Friðrik Sophusson:
Virðulegur forseti. Ég held að það sé ekki hægt að halda þessari umræðu áfram án þess að það komi svo sem eins og eitt eða tvö orð frá hæstv. ráðherra um það sem hér hefur verið spurt um. ( Félmrh.: Hv. þm. var bara á undan að biðja um orðið.) Ég biðst afsökunar á því. Þar með lít ég svo á að hæstv. ráðherra ætli að svara þessum fyrirspurnum. En mér heyrðist virðulegur forseti ætla að slíta þessari umræðu.
En ég vil eindregið skora á hæstv. ráðherra að láta ekki undir höfuð leggjast að skýra þingheimi frá því sem er að gerast í þessum málum. Ég hef tekið eftir því að í fjölmiðlum stillir hæstv. ráðherra sér gjarnan upp við hlið húsbyggjenda og horfir til ríkisstjórnarinnar en ekki frá ríkisstjórn til húsbyggjenda. Mér finnst þess vegna vera kominn tími til að hæstv. ráðherra sé krafinn sagna í þessum málum og spurður að því hvort hæstv. ráðherra telji sig ekki bera ábyrgð á þeim þungu búsifjum sem húsbyggjendur mega búast við vegna fyrirliggjandi stjfrv.
Þar sem, virðulegur forseti, hæstv. ráðherra hyggst taka til máls sé ég ekki ástæðu til að hafa þessi orð fleiri.