Frsm. heilbr.- og trn. (Guðrún Helgadóttir):
Virðulegi forseti. Heilbr.- og trn. hefur fjallað um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 91/1982, um málefni aldraðra, með síðari breytingum.
Hér er um að ræða samkomulagsmál sem komið er frá efri deild. Frv. er í því fólgið að lengja gildistíma laga um málefni aldraðra til 31. des. 1989. Nefndin varð sammála um að mæla með frv. eins og það liggur fyrir.
Undir nál. skrifuðu Guðrún Helgadóttir, Jón Sæmundur Sigurjónsson, Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, Ragnhildur Helgadóttir, Geir H. Haarde, Jón Kristjánsson og Guðmundur G. Þórarinsson.