Frsm. 2. minni hl. menntmn. (Halldór Blöndal):
Herra forseti. Ég held að það hafi ekki farið fram hjá neinum tónninn hjá hæstv. menntmrh. Ég gekk úr skugga um það í kvöldmatnum með því að hringja í formann Sambands ísl. sveitarfélaga og spurði hann að því hvort þær upplýsingar væru réttar sem menntmn. hefði fengið um að Samband ísl. sveitarfélaga vildi að kaflarnir um nýja verkefnaskiptingu ríkis og sveitarfélaga taki gildi um áramótin. Hann staðfesti að þetta væri rétt. Eftir sem áður kemur hæstv. menntmrh. upp í ræðustól og heldur hinu gagnstæða fram.
Nú hef ég hér í höndum óundirritaða skýrslu til ráðherra um störf nefndar til að semja reglugerð um rekstrarkostnað framhaldsskóla og minnisblað til ráðherra um vinnu við reglugerð vegna laga um framhaldsskóla. Það væri auðvitað afskaplega fróðlegt að fá að vita hvenær þessi skýrsla og minnisblaðið urðu til til þess að hægt sé að átta sig á því hvernig það er vaxið. ( Gripið fram í: Hvaða ráðherra fékk þetta?) Ég hygg að það hafi verið menntmrh. án þess að það standi nú þarna. (Gripið fram í.) Ég geri auðvitað ráð fyrir því. Ég sé nú að formaður nefndarinnar er ekki hér við. Ég man ekki eftir því áður, þegar nefndarmaður biður um að umræðu sé frestað til þess að nefndin geti athugað hvor segir satt hæstv. menntmrh. eða fulltrúi Sjálfstfl. í menntmn. til þess að við getum gengið úr skugga um það hver sé vilji Sambands ísl. sveitarfélaga, að forseti hafi ætlað að slíta umræðunni án þess að a.m.k. formaður viðkomandi nefndar fengi upplýsingar um að þess væri óskað að nefndin kæmi aftur saman. Ég veit ekki hvort hæstv. ráðherra þykir skemmtilegt að þurfa að biðja bókstaflega um alla hluti margsinnis í staðinn fyrir að viðhafa venjuleg vinnubrögð í deildinni.
Það fór ekki fram hjá neinum að ráðherrann sagði hér áðan að fulltrúi Sambands ísl. sveitarfélaga væri andvígur ályktun Sambands ísl. sveitarfélaga og formaður Sambands ísl. sveitarfélaga fer með öll mál. ( Menntmrh.: Þetta sagði ég ekki.)
Ég ítreka, hæstv. menntmrh., hvenær var þessi skýrsla dagsett og þetta minnisblað sem nefndin fékk í hendur? ( Menntmrh.: Síðustu daga.) Síðustu daga? Stóð það undir frumritinu, síðustu daga? (Gripið fram í.) Já. Þetta getur vel staðist því að hér stendur með rithönd einhvers úr ráðuneytinu, með leyfi hæstv. forseta: ,,Þetta fékk ég í hendur í dag``, og undir stendur G svo að það er nú mjög til upplýsingar. Það er mjög til upplýsingar um það hvenær þetta kom til. Ég sé að formaður menntmn. er kominn í deildina og ég vil sem sagt beina þeim tilmælum til hans að nefndin geti komið saman í fyrramálið og rætt þá við fulltrúa Sambands ísl. sveitarfélaga til að fá úr því skorið hvort rétt sé að stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga óski eftir því að frv. komi til framkvæmda nú 1. jan., en mér skilst á hæstv. ráðherra að hann vilji halda málinu til streitu þar sem hann ímyndar sér að stjórn sambandsins vilji endilega slá málinu á frest.