Húsnæðisstofnun ríkisins
Þriðjudaginn 20. desember 1988

     Frsm. félmn. (Jón Sæmundur Sigurjónsson):
    Virðulegur forseti. Vegna ábendingar hv. 12. þm. Reykv. Kristínar Einarsdóttur er það rétt að mér láðist að geta þess hverjir skrifuðu undir þetta nál. Það er sjálfsagt að gera það til að því sé slegið föstu á spjöldum sögunnar. Hv. þm. Kristín Einarsdóttir skrifaði undir með fyrirvara. Hún er efnislega samþykk nál., en hefur að öðru leyti gert ágætlega grein fyrir sínum fyrirvara. Aðrir sem skrifuðu undir þetta nál. voru: Alexander Stefánsson, Eggert Haukdal, Geir H. Haarde, Jón Kristjánsson og Jón Sæmundur Sigurjónsson sem hér stendur.