Húsnæðisstofnun ríkisins
Miðvikudaginn 21. desember 1988

     Guðmundur H. Garðarsson:
    Virðulegi forseti. Vegna frv. sem er til umræðu er ástæða til að ræða hér nokkuð um húsnæðismál almennt. (Gripið fram í.) Ef hv. þm. sem styðja ríkisstjórnina þola það ekki að þingmenn leyfi sér að ræða hér um framlögð frv. sem hæstv. félmrh. er að leggja fyrir deildina sannast það náttúrlega sem segir í einu dagblaðanna í dag að þeir séu á góðri leið með það að vilja afleggja þingræði á Íslandi og hafi tekið upp aðra siði. Þetta er náttúrlega mjög fróðlegt fyrir þingmenn að fá svona frammíköll. ( Menntmrh.: Hvaða siðir eru það?) Vill hæstv. menntmrh. kannski ná í Dagblaðið fyrir mig svo að ég geti lesið það fyrir hann sem þar stendur. ( Menntmrh.: Hvaða dagblað er það?) Það er DV, Dagblaðið Vísir. (Gripið fram í.) Ég veit að hæstv. ráðherra er vinsamlegur í garð þingmanna yfirleitt og gerir þetta fyrir mig. ( SkA: Þarf hv. þm. að sækja skoðun á þessu máli í Dagblaðið?) Virðulegi forseti, ef hv. þm. þurfa að fá að tala held ég að rétt sé að þeir biðji um orðið á eftir mér. Ég held að hv. þm. Skúla Alexanderssyni sé orðið brátt í brók að komast hér upp í stólinn.
    Ég ætla nú að leyfa mér að . . . ( Menntmrh.: Ég ætla að lesa það fyrst.) Hæstv. ráðherra verður að vita hvað ég ætla að lesa. ( Menntmrh.: Ég ætla aðeins að gá í blaðið.) Ég hef nógan tíma. Eigum við ekki að halda þessum samræðum áfram? Þetta er náttúrlega mjög athyglisvert að þingmenn mega ekki standa hér upp, ekki einu sinni til þess að kynna afstöðu sína til stjórnarfrv. án þess að þingmenn sem styðja núv. stjórn fari að grípa fram í. Þeim líður greinilega mjög illa yfir því að við sem erum í stjórnarandstöðu skulum yfirleitt taka til máls. (Gripið fram í.) Ég veit að hæstv. félmrh. hugsar ekki þannig. Ef menn vilja hins vegar spilla framgangi mála fyrir ríkisstjórninni og hæstv. félmrh. er það velkomið og þá skulum við eyða deginum í það. Ef menn geta ekki sýnt þingmanni háttvísi og kurteisi skulum við bara hefja leikinn á ný með sama dólgshætti og hæstv. ráðherrar sumir hafa komið fram við okkur, stjórnarandstöðuna, það sem af er þessu þingi. Ég undanskil auðvitað hæstv. félmrh. sem hefur verið mjög kurteis og elskulegur eins og hennar var von.
    Varðandi þetta mál er þetta að sjálfsögðu mjög athyglisvert og kemur auðvitað til greina að skoða það með jákvæðum huga. Þetta er nýtt form sem þarf náttúrlega að sanna sitt ágæti og það hefur verið farið varlega af stað eins og efni standa til. Það á eftir að koma í ljós hvort fólk sé ánægt með þetta fyrirkomulag og tekur auðvitað nokkur ár, en þetta er samt greinilega mál sem snertir það marga og, eins og ráðherra sagði réttilega, kemur sérstaklega við sögu hjá láglaunafólki þannig að Sjálfstfl. verður auðvitað að skoða þetta með jákvæðum huga.
    Það er annað sem ég hefði áhuga fyrir að ræða sem er þessu auðvitað nátengt. Það hefði verið nauðsynlegt og æskilegt að við þingmenn hefðum fengið upplýsingar um stöðu mála almennt hjá Húsnæðisstofnun ríkisins, þ.e. hvernig stofnuninni hefur tekist að þjóna sínum tilgangi og hvort þau lög

sem sett voru á síðasta þingi hafi skilað tilætluðum árangri. Það væri mjög æskilegt og nauðsynlegt að hæstv. félmrh. upplýsti okkur þingmenn um það hvernig staðan er með tilliti til afgreiðslu lána. Eins væri mjög æskilegt að fá að vita hvernig hæstv. ráðherra og stofnuninni hefur tekist að afla fjár til að mæta þeirri eftirspurn og þeirri þörf sem er á þessu sviði. Þá væri einnig æskilegt, ef hægt væri, að hæstv. ráðherra upplýsti okkur um það hvernig lífeyrissjóðirnir hafi staðið í skilum í sambandi við þau ákvæði laga sem gera ráð fyrir að þeir kaupi fyrir 55% af árlegu ráðstöfunarfé skuldabréf Húsnæðisstofnunar.
    Þetta eru atriði sem er mjög þýðingarmikið að fá upplýst og ég veit að hæstv. félmrh. mun örugglega gera það hér á eftir.
    Þessu tengt kemur auðvitað einnig annað inn í myndina í sambandi við húsnæðismál, og það er að þótt þetta frv. sem hér liggur fyrir hafi mikla þýðingu fyrir láglaunafólk má ekki gleyma því að húsnæðismál snúa að öðrum en bara láglaunafólki. Það er að sjálfsögðu millitekjufólk líka, náttúrlega er meginþorri manna í þeim hópi sem flokkast undir að vera millitekjufólk. Svo er auðvitað hátekjufólk. Það þarf víst ekki að hugsa um það, en alla vega varðandi millitekjufólk er mjög mikilvægt að gera sér grein fyrir því hver staða þess og einnig láglaunafólks getur orðið í þeirri þróun sem er að eiga sér stað núna síðustu daga og síðustu vikur sem er fólgin í þeirri stefnu núv. ríkisstjórnar að stórauka skattaálögur á launafólk almennt.
    Það er þess vegna, finnst okkur sumum, þversögn fólgin í því að á sama tíma og við erum að reyna að laga til og gera fólki auðveldara að eignast íbúðir eða húsnæði skuli sérstaklega einn stjórnarflokkur, sem hæstv. ráðherra tilheyrir, Alþfl., ekki hafi gætt þess sem skyldi í sambandi við þá skattastefnu sem núv. ríkisstjórn rekur. Ég vil vekja athygli hæstv. ráðherra á því að það eru þrjú atriði sérstaklega sem geta haft mjög neikvæð áhrif --- og ekki geta, heldur munu hafa mjög neikvæð áhrif --- á stöðu launafólks í sambandi við viðleitni þess til að eignast eigin íbúð. Ég vil nefna sérstaklega, í fyrsta lagi, að á sama tíma og verið er, samkvæmt þessu frv. og
samkvæmt því sem hæstv. ráðherra segir sjálfur, að reyna að auðvelda fólki að eignast íbúðarhúsnæði er núv. ríkisstjórn að gera það erfiðara fyrir fólk almennt og sérstaklega ungt fólk að eignast íbúðir með þeirri skattastefnu sem ríkisstjórnin rekur. Ég minni á það að fyrir þinginu liggur frv. til laga um vörugjald sem felur í sér verulega aukningu á kostnaði við byggingu íbúða og húsnæðis. Þetta gjald, vörugjaldið, á byggingarefni, húsgögn og fleira, hlýtur að koma mjög þungt niður á sérstaklega lágtekjufólki og millitekjufólki.
    Þá er það annað atriði sem er fólgið í því að hækka á tekjuskatta. Ungt fólk sem vill leggja hart að sér og afla mikilla tekna til þess að greiða niður kostnað vegna íbúðamála getur lent í þessari hækkun og það er auðvitað íþyngjandi atriði.

    Þá er það þriðja atriðið sem lýtur að skattlagningu í sambandi við veðdeildir. Húsnæðisstofnun er stærsti aðilinn í því máli, í veðdeild Landsbanka Íslands, þannig að í þessu felst líka ákveðin íþynging hjá sérstaklega yngra fólki og öðrum sem þurfa að eignast íbúð eða húsnæði. Allt þetta felur það í sér að þessi skattastefna er til hins verra og vinnur eiginlega gegn tilgangi frv. sem hæstv. ráðherra var að kynna áðan og ber að harma það að sjálfsögðu. Ég efast ekki um að hæstv. ráðherra tekur undir þessi atriði með mér, að ekki megi vera með íþyngjandi skattastefnu á sama tíma sem verið er að reyna að auðvelda fólki að eignast íbúð.
    Þegar skattastefna núv. ríkisstjórnar er skoðuð í heild, og sérstaklega með tilliti til þess frv. sem lýtur að tekju- og eignarskatti, sést m.a., ef við tökum einstætt foreldri, að ef maður gerði ráð fyrir að einstætt foreldri, sem er ekkert óalgengt, væri í skuldlausri íbúð sem mætti meta á svona 6 1 / 2 millj. og viðkomandi ætti líka t.d. bifreið sem væri ekki metin á meira en hálfa millj. felst það í stefnu núv. ríkisstjórnar í sambandi við frv. til laga um tekjuskatt og eignarskatt að einstætt foreldri sem svona væri ástatt um mundi þurfa að greiða hvorki meira né minna en 17 þús. kr. á mánuði í eignarskatt og fasteignagjöld. Þetta eru verulegar upphæðir fyrir láglaunafólk og millitekjufólk. Þetta eru verulegar upphæðir fyrir einstætt foreldri að þurfa að inna af hendi, 17 þús. kr. Þetta er mun hærra en er í núgildandi lögum svo að ekki sé meira sagt.
    Varðandi það atriði þegar hæstv. menntmrh. greip fram í fyrir ræðumanni í upphafi ræðunnar og þingmenn stjórnarinnar --- hv. þm. Eiður Guðnason er farinn, enda er hv. þm. mjög vanstilltur þessa dagana --- en það sem ég ætlaði að leyfa mér að lesa upp í sambandi við það hvernig hv. þm., stjórnarstuðningsmenn, haga sér þessa dagana og sumir ráðherra er smákafli um afstöðu þjóðarinnar, fólks almennt, til þingmanna til þess að sýna hv. þingmönnum á hvaða stigi við erum raunverulega staddir og ég veit að hæstv. menntmrh. vill ekki fá þann stimpil sem stendur hér frá einum lesanda DV þar sem hann er að skrifa um stöðu Alþingis og ráðherra almennt. Það getur vel verið að menn séu orðnir svo öruggir í valdinu og öruggir um það að sitja hér ár eftir ár og þing eftir þing að það skipti þá engu máli hvað þjóðin segir á hverjum tíma. Eitt lesendabréf snertir kannski ekki atvinnustjórnmálamenn svo mjög. Þeir geta setið áfram og spilað með þjóðina eins og hér kemur fram í lesendabréfi og ég ætla að leyfa mér að lesa það fyrir hv. þingmenn til að sýna þeim hvert álit almennings er á því hvernig stjórnmálamenn haga sér almennt og margir hv. þm., því miður. ( SkA: Betra að lesa upp úr Mogganum.) Ég held að það sé nauðsynlegt fyrir hv. þm. að huga nokkuð að því sem kemur fram í þessu bréfi og ég ætla að lesa hér kafla úr þessu lesendabréfi í DV sem birtist í dag, 21. des., en þar segir m.a., með leyfi forseta: ,,Hvernig ná má meirihlutastjórn: Þeir spila um þjóðina.`` Síðan segir, og lesandinn heitir Kristinn

Einarsson:
    ,,Í hinum frábæra danska sjónvarpsmyndaflokki Matador, sem sýndur er á sunnudagskvöldum í sjónvarpinu, bar það m.a. til tíðinda að innan bankastjórafjölskyldunnar, sem er helsta fólkið til umfjöllunar, er farið að ,,spila um`` ráðskonuna sem er jafnframt frábær matreiðslumaður og hafði verið í þjónustu fjölskyldunnar í 17 ár. Þetta atvik . . . `` (Gripið fram í.) Hv. þm., ég held ég vilji fá að ljúka við að lesa þetta lesendabréf. Nú kemur að því sem skiptir máli að hv. þm. hugleiði. (Gripið fram í.) Ég orðaði það ekki á þennan hátt, ég tek það fram. Ég les bara það sem stendur í lesendabréfi. (Gripið fram í.) Þetta er svona nokkur áminning til þm. um það hvernig þjóðin lítur orðið til Alþingis Íslendinga og ég held að ágætt væri að hv. þm. hefðu þolinmæði til að heyra það. Ég veit að hv. þm. Stefán Guðmundsson mun gera það. Hann áttar sig bara ekki á því að ég var rétt að byrja að lesa bréfið. ( KP: Ræðumaður grípur oft fram í.) Síðan vil ég, með leyfi forseta, lesa áfram úr umræddu bréfi, en þar segir þessi ágæti bréfritari, Kristinn Einarsson:
    ,,Þetta atvik flaug mér í hug þegar ég fór að hugleiða viðtal við þrjá kunna stjórnmálamenn þetta sama kvöld í sjónvarpsfréttum, utanrrh., formann Borgaraflokksins og varaformann hans. [Hann mun víst vera orðinn formaður núna.] Hafi menn einhvern tíma spilað með fólk var það þarna í þessum viðtölum. Réttara sagt töluðu þeir eins og þeir væru að spila um þjóðina, en
ekki með hana, svo öruggir voru þeir um að fólk tryði því sem þeir sögðu. Þeir fullyrtu að í viðræðum sínum hefðu þeir ekki minnst á stjórnmál, það væri öðru nær. Maður roðnar nú bara af blygðun yfir því að hér skuli tala menn sem hafa verið í framboði í stjórnmálum. Auðvitað snúast viðræður um sendiherrastarf formanns Borgaraflokksins um stjórnmál og ekkert annað. --- En þegar varaformaður flokksins, Júlíus Sólnes, fór að ræða um að flokkur hans væri tilbúinn til viðræðna við hvaða flokk sem væri um aðild að stjórnarsamstarfi, þá fyrst blöskraði manni.``
    Ég skal nú sleppa næsta kafla, en vil síðan lesa niðurlag þessa bréfs, en þar segir svo, með leyfi forseta. ( SkA: Slitnar þá ekki samhengið í þessu?) (Gripið fram í.) Nú, það er sjálfsagt að ég lesi þetta fyrir hv. þm. ef þeir vilja heyra bréfið í heild. Ég vil þá, með leyfi forseta, halda áfram þar sem ég endaði áðan. En svo segir:
    ,,Er í bígerð að endurbæta þessa ríkisstjórn sem nú situr eða mynda aðra án kosninga? Ég veit ekki til þess. --- Það vita allir að þessi ríkisstjórn svindlaði sér inn á þjóðina [Þess vegna er þetta óþol í hv. stjórnarþm. sem hér eru í þessum sal.] án kosninga og staðhæfði við forseta að meiri hluti mundi finnast á Alþingi. Sá meiri hluti hefur ekki enn fundist [(Gripið fram í.) Hv. þm. Jóhann Einvarðsson virðist hafa fundið þennan meiri hluta og það kemur þá vonandi fram, en við skulum halda áfram.] utan að vænst er stuðnings Borgaraflokksins eða aðila innan hans þegar

búið er að semja við formanninn um að fara af vettvangi.`` Það mun víst vera hv. þm. Albert Guðmundsson. Síðan segir bréfritari og það kannski skiptir máli fyrir hv. þm. að hlusta á niðurlagið:
    ,,Mest er ég undrandi á því að fólk skuli ekki sjá þessa einstöku en ósvífnu brellu sem þessir menn skella framan í þjóðina. Ef forseti lýðveldisins kyngir því að sjá meirihlutaríkisstjórn með þessum hætti má eins gefa lýðræði hér upp á bátinn. --- Það verður ekkert liðið að lappað verði upp á núv. ríkisstjórn með viðbótarráðherrum. Héðan af er ekkert sem getur breytt stöðunni nema kosningar.``
    Þetta leyfir kjósandi sér að segja í lesendabréfi. Ég vona að aðallinn á hinu háa Alþingi, hv. þm., þoli það að fólk úti í bæ hafi skoðanir á því hvernig þeir haga sér og hvernig þetta lið er að verða sem skipar meiri hlutann á bak við núverandi ríkisstjórn. ( Menntmrh.: Meiri hlutann, já.) (Gripið fram í.) Ég verð að segja það eins og er að það er orðið ansi illa farið fyrir ykkur, ágætu þm., ef þið þolið það ekki að almenningur segi álit sitt og skoðanir á ykkur. En það getur vel verið að þið í hroka ykkar, sumir, þurfið ekkert á því að halda að fólk tali til ykkar. Þið komið bara aftur og talið í hring og talið í gegnum sjálfa ykkur og kyngið því. Það sem sagt var í gær passar ekki í dag. Það getur vel verið að það passi vel, en það passar ekki hinum almenna borgara og fólkinu í landinu þegar til lengdar lætur, enda sé ég að hæstv. menntmrh. gerir sér grein fyrir þessu og er hættur að grípa fram í fyrir ræðumanni. (Gripið fram í.) Já, hæstv. menntmrh. þarf ekki að hafa áhyggjur af Sjálfstfl. Hann skilar sér og hefur ætíð gert. ( Gripið fram í: Hver?) Við höfum ekki áhyggjur af því. En við höfum meiri áhyggjur af því hvernig hæstv. ríkisstjórn hagar sér í sínum málum eða réttara sagt hagar sér í því að geta ekki komið sínum málum fram á Alþingi Íslendinga með eðlilegum hætti. Hins vegar skil ég það vel að hv. þm., stjórnarsinnar, þola það illa að maður skuli tala hér um m.a. skattamál í sambandi við húsnæðismál. Það gengur nefnilega ekki upp hjá almenningi að sagt sé í einu orði: Við erum að gera allt sem unnt er til þess að auðvelda ykkur það að eignast eigið húsnæði, en á sama tíma skuli sama ríkisstjórn í gegnum skattalög gera fólki það erfiðara að halda þessu húsnæði, eða réttara sagt gera fólki það dýrara að komast yfir húsnæði. Ég gat um það m.a. í minni ræðu áðan að núverandi skattastefna, frv. til laga um tekju- og eignarskatt sem liggur fyrir Nd., muni þýða það að fjölskylda eða réttara sagt einstæð móðir með barn mundi þurfa að borga 17 þús. kr. á mánuði verði þetta frv. að lögum, og það er verulegur skattur fyrir utan afborganir og vexti svo að ekki sé meira sagt. Ég vil því leyfa mér að álíta það að ýmsir stjórnarþm. séu farnir að átta sig á því að þessi stefna gengur ekki upp.
    Ég vildi nota tækifærið, virðulegi forseti, til þess að koma þessum atriðum að þar sem hæstv. félmrh. er staddur hér og ég vænti þess að hún muni upplýsa okkur um þau atriði og spurningar sem ég lagði fyrir hana og enn fremur hljóti hæstv. ráðherra að koma

inn á þessi atriði sem varða aukna skattlagningu sem mun koma sérstaklega illa niður á láglaunafólki og millitekjufólki ef frv. til laga um tekju- og eignarskatt verður samþykkt á núverandi þingi eins og það liggur fyrir í Nd. sem við í Ed. munum væntanlega reyna að hafa áhrif á og breyta til hins betra.