Aðgerðir í efnahagsmálum
Mánudaginn 19. desember 1988

     Geir H. Haarde:
    Herra forseti. Það er vissulega að mörgu að hyggja í sölum Alþingis þessa dagana og auðvitað margt sem verður undan að láta í þeirri tímaþröng sem hér er. En ég vil leyfa mér að kvarta við hæstv. forseta þessarar deildar undan vinnubrögðum í hv. félmn. deildarinnar og skal ég rekja nokkuð hvað fyrir mér vakir með því.
    Fundur hafði verið boðaður í hv. félmn. í morgun kl. 11 til að fjalla þar um þau mál sem fyrir nefndinni liggja. Fulltrúar minni hlutans í nefndinni höfðu fallist á að til þess fundar kæmu nokkrir aðilar er gætu orðið nefndinni til leiðbeiningar um þau mál sem þar eru áður en þau yrðu tekin til afgreiðslu. Síðan, eins og öllum deildarmönnum er kunnugt, var boðað til þingflokksfunda í morgun og af þeim sökum var m.a. fallið frá fundi í fjh.- og viðskn. deildarinnar þar sem ég á sæti nú í forföllum annars hv. þm. og auðvitað var út frá því gengið að fundi hv. félmn. yrði frestað og hann boðaður á öðrum tíma þegar öllum hentaði.
    Mér er nú tjáð, virðulegi forseti, að formaður nefndarinnar hafi einn setið á fundinum með gestum nefndarinnar og átt við þau að vísu óformlegan fund því að fundur í nefndum deildarinnar er ekki löglegur nema þar séu a.m.k. fjórir mættir. En síðan hefur hann falið starfsmanni nefndarinnar að leggja fyrir nefndarmenn drög að nefndarálitum fyrir tveimur málum og beðið þá að rita þar undir. Ég vil lýsa algerri furðu minni á þessum vinnubrögðum og beini því til forseta að hann grennslist fyrir um hverju þetta sætir.
    Er það svo í þeirri tímaþröng sem þingmenn verða að vinna við um þessar mundir að þetta séu þau vinnubrögð sem eigi að taka upp, að það eigi bara að afgreiða mál utan nefndarfunda og það meira að segja mál sem eru umdeild og menn hafa boðað breytingartillögur við eins og ég gerði í ræðu minni við 1. umr. um annað þeirra mála sem hér er á ferðinni? Er það virkilega svo að forgangsröð ríkisstjórnarinnar sé þannig að mál sem þessi eigi að taka tíma frá umræðum hér í hv. deild um bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar og um tekjuöflunarfrumvörpin og annað það sem hér er á ferðinni og skiptir verulegu máli?
    Ég mun ekki una þessum vinnubrögðum. Ég geri að sjálfsögðu kröfu til þess að það verði haldinn fullboðaður og eðlilegur fundur í hv. félmn. þar sem okkur nefndarmönnum gefst færi á að ræða við fólk sem boðað hefur verið til fundar við nefndina og að mál séu ekki afgreidd á göngum þingsins eins og þetta er í pottinn búið. Okkur er öllum kunnugt um að þegar mál eru ágreiningslaus hefur nefndarmönnum sem ekki hafa átt þess kost að mæta á nefndarfundi oft verið gefinn kostur á að skrifa upp á nál. Þar er um að ræða mál sem hafa áður verið afgreidd með formlegum hætti og bókuð út úr viðkomandi nefnd. Hér er alls ekki um það að ræða og hér er þar að auki um að ræða mál sem eru, a.m.k. annað að hluta til, ágreiningsmál.
    Ég lýsi megnustu vanþóknun á þessum

vinnubrögðum og óska skýringa forseta á þeim auk þess sem ég krefst þess að þessi mál fái formlega rétta meðferð í þingnefndinni. Við annað verður að sjálfsögðu ekki unað í hv. deild.