Efnahagsaðgerðir
Miðvikudaginn 21. desember 1988

     Hreggviður Jónsson:
    Hæstv. forseti. Ég held að hér sé um misskilning að ræða. Ég dreg þessar tillögur til baka til 3. umr. eins og gert var í Ed. af okkar þingmönnum þannig að þær tillögur sköruðust ekki við þær brtt. sem við værum með hér fyrr en ljóst væri hvort þær hefðu náð fram að ganga, en við 3. umr. yrðu þessar tillögur bornar upp sem heildstæðar tillögur. En ef brtt. sem við stóðum sameiginlega að við flutning þessarar umræðu hefðu verið samþykktar hefðu þær skarast við þær tillögur sem hér liggja fyrir. Þess vegna er þetta dregið til baka til 3. umr. þannig að menn skilji það.