Tekjustofnar sveitarfélaga
Mánudaginn 19. desember 1988

     Skúli Alexandersson:
    Herra forseti. Ég er nú ansi hræddur um að þó að frv. verði samþykkt og gert að lögum þá linni ekki hungurgöngum sveitarstjórnarmanna til hans stóra pabba hérna á skrifstofu fjvn. í Reykjavík.
    Ég var í þeirri nefnd sem samdi frv. og mér þykir miður að álit nefndarinnar, sem var nú mjög fáort, skuli ekki fylgja frv. Það voru þó nokkuð miklar efasemdir í nefndinni um að frv. kæmi að því gagni sem ég hygg að sveitarstjórnarmenn telji að það þurfi að koma og ráðherra nefndi hér í ræðu sinni, þ.e. að með samþykkt þessa frv. verði jöfnuð aðstaða sveitarfélaganna. Ég ætla að leyfa mér að lesa það sem nefndin lét frá sér fara þegar hún skilaði frá sér frv. til hæstv. ráðherra. Þar segir, með leyfi forseta:
    ,,Í nefndinni er ágreiningur um við hvað eigi að miða tekjur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og hversu háar þær eigi að vera. Kemur þetta fram í fyrirvörum einstakra nefndarmanna.``
    Ég vil bæta því inn í að það má vera að þessi þáttur hafi lagast, ekki sé eins mikill ágreiningur um þennan þátt. Það sem meiri hluti nefndarmanna vildi koma á framfæri með sínum fyrirvara var þetta: ,,Þá hafa komið fram efasemdir um að rýmri álagningarheimildir fasteignaskatts og aðstöðugjalds muni nýtast sveitarfélögum til aukinnar tekjuöflunar eða tekjujöfnunar við núverandi aðstæður.``
    Ég held að mjög nauðsynlegt sé þegar frv. verður sent til umsagnar sveitarstjórnarmanna að þessi fyrirvari nefndarmanna fylgi með. Það var álit sumra nefndarmanna, m.a. þess sem hér talar, að breytingin á ákvæðum í sambandi við fasteignaskatt komi ekki til með að jafna stöðu sveitarfélaga tekjulega, hún komi aðeins til með að jafna möguleika sveitarfélaganna til að leggja á. Staðreyndin er nefnilega sú að litlar líkur eru fyrir því að sveitarfélag norður á Þórshöfn, vestur á Hellissandi eða vestur á Þingeyri láti sér nokkurn tíma detta í hug að leggja á íbúðarhús og eignir svipaðar upphæðir og hægt er að leggja á eignir hér í Reykjavík. Heimildin er þess vegna létt í vasa fyrir þessi sveitarfélög og hungurgöngur þessara sveitarfélaga eiga eftir að halda áfram þó að þetta ákvæði sé komið í lög. Hitt er alveg rétt að það verður svolítið skemmtilegra fyrir þessi viðkomandi sveitarfélög að segja: ,,Ja, við slógum nú svona mikið af fasteignaskattinum. Reykjavík leggur á þetta fullan fasteignaskatt en við slógum svona mikið af.`` Aðeins það gerir þeim eitthvað pínulítið léttari göngu milli sinna þegna.
    Nákvæmlega er sama upp á teningnum í sambandi við aðstöðugjaldið. Heimild til þess að mega leggja á fyrirtæki sem eru á hausnum og geta ekki borgað gjöldin í dag, skulda sveitarfélögunum milljónir á milljónir ofan, heimild til þess að þyngja gjöldin á þessi fyrirtæki breytir ekki krónufjöldanum í kassa viðkomandi sveitarfélags. Því miður. Til þess að breyta því þarf ákveðna aðgerð ríkisvaldsins sem segir: Þið skuluð leggja á jöfn aðstöðugjöld alls staðar. Ef ríkisvaldið telur að ekki sé hægt að leggja þetta mikið aðstöðugjald á landbúnaðarafurðirnar,

landbúnaðarfyrirtækin eða sjávarútvegsfyrirtækin, þá skuli ríkissjóður koma til og jafna. Þá er hægt að segja að verið sé að jafna stöðuna. En að segja sveitarfélögunum, þar sem uppistaða aðstöðugjalda er frá landbúnaðarfyrirtækjum, að leggja 1,3% á viðkomandi fyrirtæki sem hafa ekki verið með neitt aðstöðugjald hingað til. Hverjum getur dottið í hug að það nái fram að ganga? Það er svo fráleitt. Alveg er sama með sjávarútvegsfyrirtækin. Þar er aðeins heimildin til að mega leggja á og hún er því miður óskaplega létt í vasa.
    Þetta var sá fyrirvari sem nefndarmenn, m.a. stjórnarmenn úr samtökum sveitarfélaga, vildu láta koma fram og ég tel nauðsynlegt að komi fram.
    Þá er það Jöfnunarsjóðurinn. Það var alveg rétt, sem hæstv. ráðherra sagði, að breytingin á Jöfnunarsjóðnum er á þann veg að höfðatöluframlagið verður fellt niður. Hver skyldi nú græða mest á því þegar upp er reiknað? Líklegast okkar ágæta höfuðborg vegna þess að ávinningur höfuðborgarinnar okkar, Reykjavíkur, af verkaskiptingunni verður meiri en höfðatöluframlagið sem var úr Jöfnunarsjóðnum áður. Þetta er kannski gott og blessað. Og það sé hægt að leggja ýmislegt á sig til þess að leggja niður þetta höfðatöluframlag sem var þó alltaf í eðli sínu ákveðið jöfnunarframlag, jöfnum höndum, eða raunverulega það lá í því. Höfðatöluframlag hlýtur alltaf að vera jöfnunarframlag. En staðreyndin er sú að það er ekki verið að færa sveitarfélögunum mikla jöfnun með þessari aðgerð, með Jöfnunarsjóðnum, virðulegi ráðherra. Svo er stór hluti tekinn af Jöfnunarsjóðnum til þess að breiða yfir alls konar mismunun sem á sér stað í sambandi við verkaskiptinguna.
    Ég ætla ekki að lengja þessa umræðu. Ég tek undir það að það er nauðsynlegt að koma þessu frv. til umsagnar. En ég ítreka það og fer fram á það að fyrirvari okkar nefndarmanna sem hér eru ,,presenteraðir`` að hafi samið þetta frv. verði prentaður með frv. áður en það verður sent til umsagnar til sveitarstjórnarmanna.