Efnahagsaðgerðir
Mánudaginn 19. desember 1988

     Friðrik Sophusson:
    Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir þessa löngu og ítarlegu ræðu sem hefur nánast slegið allar aðrar ræður í dag út að lengd til og vissulega var það ánægjulegt að hann skyldi gefa sér tíma til að taka þátt í þessum umræðum því að ekki veitir af að við fáum, stjórnarandstæðingar og aðrir hv. þm., tækifæri til þess að skiptast á skoðunum um þau mikilvægu mál sem hér er um fjallað. Nú er til umræðu síðara dagskrármálið sem reyndar er náskylt hinu fyrra, en það er frv. til laga um efnahagsaðgerðir sem er 8. mál þingsins. Áður en ég vík að því frv. sérstaklega langar mig til þess að fara örfáum orðum um fáeina hluti sem hæstv. forsrh. rakti í sínu máli.
    Í fyrsta lagi var það ánægjulegt að hæstv. forsrh. skuli nú lýsa því yfir að hann sé með frelsi, ( Forsrh.: Ég hef alltaf verið það.) og bætir nú reyndar við í frammíkalli að hann hafi alltaf verið það, því að þetta er sami maðurinn sem fyrir nokkrum vikum flutti hér stefnuræðu á hv. þingi og sagði þá að vestrænar aðferðir ættu ekki við hér landi. Ég hygg að hann hafi lært ýmislegt núna á sínum utanlandsferðum, kannski helst þegar hann veitti sér þann munað að afla upplýsinga ekki eingöngu um það hvar beinin væru í frú Thatcher, heldur hefur hann væntanlega jafnframt tekið innan úr henni í efnahagsmálum og vonast ég til þess að hann hafi þar með tileinkað sér þær hugmyndir sem kannski hafa skilað hvað bestum árangri á Vesturlöndum á síðustu árum.
    Það sem kannski var þó athyglisvert var það að hann taldi, og kem ég þá að því að ræða það að hann hefur sýknt og heilagt, og ekki síst í ræðu sinni áðan, rætt um lánskjaravísitöluna og hann er sá maður sem einna harðast hefur barist fyrir því að breyta lánskjaravísitölunni og nú kemur í ljós að þau mál eru í nokkurri bendu hjá hæstv. ríkisstjórn sem virðist ætla að láta það viðgangast að um næstu áramót verði margvíslegar lánskjaravísitölur í gangi. Að vísu viðurkenndi hæstv. ráðherra það að slíkt væri heldur óskemmtilegt og gæti vissulega orðið tilefni til frekara brasks þar sem augljóst er að þetta getur ruglað almenning nokkuð í ríminu.
    Það var mjög athyglisvert sem kom fram í máli hæstv. ráðherra og varðaði lánskjaravísitöluna og þann útreikning sem gerður hefði verið á samanburði annars vegar ávöxtunar með lánskjaravísitölu hér á landi þegar miðað væri við gengi annarra þjóða. Þetta var athyglisvert vegna þess, og það held ég að skipti mjög miklu máli fyrir hæstv. ráðherra að gera sér grein fyrir, að ef Landsbankinn og aðrir þeir sem beðnir voru um þessa útreikninga hefðu verið látnir mæla þetta í nýju vísitölunni hefði samanburðurinn verið enn óhagstæðari og það er vegna þess að launin vega þyngra í nýju vísitölunni og það þýðir að ávöxtun með nýju vísitölunni er hærri en samkvæmt gömlu vísitölunni. M.ö.o., þær aðgerðir sem hæstv. ríkisstjórn er nú að efna til hefði gert þennan samanburð sem hæstv. forsrh. gerði mikið úr enn þá óhagstæðari. Það er nefnilega alveg rétt sem hæstv. ráðherra sagði að raungengið á Íslandi hefur verið mjög hátt og ástæðan

fyrir mjög háu raungengi er auðvitað hin mikla kostnaðarhækkun sem hefur átt sér stað innan lands, fyrst og fremst launahækkunin ef við teljum saman nokkur undanfarin ár því að það er hárrétt sem hann sagði að í þáttatekjum hefur launakostnaðurinn í raun og veru hækkað í 73% úr u.þ.b. 65%.
    Allt þetta kom fram í ræðu hæstv. ráðherra og þar með sannaði hann að í raun og veru er hæstv. ríkisstjórn að fara út á þær götur núna að velja lánskjaravísitölu sem hefði verið mun óhagstæðari en núgildandi lánskjaravísitala. Hæstv. ráðherra réttlætti þetta hins vegar með því að ekki mætti koma fram það misgengi sem varð á sínum tíma, 1983, annars vegar á lánskjörum og launum. M.ö.o., hæstv. forsrh. ætlar að breyta tommustokknum, mælistikunni, þegar nú hagar þannig til í þjóðfélaginu að það getur verið til hagsbóta einum hópi um skeið. Þetta minnir mann dálítið á það þegar harmónikkuleikari á dansleik sagði að næsti hálftími yrði þrjú korter. Það er nákvæmlega það sem hæstv. ráðherra er að gera. Hann er í raun og veru að segja að á næstunni muni cm verða 8 mm. Svo einfalt er það mál því að það eru auðvitað vextirnir sjálfir en ekki sjálf lánskjaravísitalan sem í raun og veru mælir það leigugjald sem menn eiga að fá fyrir peningana en ekki tommustokkurinn sem mælir eingöngu verðbólguna á hverjum tíma. Þetta held ég að hæstv. ráðherra hafi sannað ágætlega í sínu máli og er ég þakklátur honum fyrir að að sýna í ágætum málflutningi fram á að í raun og veru er nýja vísitalan lakari en sú gamla á þeim mælikvarða sem hann notaði með því að bera saman lánskjör á Íslandi og ávöxtunarkjör í öðrum löndum, t.d. í Bandaríkjunum. Niðurstaðan er afskaplega ljós. Hún er eingöngu sú að þrátt fyrir svipaðan hagvöxt á Íslandi og í Bandaríkjunum hafa laun hækkað mun meira á Íslandi en í Bandaríkjunum og það sýndi hæstv. ráðherra fram á í sinni ræðu þótt honum tækist það ótrúlega að taka undir með Alþýðusambandi Íslands í sömu ræðunni og segja að það sé fjármagnskostnaðinum að kenna en ekki laununum hvernig komið er.
    Það er auðvitað enginn vandi að sýna fram á það að fjármagnskostnaður hefur hækkað gífurlega á yfirstandandi ári og það er auðvitað fyrst og fremst
vegna þess að tekjur fyrirtækjanna hafa dregist saman, tapið hefur aukist, fyrirtækin hafa þurft að taka meira lánsfé og heildarfjármagnskostnaðurinn hefur þess vegna aukist. Og á meðan hæstv. ríkisstjórn viðurkennir ekki að það þurfi að bæta afkomu fyrirtækjanna, bæta rekstrarskilyrði þeirra með því að laga gengið, halda fyrirtækin áfram að tapa, skuldastaðan versnar, heildarfjármagnskostnaðurinn vex en dregst ekki saman. Þetta eru staðreyndir sem ég held að hæstv. ráðherra verði að hafa í huga þegar hann ræðir þessi mál. Og það skiptir auðvitað langmestu máli að gera sér grein fyrir þessu. Það hefur enginn talað um það hér í þingsölum að gengið eigi að fella og síðan eigi aðrir þættir að vaxa jafnótt. Það er auðvitað undirstöðuatriði sem ég veit að hæstv. ráðherra gerir sér betur grein fyrir en flestir aðrir að

til þess að gengisfelling nái tilgangi sínum verður að koma í veg fyrir að hún hafi áhrif á alla aðra þætti, á alla innlendu kostnaðarliðina. Þar á meðal hlýtur gengislækkun að verða til þess gerð að færa niður að einhverju marki hlutfall launa í þáttatekjum.
    Þetta veit auðvitað hæstv. forsrh. þannig að það er alveg út í bláinn þegar hann segir að gengisfelling hafi enga þýðingu. Hún hefur auðvitað enga þýðingu nema til mjög skamms tíma ef menn sleppa öllu öðru lausu. Um þetta eru menn sammála. Það sem hins vegar hryggir okkur í stjórnarandstöðunni, eða a.m.k. suma hverja, er það að hæstv. ráðherra stendur að því að greiða með útflutningsgreinunum sumum með því að taka erlent fjármagn að láni og það vita allir að getur ekki gengið nema um skamma hríð. Ég tek auðvitað undir það með hæstv. ráðherra að vonandi hækkar verð á afurðum okkar erlendis þannig að afkoman batni. Við höfum hins vegar enga tryggingu fyrir því.
    Ég ætla ekki að gera svör hæstv. ráðherra að umræðuefni hér. Það gefst örugglega betra tækifæri til þess síðar. En þó vil ég spyrja hæstv. ráðherra hvort möguleiki sé á að hann útvegi fulltrúum stjórnarandstöðunnar þá skýrslu sem Seðlabankinn sendi ríkisstjórninni á sínum tíma um breytingar á lánskjaravísitölunni. Okkur er sagt að sú skýrsla hafi verið send hæstv. ríkisstjórn fyrir fáeinum vikum síðan. Sumir hæstv. ráðherrar hafa reyndar haldið því fram að þeir hafi ekki fengið þessa skýrslu í hendur, en ég held að það muni hjálpa til við umræðuna og til þess að eyða óvissunni í þessum málum ef bæði stjórnarliðar og stjórnarandstæðingar á þingi fengju aðgang að þessari skýrslu og þeim upplýsingum sem þar koma fram og ég held að hljóti að vera hinar athyglisverðustu í ljósi ummæla hæstv. ráðherra áðan.
    Hæstv. ráðherra rakti síðan þau atriði sem hann hafði lagt fram sem málamiðlunartillögur á sameiginlegum fundi ríkisstjórnarfulltrúanna og fulltrúa stjórnarandstöðunnar á fundum sem haldnir voru annars vegar í dag og hins vegar á laugardaginn var. Ég leyfi mér, hæstv. ráðherra, að kalla okkar tillögur málamiðlunartillögur af þeirri ástæðu að í þeim er að verulegu leyti gengið út frá því að kjarninn í tillögum hæstv. ríkisstjórnar eins og þær birtast á þskj. 8 og þskj. 20 eigi að ná fram að ganga með þessum breytingum sem við höfum minnst á og varða annars vegar Atvinnutryggingarsjóðinn og hins vegar kjarasamningamálin. Þess vegna leyfum við okkur að kalla þetta málamiðlunartillögur, enda hefur hæstv. ríkisstjórn áður komið til móts við suma sína stuðningsmenn með því að hreyfa til dagsetningar í frv. sem var til umræðu fyrr í dag.
    Svo að ég nefni aðeins örlítið af því sem kom fram í máli hæstv. ráðherra vil ég taka undir það með honum að æskilegt væri að koma upp hlutafjársjóði eins og tillögur eru uppi um og fluttar voru í hv. Ed. Ég er jafnframt þeirrar skoðunar að okkur beri að vinna að því með miklu markvissari hætti en hingað til hefur verið gert að koma á virkum hlutabréfamarkaði hér á landi en til þess þarf

skattalagabreytingar og ég hvet hæstv. ráðherra til þess að huga að því með hvaða hætti við getum eflt hlutabréfamarkað hér á landi, einmitt vegna þess að með því gætum við hugsanlega tryggt eiginfjárstöðu fyrirtækjanna í stað þess að láta fyrirtækin vera allt of háð innlendu og erlendu lánsfjármagni. Það er nefnilega sá munur á hlutafé og lánsfé að hlutaféð situr eftir í fyrirtækinu jafnvel þótt hlutabréf gangi kaupum og sölum en lánsfé verða fyrirtækin eðlilega að borga til baka.
    Ég vil enn fremur, virðulegur forseti, vekja athygli á tvennu sem kom fram í máli hæstv. ráðherra, annars vegar því sem hann sagði um viðskiptahallann sem yrði verulegur á næsta ári, eins og hann reyndar var á þessu ári, og benda á og leggja á það áherslu hve hættulegt það er þegar viðskiptahalli er mikill ár eftir ár. Viðskiptahallinn þýðir í raun og veru að viðskipti landsins við önnur lönd eru ekki í jafnvægi og oftast er brugðið á það ráð, og það hefur verið gert hér á landi um árabil og áratuga skeið, að leiðrétta gengi íslensku krónunnar einmitt til þess að ná jafnvægi í viðskiptum við erlendar þjóðir. Þetta er undirstöðuatriði og með því að víkja sér undan því að ná jafnvægi í viðskiptum við útlönd er auðvitað vísvitandi verið að stefna í gífurlegar erlendar lántökur á næsta ári. Og það er kannski það sem við óttumst verulega að sé gert vitandi vits og allir hljóta að sjá hvaða afleiðingar það hefur í för með sér. Með þessum orðum ætla ég ekkert að vera að fría minn flokk eða
sjálfan mig í þessu sambandi. Það er ljóst að það hefur verið ólag á þessum málum á undanförnum árum en kannski kominn tími til að menn leggist á eitt í því að ná viðskiptajöfnuði.
    Þá vil ég enn fremur, og það er síðara atriðið, nefna það sem hæstv. ráðherra hefur oft lagt áherslu á og það er lækkun á raforkuverði til sumra fyrirtækja. Ég tek heils hugar undir með honum og satt að segja tel ég það mikla framför hjá hæstv. forsrh. að viðurkenna að þarna er náttúrlega um mjög sértækar aðgerðir að ræða sem skilja eftir fyrirtæki sem eru í útflutningi og ekki síður fyrirtæki sem eru í samkeppni við innflutning og þá á ég við samkeppnisiðnaðinn sem því miður hefur verið skilinn eftir í þeim efnahagsaðgerðum sem ríkisstjórnin stóð að á síðasta hausti. Ég held að þetta mál sé satt að segja óleysanlegt og enn óleysanlegra þegar nú kemur í ljós að Landsvirkjun, miðað við lagalegar forsendur, er rekin með halla á yfirstandandi ári. Mér er og kunnugt um að staða annarra orkufyrirtækja er ákaflega slæm. Þar á ég sérstaklega við Rafmagnsveitur ríkisins og Orkubú Vestfjarða. Enn er ekki séð fyrir endann á því hvernig leysa á vandamál þeirra þannig að ekki komi til verulegrar orkuverðshækkunar til þeirra sem síst mega við því að fá slíka hækkun. Á ég þá við þá sem þurfa að hita upp húsnæði sitt með innlendum orkugjöfum. Á sama tíma, og það vil ég segja til athugunar fyrir hæstv. ráðherra, eru erlendir orkugjafar skattfrjálsir þótt þeir framleiði rafmagn. Ég er ekki að biðja um breytingar

í þeim efnum, en ég bendi á að framleiði menn rafmagn með dísilolíu þurfa menn ekki að borga söluskatt, en framleiði menn rafmagn innan lands til venjulegra nota annarra en til húshitunar hjá einstaklingum borga menn fullan söluskatt. Þarna er auðvitað misvægi sem einhvern tíma hlýtur að þurfa að leiðrétta og ráðgert var að leiðrétta með upptöku virðisaukaskatts sem nú hefur verið frestað til áramóta eftir rúmt ár.
    Vík ég nú, virðulegur forseti, með nokkrum orðum að fyrirliggjandi frv. og skal ekki vera langorður. Í fyrsta lagi vil ég minnast á 1. gr. frv. þar sem segir að stjórn deildar fyrir frystar afurðir í Verðjöfnunarsjóði fiskiðnaðarins sé heimilt að taka lán að upphæð allt að 800 millj. kr. Mér finnst ástæða til þess að hæstv. forsrh. íhugi hvort eðlilegt sé að orða þessa grein með þessum hætti eftir að yfirlýst er af hálfu hæstv. ríkisstjórnar að hér sé um að ræða lán með ábyrgð ríkisins sem ríkið ætli ekki að heimta til baka. Er það bókhaldslega verjandi að orða þetta með þessum hætti þegar sú yfirlýsing hæstv. ríkisstjórnar liggur fyrir að þessar 800 millj. verði ekki krafðar aftur af Verðjöfnunarsjóði fiskiðnaðarins? Er þá ekki rétt að láta þessa fjármuni fara í gegnum ríkissjóð sem verður hvort sem er að standa straum af endurgreiðslu þessara erlendu lána? Hérna er um að ræða mikilvægt bókhaldsatriði sem frestar því að upphæðin sé tekin inn í reikninga íslenska þjóðarbúsins á þeim stað sem hún á heima.
    Í öðru lagi langar mig til að minnast á 3. gr. frv. sem fjallar um Atvinnutryggingarsjóð útflutningsgreina. Ég spyr hæstv. forsrh. hvort honum finnist ekki eðlilegra þegar um slíkar aðgerðir er að ræða, og læt ég þá liggja á milli hluta hversu góðar þær eru, sjálfur hef ég lýst skoðun minni á því fyrr að þær næðu einnig til samkeppnisiðnaðarins. Finnst hæstv. ráðherra það verjandi að gera mun á samkeppnisiðnaðinum og útflutningsgreinunum þegar um slíkar aðgerðir er að ræða en gera hins vegar ekkert fyrir samkeppnisiðnaðinn og iðnaðinn yfir höfuð þegar mjög vel gengur í sjávarútvegi og ljóst er að gengi íslensku krónunnar er allt of hátt skráð miðað við eðlilegar þarfir og eðlilega getu iðnaðarins?
    Er það verjandi fyrir þjóð eins og Íslendinga sem lifa jafnmikið á fiski og fiskafurðum að láta það viðgangast að gengi íslensku krónunnar sé eingöngu skráð með tilliti til þess hvernig gengur í sjávarútvegi? Auðvitað veit ég, og hæstv. ráðherra þekkir það mætavel, að eðli vandans og orsök hans eru í því fólgin að sveiflurnar sem verða óhjákvæmilega í sjávarútveginum fara út í allt hagkerfið og verða að almennum hagsveiflum á mjög skömmum tíma. Þar liggur hundurinn grafinn. Ég held að það sé kominn tími til að stjórnvöld og aðrir geri sér grein fyrir því að besta ráðið til þess að ráða við þennan vanda er að jafna afkomuna á milli góðæra og harðæra í sjávarútvegi og til þess þurfum við skattalegar aðgerðir. Því finnst mér skjóta skökku við þegar hæstv. ríkisstjórn er nú í skattafrv. sínum að ráðast að þeim fyrirtækjum sem hafa nýtt sér heimildir til þess

að leggja fé fyrir til mögru áranna. Það er ekki lengur hægt að ná sköttum af fyrirtækjum sem mörg hver tapa vegna fjárfestinga umfram getu og þegar það er ekki hægt ræðst hæstv. ríkisstjórn á þá sem vegna fyrirhyggju lögðu fé til hliðar í fjárfestingarlánasjóði og varasjóði. Nú á að draga úr möguleikum fyrirtækjanna til þess að leggja fé til hliðar með því að skattleggja þessi fyrirtæki mun meira en áður. Ég held að þetta sé aðferð sem hafi þveröfug áhrif en þau sem eðlileg væru ef ríkisstjórnin hæstv. væri að leita að sveiflujafnandi aðgerðum til að stemma stigu við þeim erfiðleikum sem yfir okkur dynja vegna einhæfrar atvinnu. Og við vitum það báðir að atvinna á Íslandi verður auðvitað einhæf enn um alllangt skeið.
    Í þriðja lagi vil ég minnast á 4. gr. Það hafa orðið nokkrar umræður við fyrra málið sem hér var á dagskrá, þ.e. um Atvinnutryggingarsjóðinn, og þó einkum um Ríkisendurskoðun og eftirlit hennar. Hæstv. ráðherra hefur reyndar sagt að samstarfsnefndin ráði nokkurn veginn öllu því sem þarna gerist. Það sé unnið með faglegum hætti að því að velja þá úr sem eiga að fá skuldbreytingalán frá Atvinnutryggingarsjóði. Ég ætla ekki að bera brigður á það en það er athygli vert sem upplýst hefur verið, m.a. í ræðu hæstv. ráðherra, að Ríkisendurskoðun skuli hafa þurft að hafa afskipti af málefnum sjóðsins. Ég tel ástæðu til þess að kalla sem fyrst eftir skýrslu frá Ríkisendurskoðun um þessi mál, einkum og sér í lagi vegna þess að það virðist hafa verið ætlun bráðabirgðalöggjafans, hæstv. ríkisstjórnar, að Alþingi yrði mjög vel upplýst um þá starfsemi sem fram fer á vegum Atvinnutryggingarsjóðs.
    Þá langar mig til þess, virðulegur forseti, að benda á 18. gr. frv. og vekja athygli á því að í þessu ákvæði er gert ráð fyrir því að hækka ríkisútgjöld á yfirstandandi ári um 600 millj. kr. Mér finnst, og tek undir það með öðrum þeim sem hafa lýst yfir þeirri skoðun sinni, að hér sé farið inn á mjög varhugaverða braut, ekki síst fyrir þær sakir að hæstv. ríkisstjórn hefur ekki tryggan meiri hluta fyrir framgangi þessa frv. Hæstv. ráðherra lýsti því reyndar yfir fyrir nokkrum vikum á fundi á hinu háa Alþingi að engin trygging væri fyrir meiri hluta ríkisstjórnarinnar fyrir þessu eða ýmsum öðrum frv. Mér finnst því vera farið út á hálar brautir þegar veitt er heimild með bráðabirgðalögum til þess að hækka ríkisútgjöld. Ég leyfi mér að efast um að þetta sé í þeim anda sem stjórnarskrá Íslands er skrifuð. Ég efast ekki um að hæstv. ríkisstjórn hafi leitað sér lögfræðiálits en mér þykir rétt að vekja athygli á þessu og spyrja hæstv. ráðherra hvort til að mynda leitað hafi verið álits lagastofnunar Háskóla Íslands því að hérna virðist vera farið út á hálar brautir.
    Þá finnst mér enn fremur, sem líka er lagatæknilegs eðlis, í 20. gr. vera farið út fyrir það sem getur kallast eðlilegt að sé í bráðabirgðalögum. Allir vita að bráðabirgðalög eru gefin út vegna þess að brýna nauðsyn ber til. Getur verið eðlilegt að setja í bráðabirgðalög ákvæði sem taka gildi einum til

einum og hálfum mánuði síðar ,,ef brýna nauðsyn ber til``. Auðvitað getur það gerst að sum ákvæði bráðabirgðalaga verði ekki virk fyrr en síðar en ég bendi hæstv. forsrh. á að það er afar óeðlilegt að í bráðabirgðalögum sé tiltekið að ákveðnir hlutar laganna eigi ekki að taka gildi fyrr en miklu síðar. Af hverju segi ég þetta? Vegna þess að ef næsta hæstv. ríkisstjórn eða þessi hæstv. ríkisstjórn ætlaði að nota þetta atriði sem fordæmi gæti ríkisstjórnin síðasta dag sumarleyfis gefið út bráðabirgðalög sem tækju ekki gildi fyrr en nokkrum mánuðum seinna. Með því er auðvitað stórkostlega unnið gegn meginhugmyndum að baki útgáfu bráðabirgðalaga. Það hefði verið hægt að bjarga þessu með því að setja slík ákvæði inn í 15. gr. En að orða þetta sérstaklega með þessum hætti í 20. gr., sem í eru ýmis ákvæði en eru ákvæði til bráðabirgða þótt það beri ekki það heiti í fyrirsögn, finnst mér mjög óeðlilegt frá lagalegu sjónarmiði.
    Loks vil ég, virðulegur forseti, minnast á þær tillögur sem lagðar voru fram í hv. efri deild og Sjálfstfl. hefur lýst yfir stuðningi við eða er meðflutningsaðili að.
    Í fyrsta lagi eru það brtt. eins og þær birtast á þskj. 209 og fjalla um hlutafjársjóði. Sjálfstfl. styður þessar tillögur sem fluttar eru af hv. þm. Danfríði Skarphéðinsdóttur, Halldóri Blöndal og Eyjólfi Konráð Jónssyni. Eins og ég hef sagt áður teljum við afar mikilvægt að styrkja eiginfjárstöðu fyrirtækjanna en draga sem mest úr lánsfjárþörf þeirra öfugt við það sem hæstv. ríkisstjórn er að gera.
    Í öðru lagi hefur Sjálfstfl. flutt aðrar tillögur ásamt fulltrúum Borgfl. og Kvennalistans á þskj. 208. Ég vil árétta hér að sjálfstæðisþm. í neðri deild munu áfram fylgja þeirri stefnu sem þar kemur fram. Það vil ég ítreka svo að ekkert fari á milli mála að fulltrúar Sjálfstfl. í neðri deild hafa lýst yfir og munu standa við þá yfirlýsingu að fylgja þeim hugmyndum sem fram komu í tillögum frá Kvennalistanum og Borgfl. í efri deild og varða gildi kjarasamninga. Þetta hefur verið áréttað, virðulegur forseti, í viðræðum sem hafa átt sér stað á milli ríkisstjórnarflokkana og stjórnarandstöðunnar og ég vil segja að því miður enduðu þær viðræður með því að hæstv. forsrh. og fulltrúar hæstv. ríkisstjórnar féllust ekki á málamiðlunartillögur stjórnarandstöðunnar. Því getur farið svo, sem búast má við, að ef stjórnarandstaðan stendur saman í neðri deild verði nokkur hluti þessa frv. felldur ef ekki verða gerðar á frv. breytingar í hv. fjh.- og viðskn. Fari á þann veg lýsi ég, fyrir hönd Sjálfstfl., fullri ábyrgð á hendur hæstv. ríkisstjórn.