Tekjustofnar sveitarfélaga
Mánudaginn 19. desember 1988

     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir):
    Herra forseti. Ég þakka þær umræður sem hér hafa orðið um þetta frv. Ég vil aðeins koma inn á það sem fram kom í máli hv. 4. þm. Vesturl. Þetta er vissulega rétt ábending sem hann dró hér fram í umræðuna, að það komu fram efasemdir frá einstökum nefndarmönnum um að rýmri álagningarheimildir fasteignaskatts og aðstöðugjalds mundu nýtast sveitarfélögum til aukinnar tekjujöfnunar eða tekjuöflunar við núverandi aðstæður. Ég vek einmitt athygli á því orðalagi: núverandi aðstæður. Það var auðvitað ekki mín meining að vera að draga neitt undan í því að kynna deildinni þessar athugasemdir nefndarmanna og ég þakka hv. þm. fyrir að hafa gert það.
    En einmitt þessi atriði, að jafna möguleika sveitarfélaga til álagningar og að skapa þeim rýmri álagningarheimildir í fasteignaskatti og aðstöðugjaldi, hafa verið baráttumál Sambands ísl. sveitarfélaga um langan tíma og hér er komið að fullu til móts við það. Ég get vissulega tekið undir það með hv. þm. að við núverandi aðstæður er nokkuð ljóst að þær heimildir sem hér eru gefnar, ef að lögum verða, munu nýtast sveitarfélögunum mismunandi vel. En ég vænti þess að þegar til lengri tíma er litið muni þetta geta nýst sveitarfélögunum vel til tekjuöflunar.
    Hv. þm. dró í efa að jöfnunin í þessu frv. væri eins mikil og af væri látið. Ég vil benda hv. þm. á að það hlýtur að segja nokkuð til um það að mikil áhersla er lögð á jöfnunina að jöfnunarframlögin eru fjórfölduð frá því sem nú er. Það hlýtur að segja sína sögu.
    En ég þakka þær umræður sem hér hafa orðið um þetta mál og hve vel þingmenn hafa greitt götu þess að frv. nái til nefndar nú fyrir jólaleyfi þingmanna.