Frsm. heilbr.- og trn. (Valgerður Sverrisdóttir):
Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 299 frá hv. heilbr.- og trn. Nefndin hefur fjallað um frv. á fundi sínum og mælir með að það verði samþykkt óbreytt.
Undir nál. rita hv. þm. Salome Þorkelsdóttir, Guðmundur H. Garðarsson, Karl Steinar Guðnason, Stefán Guðmundsson og Valgerður Sverrisdóttir. Fjarstaddir afgreiðslu málsins voru hv. þm. Guðrún Agnarsdóttir og Margrét Frímannsdóttir.