Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1988
Miðvikudaginn 21. desember 1988

     Stefán Guðmundsson:
    Forseti. Eftir viðræður sem ég hef átt bæði við hæstv. iðnrh. og hæstv. sjútvrh., svo og eftir umræður og ummæli þeirra hér á Alþingi bæði í gær og nú í dag, að unnið sé að því að koma því svo fyrir að undanþiggja frá lántökugjaldi smíði, endurbætur og viðhaldsverkefni fiskiskipa sé verkið unnið hér á landi. Það er kjarni þessa máls sem hér er fjallað um. Ég treysti því að við þetta sé staðið og því segi ég nei.