Bann við ofbeldiskvikmyndum
Miðvikudaginn 21. desember 1988

     Frsm. menntmn. (Ragnar Arnalds):
    Herra forseti. Menntmn. hefur fjallað um frv. til l. um breytingu á lögum nr. 33/1983, um bann við ofbeldiskvikmyndum, sbr. lög nr. 101/1987. Hér er um að ræða frv. sem er fram sett til að framlengja gildandi lög sem renna út nú um áramót.
    Nefndin hefur einróma komist að þeirri niðurstöðu að mæla með samþykkt þessa frv.