Tekjustofnar sveitarfélaga
Mánudaginn 19. desember 1988

     Salome Þorkelsdóttir:
    Hæstv. forseti. Fundir hófust 19. des. og nú er kominn 20. des. og það eru liðnir 10 tímar síðan fundur hófst í dag eða eigum við að segja í gær, að vísu með hléi vegna þingflokksfunda og kvöldverðarhlés, en einhvern veginn finnst mér að mál sé að linni. Það hefði verið freistandi að ræða frekar ýmislegt sem kom fram við umræðu um fyrra frv., þ.e. um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Það var af ásettu ráði að ég kvaddi mér ekki hljóðs aftur því ég vildi ekki tefja frekar umræður um þetta mál en stuðla frekar að því að það fengi skjóta afgreiðslu. Það voru ýmis atriði sem ég hefði gjarnan viljað koma inn á sem hv. þingmenn minntust á og sem ég reyndar hef lagt áherslu á áður, eins og varðandi hvar dagvistarmálin eigi heima og tónlistarskólarnir svo eitthvað sé nefnt. Mín skoðun hefur verið að dagvistarmálin ættu fyrst og fremst heima hjá sveitarfélögunum. Eins og ég sagði í mínu fyrra máli hér eru það einmitt sveitarstjórnirnar sem standa næst fólkinu og þekkja betur þarfirnar á hverjum stað en skrifborðsherrarnir í ráðuneytum í Reykjavík sem eiga að segja til um það hvar þörf sé fyrir byggingu dagvistarheimila. Það hefur líka verið mín skoðun, og ég hef komið því á framfæri, að undirstöðumenntun tónlistar ætti heima í grunnskólum og tónlistarskólarnir ættu að vera framhaldsskólar. Ekki meira um það.
    Það má segja að frv. sem hæstv. ráðherra hefur mælt fyrir sé svo nátengt verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga að þessi tvö frv. verði ekki aðskilin enda er þetta frv. forsenda þess að hitt frv. nái fram að ganga. Það sem þetta hefur einmitt oftast strandað á, eins og ég minntist á hér í máli mínu þegar fyrra frv. var rætt, er tortryggni sveitarstjórnarmanna gagnvart ríkisvaldinu. Það sé ekki hugað að því að færa þeim tekjustofna, tryggja þeim tekjustofna til þess að standa undir þeim auknu verkefnum sem sveitarstjórnarmenn vilja gjarnan taka heim í hérað.
    Ég ætla því ekki að fara frekar út í einstök atriði frv. Hæstv. félmrh. fór ítarlega yfir frv. Að vísu gerði hún það á mettíma og mátti maður hafa sig allan við að fylgja henni eftir ef maður ætlaði að grípa allt það sem hún kom inn á. En það er skiljanlegt vegna þess hve áliðið er orðið að hæstv. ráðherra hafi reynt að tefja ekki tímann með því að vera lengi að koma sínu máli til skila.
    Ég vil í meginatriðum lýsa stuðningi við þetta frv. og við munum stuðla að því að það fái framgang eins og hið fyrra, að sjálfsögðu þó með fyrirvara um að ýmislegt geti komið fram við umfjöllun í nefnd og fram geti komið athugasemdir við einstök atriði eða einstakar greinar.
    Af því að ég minntist á það hér áðan að búið væri að kynna þessi frv. í nokkrum landshlutasamtökum dettur mér í hug að nefna að mér er kunnugt um að það hefur nú þegar verið gert á Suðurnesjum og hér hjá landshlutasamtökum á höfuðborgarsvæðinu, SSH, og einnig á Suðurlandi. Eftir þeim upplýsingum sem ég fékk hjá formanni Sambands ísl. sveitarfélaga og eins og reyndar kom fram í máli hæstv. ráðherra

verður haldið áfram kynningum um landið eftir áramótin. Ég verð þó að segja það að ég á enga ósk betri til handa sveitarfélögunum en að hægt verði að breyta lögum um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og færa þeim og tryggja fjárhagslegt sjálfstæði þannig að þeirra hungurgöngum til fjvn. á hverju hausti megi fækka.