Stofnlánadeild landbúnaðarins
Miðvikudaginn 21. desember 1988

     Óli Þ. Guðbjartsson:
    Hæstv. forseti. Ég vil fyrir minn hlut aðeins taka undir þau orð sem hér hafa fallið, bæði af hálfu hæstv. landbrh. sem og hv. 1. þm. Reykn., um mikilvægi þessa máls og mikilvægi þess að það fái eins skjóta afgreiðslu þingsins og nokkur kostur er. Hér er um að ræða í rauninni rekstrargrundvöll fyrir vaxtarbroddinn í íslensku atvinnulífi í dag og þess vegna er málið mjög brýnt.