Vinnubrögð í fjárhags- og viðskiptanefnd og
Þriðjudaginn 20. desember 1988

     Forseti (Kjartan Jóhannsson):
    Það skal tekið fram að ákveðið hefur verið að um fimmleytið verði veitt fundarhlé í klukkutíma til þess að ráðrúm gefist til þeirra fundahalda sem hér hefur borið á góma, annars vegar í fjh.- og viðskn. og hins vegar milli forseta og stjórnmálaflokkanna um skipulag vinnubragða. Það er ósk forseta að þessari þingskapaumræðu megi ljúka áður en að fundarhléinu kemur.