og hver moli er 6%. 6% hver moli. Það getur verið töluvert ef upphæðin er há. Það er alls ekki til að gera grín að. Eftir stendur samt sem áður sú spurning: Af hverju vill ríkisstjórnin ekki eins og allar heilbrigðar ríkisstjórnir hafa lögin afdráttarlaus þannig að hægt sé að benda á í lögunum hvar undanþágan frá skattinum liggur?
Ég man ekki betur en fyrrv. fjmrh., Jón Baldvin Hannibalsson, hafi hér í þessum ræðustól þar sem ég er núna flutt mælskar ræður, því að hæstv. utanrrh. er virkilega mælskur maður og kann að koma fyrir sig orði þannig að hver skilur.
Spurt er: Er það hollt fyrir fjármálaráðherra að hafa heimildir til þess að segja við þennan og þennan: Þú þarft ekki að borga skattinn? Svarið er: Nei, það er ekki hollt fyrir fjármálaráðherra að hafa heimildir til þess að geta mismunað mönnum.
Spurt er: Bætir það siðferðið í þjóðfélaginu ef fjármálaráðherrann eða viðskiptaráðherrann getur mismunað mönnum í sköttum? Svarið er: Nei, það er ekki siðferðilega gott að fjármálaráðherrann eða viðskiptaráðherrann hafi vald til þess að mismuna í sköttum. (Gripið fram í.) Hvað þýðir stjórnvald? Hæstv. viðskrh. greip fram í. Á hann við að stjórnvald þýði þarna öll ríkisstjórnin? Þarf þá sérstök samþykkt ríkisstjórnarinnar að koma til í hvert skipti sem undanþáguheimild er gefin eða veitt frá lántökugjaldinu? Var það það sem hæstv. viðskrh. meinti?
Nei, staðreyndin er auðvitað sú að ríkisstjórnin hefur engin svör á takteinum. Ríkisstjórnin ætlar sér, eins og svo oft áður, að fá opinn víxil, hefur ekki hugsað dæmið í botn, en vill geta látið þakka sér fyrir það sem ekkert er. Mér þótti líka hálfleiðinlegt að iðnaðarráðherrann skyldi ekki koma upp í viðskiptaráðherranum þegar hann var að tala hér áðan. Ég spurði hæstv. iðnrh., ekki hæstv. viðskrh., að því hvað hann vildi gera til þess að reyna að koma til hjálpar fyrir samkeppnisiðnaðinn. Það er algjörlega borðleggjandi að miðað við sömu stefnu og nú er í efnahagsmálum --- og mig minnir að hæstv. forsrh. hafi talað um þjóðargjaldþrot ( KP: Að jaðraði.) að jaðraði við þjóðargjaldþrot. Meðan þessari efnahagsstefnu er fylgt, þá minnkar hlutdeild innlendra fyrirtækja í markaðnum hér á landi. Erlendu fyrirtækin sækja á innlendu fyrirtækin á ótal sviðum, mennirnir
sem eiga fyrirtækin hafa af þessu þungar áhyggjur. Fólkið sem vinnur hjá þessum fyrirtækjum hefur jafnvel enn meiri áhyggjur af þessu. Og ég spurði iðnrh.: Hvað ætlar hann að gera í þessu? Ég spurði iðnrh.: Getur ekki verið að samkeppnisiðnaðurinn þurfi á því að halda að taka erlend lán? Og getur þá ekki verið að samkeppnisiðnaðurinn vilji gjarnan sleppa við þetta 6% lántökugjald?
Það er tvennt enn sem óhjákvæmilegt er, herra forseti, að víkja að til að málið liggi skýrt fyrir. Annað er það að í bréfi frá Stálfélaginu er talað um að nýr málsliður komi inn, svohljóðandi, sem falli undir undanþáguákvæðin frá lántökugjaldinu, með leyfi hæstv. forseta:
,,Lán sem tekin eru vegna sérstakra aðgerða stjórnvalda í þágu útflutningsgreina eða vegna nýrra útflutningsgreina.`` Eða þá að viðbótin geti verið: ,,svo og stofnlán vegna nýrra útflutningsgreina.`` Hvernig má það vera að það geti verið skynsamlegt fyrir Alþingi að hafa ekki skýra og beina heimild inni í lögunum til þess að undanþiggja stofnlán vegna nýrra útflutningsgreina sérstöku lántökugjaldi? Varla óttast ríkisstjórnin að það sé svo mikil ásókn í það eins og gengispólitíkin er hér á landi, að menn séu áfjáðir í það að
stofna hér útflutningsfyrirtæki? Ekki býst ég við því. Ekki minntist hæstv. forsrh. á það í Morgunblaðinu í gær þegar hann var að tala um allan bunkann frá atvinnurekendum, allan erfiðleikabunkann, að hann væri með annan bunka kannski enn þá stærri frá mönnum sem eru áfjáðir í að hefja hér atvinnurekstur í útflutningsskyni. Ekki minnist ég þess. Ég hélt því að það væri kannski ástæða til þess að reyna að örva menn til að leita fyrir sér á nýjum sviðum í útflutningi. Auðvitað hlýtur þetta að koma til álita í nefndinni og er nauðsynlegt að athuga þessi mál mjög vel og gaumgæfilega.
Ég áttaði mig ekki á því hvers vegna ríkisstjórnin leggur til að orðin ,,eða lengingu á lánstíma`` falli úr 3. tölul. 3. mgr. 19. gr. laganna ef það er skilningur ráðherrans að það breyti engu. ( Viðskrh.: Jú. Eins og þau standa er bannað að taka lán sem lengja fyrra lánið. Ef þetta er fellt niður þá má taka lengra lán eins og ég útskýrði vandlega áðan. Þetta er rýmkun eins og hvert mannsbarn getur séð sem les textann.) Já, þetta er rétt. Ég bið hæstv. viðskrh. afsökunar á því að hafa misskilið þetta. ( Viðskrh.: Ef þú sérð það sem ég talaði um á blaðinu, þá muntu komast að raun um að það var útskýrt eins rækilega og unnt er að gera.) Ég bið hæstv. viðskrh. afsökunar á því að hafa mislesið þessa grein. ( Viðskrh.: Áður var bannað að lengja lán, nú kann það að verða leyft, án þess að tekið sé af því lántökugjald.) (Gripið fram í.) Ég sætti mig við þetta, þannig að það liggur ljóst fyrir, og er mjög ánægður yfir því að svo skuli vera.
Herra forseti. Ég vil ítreka ánægju mína yfir þessu en vil jafnframt benda á að ef fyrir ráðherra hefði vakað að stytta tímann, þá hefðu þeir kannski leiðrétt mig í fyrri ræðu minni þegar ég las þessi orð vitlaus vegna þess að ég átti satt að segja ekki von á góðu
frá ríkisstjórninni.