Menningarsjóður félagsheimila
Þriðjudaginn 20. desember 1988

     Frsm. félmn. (Hjörleifur Guttormsson):
    Virðulegi forseti. Til félmn. var vísað 32. máli þingsins, till. til þál. um eflingu Menningarsjóðs félagsheimila. Þetta mál var rætt á fjórum fundum nefndarinnar. Þar lágu fyrir umsagnir um samhljóða þáltill. frá síðasta þingi frá Fjórðungssambandi Norðlendinga og Sambandi sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi svo og skrifleg greinargerð frá Menningarsjóði félagsheimila. Umsögn barst nefndinni frá stjórn Bandalags íslenskra leikfélaga. Þessir aðilar taka undir markmið till. Til viðræðu við nefndina komu Sigurður Þorsteinsson frá UMFÍ og Kristinn Hallsson frá menntmrn.
    Nefndin hafði til hliðsjónar drög að frv. um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Þar kemur m.a. fram að áformað er að leggja niður Félagsheimilasjóð en kveðið á um að Menningarsjóður félagsheimila starfi áfram og renni til hans 10% af skemmtanaskatti. Það hefði í för með sér verulega aukningu á tekjum sjóðsins frá því sem verið hefur.
    Í ljósi þessara áformuðu breytinga telur nefndin rétt að ríkisstjórnin beiti sér fyrir endurskoðun lagaákvæða um sjóðinn með það að markmiði að hann stuðli betur en nú er að aukinni menningarstarfsemi á landsbyggðinni.
    Nefndin flytur á sérstöku þskj. brtt. við málið og mæla allir nefndarmenn með samþykkt till. svo breyttrar. Brtt. er þannig að tillgr. orðist svo:
    ,,Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að endurskoða lagaákvæði um Menningarsjóð félagsheimila samhliða breytingum á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga með það að markmiði að sjóðurinn stuðli betur en nú er að aukinni menningarstarfsemi á landsbyggðinni.``