Frsm. félmn. (Margrét Frímannsdóttir):
Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. félmn. á þskj. 346 um frv. til l. um breytingar á l. um Húsnæðisstofnun ríkisins, nr. 86/1986.
Nefndin hefur fjallað um frv. og leggur til að það verði samþykkt eins og það var afgreitt í Nd.
Guðrún Agnarsdóttir sat fund nefndarinnar.
Undir nál. rita Margrét Frímannsdóttir, Karl Steinar Guðnason, Jóhann Einvarðsson, Salome Þorkelsdóttir, Júlíus Sólnes, Valgerður Sverrisdóttir og Guðmundur H. Garðarsson.