Húsnæðisstofnun ríkisins
Miðvikudaginn 21. desember 1988

     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir):
    Herra forseti. Það var beint til mín ákveðnum spurningum af Guðmundi H. Garðarssyni, 14. þm. Reykv., sem mér er ljúft að svara. Hann spurði hvort samkomulag hefði tekist um vaxtakjör vegna skuldabréfakaupa lífeyrissjóða á árinu 1989. Svo hefur verið. Það hefur tekist samkomulag milli fjmrn., félmrn., Húsnæðisstofnunar og samtaka lífeyrissjóða um vaxtakjör fyrir mánuðina janúar, febrúar og mars. Hér er um skammtímasamkomulag að ræða. Það felur í sér að mánuðina janúar, febrúar og mars skulu útgefin skuldabréf bera 6,8% vexti ofan á verðtryggingu og aðilar eru ásáttir um að semja fyrir lok mars 1989 um kjör útgefinna skuldabréfa á tímabilinu apríl til desember 1989. Samkomulagið felur einnig í sér að vextir skuldabréfa með föstum vöxtum útgefnum á árinu 1987 og bera nú 6,25% vexti hækki frá áramótum og til enda líftíma bréfanna í 6,35%. Þetta er í aðalatriðum það sem felst í samkomulaginu um vaxtakjör. Síðan hefur samkomulag verið gert um fyrirkomulag skuldabréfakaupa lífeyrissjóðanna, þ.e. sem tryggja á að lífeyrissjóðirnir gefi betri upplýsingar um sitt ráðstöfunarfé og skuldabréfakaup. Það samkomulag var einnig gert í dag.