Vinnubrögð í fjárhags- og viðskiptanefnd og
Þriðjudaginn 20. desember 1988

     Forseti (Kjartan Jóhannsson):
    Það skal tekið fram út af þeim ummælum sem hér féllu að forseti þessarar deildar hefur áhuga á því að menn geti komist heim í jólaleyfi. Það hefur líka verið vilji forseta að greiða fyrir því að tekjuöflunarfrv. kæmust til umræðu, sem svo mikil áhersla er lögð á að séu forsenda fyrir fjárlagaafgreiðslu t.d. Og að því er þingstörfin varðar í þessari deild hefur forseti leitast við að hafa samráð við fulltrúa frá öllum þingflokkum um hvernig þau gangi fyrir sig.