Halldór Blöndal:
Hæstv. forseti. Nú vill svo til að hæstv. forsrh. er farinn að tala um efni fsp., að vísu mjög lauslega og losaralega, undir þingskapaumræðum. Nú vil ég spyrja hæstv. forseta: Ber að skilja þetta svo að hann muni þá taka til greina mína athugasemd þannig að forseti telji þá rétt að gefa mér orðið á nýjan leik, þá um fyrirspurnina, þannig að við getum þá hafið umræður hér og nú utan dagskrár um þá fsp. sem ég beindi til hæstv. forsrh.? Ég er að sjálfsögðu reiðubúinn til þess, en vegna þess að ég lofaði forseta að vera ekki mjög langorður vil ég ekki brjóta það loforð mitt en býðst til þess sem sagt, ef það greiðir fyrir þingstörfum, að við hefjum umræðuna strax um fyrirspurnina og ég taki í útrétta sáttarhönd forsrh. um það hvernig málsmeðferð eigi að vera.
Vilji þingsins stendur kannski til þess að við hefjum nú utandagskrárumræður um mína fyrirspurn.