Frsm. minni hl. fjh.- og viðskn. (Eyjólfur Konráð Jónsson):
Herra forseti. Mál þetta er margrætt og þarf engu við það að bæta sem rætt hefur verið hér í hv. deild nú og raunar mörg ár áður og tillagan er einföld. Hún er flutt af okkur Júlíusi Sólnes og Halldóri Blöndal og er breyting við 6. gr., að í stað 2,2% komi 1,1%, þ.e. að þessi sérstaki skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði verði eins og hann áður var eða helmingi lægri en nú er gert ráð fyrir, enda liggur það fyrir að þessi skattur, eins og flestir aðrir skattar, a.m.k. þeir sem eru fasteignaskattar og neysluskattar, fer út í verðlagið beint og óbeint og það sem verið er að leggja núna sérstaklega á verslunar- og skrifstofuhús hefur verið reiknað út að muni geta þýtt allt að 0,6% í verðlagi, í vöruverði á landinu. Það eitt sýnir því hvert stefnir þó að í þessu sé það auðvitað í litlu, en við leggjum til að upphæðin verði helmingi lægri en er í frv.