Húsnæðisstofnun ríkisins
Þriðjudaginn 20. desember 1988

     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir):
    Herra forseti. Mér varð hugsað til þess þegar hv. þm. Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstfl., talaði áðan að ég vildi að ég hefði heyrt þessa ræðu flutta þegar hann átti sæti með mér í ríkisstjórn, að ég hefði fundið þá þann eldmóð sem kom fram áðan í hans orðum og hans umhyggju fyrir húsbyggjendum sem kom fram í ræðustólnum. Ég varð aldrei neitt mikið vör við það að ég hefði sérstakan stuðning frá formanni Sjálfstfl. að því er varðar að tryggja nægjanlegt fjármagn til húsnæðiskerfisins eins og það er nú. Þess vegna fagna ég þeim umskiptum sem hafa orðið á formanni Sjálfstfl.
    Að því er varðar fjárskuldbindingar húsnæðislánakerfisins, þá mun húsnæðislánakerfið hafa til ráðstöfunar á næsta ári, ef ég man töluna rétt, um 10--11 milljarða kr. Þar af er gert ráð fyrir að fari í lánveitingar tæpir 8 milljarðar kr. Miðað við það ráðstöfunarfé sem húsnæðislánakerfið hefur samkvæmt fjárlögum nú mun það geta staðið við sínar skuldbindingar, þau lánsloforð sem hafa verið gefin út.
    Ég hef oft gagnrýnt þá sjálfvirkni sem er í húsnæðislánakerfinu. Hún lýsir sér m.a. í því að það er búið að binda fjármagn húsnæðislánakerfisins í lánsloforðum fyrir allt næsta ár og að hluta til yfir á árið 1990. Þar er búið að binda sennilega eina 2--3 milljarða. Ég átti í töluverðum vandræðum með það þegar ég sat í ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar að fá fram breytingu á húsnæðislánakerfinu, sem sumir töldu ekki mjög mikilvæga, sem var samþykkt hér um þetta leyti í fyrra. Þessi breyting hefur þó gert að verkum að við erum ekki búin að binda húsnæðislánakerfið 2--3 ár fram í tímann sem við að óbreyttu hefðum verið búin að gera.
    Það eru núna óafgreiddar um 7--8 þúsund umsóknir. Ef við hefðum búið við óbreytt húsnæðislánakerfi hefði verið búið að gefa það út í bindandi lánsloforðum sem við þekkjum og heyrum sögur af að ganga kaupum og sölum á fjármagnsmarkaðnum.
    Ég hef reynt frá því að ég tók sæti í ríkisstjórn, fyrst ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar og nú þessari ríkisstjórn, að ná fram breytingum á húsnæðislánakerfinu og ég hygg að ég hafi verið með þeim fyrstu sem hafi vakið athygli á þeirri miklu sjálfvirkni í þessu húsnæðislánakerfi og hve brýnt væri að gera þar breytingar á. En auðvitað verður að nást um það samkomulag og samstaða til þess að hægt sé að ná fram breytingum og nýrri löggjöf á hv. Alþingi. Mér finnst hv. þm. ekki þurfa að gera lítið úr því áliti sem nú liggur fyrir og ég vil segja nokkuð breiðri samstöðu um að koma á nýju húsnæðislánakerfi.
    Ég nefndi það áðan í mínu máli að það eru sex af átta nefndarmönnum sem styðja það að tekið verði upp húsbréfakerfi og ég vænti þess að það geti orðið til þess að við getum fundið framtíðarlausn á húsnæðislánakerfinu ef það verður tekið upp. En ég fullvissa hv. þm. um að við þær skuldbindingar sem húsnæðislánakerfið hefur tekið á sig að því er varðar 1989 verður staðið og fjármagn sem til þess er ætlað

á fjárlögum og lánsfjárlögum fyrir næsta ár mun nægja til þess að hægt sé að standa við þær skuldbindingar. Auðvitað er ríkisframlagið allt of lágt miðað við það kerfi sem við búum við. Það veit hv. þm. mætavel. Ég gerði hans ríkisstjórn margoft grein fyrir því að ef við ætlum að búa við húsnæðislánakerfið eins og það er nú þyrfti að auka ríkisframlagið sennilega upp í 2 milljarða til að standa undir vaxtamismun sem hv. þm. Geir H. Haarde hefur gert mikið úr hér í ræðustól með réttu. Það húsnæðislánakerfi sem við búum við mun alls ekki standa undir þeim vaxtamismun sem er í þessu kerfi.
    Ég geri mér vonir um það og ég heyri að talsmaður Sjálfstfl. í húsnæðismálum, Geir Haarde, hefur lýst ákveðnum stuðningi við þá leið sem nefndin, sem hefur verið að endurskoða húsnæðislánakerfið, hefur mælt með. Þannig vænti ég þess að það sé að finna stuðning Sjálfstfl. við það mál þegar það kemur á þingið sem ég vona að geti orðið eftir jólaleyfi þingmanna.
    En ég endurtek að við þær fjárskuldbindingar sem húsnæðislánakerfið hefur tekið á sig verður hægt að standa miðað við það fjármagn sem er til ráðstöfunar á fjárlögum næsta árs og lánsfjáráætlun.