Þorsteinn Pálsson:
Herra forseti. Hér koma þá til 3. umr. bráðabirgðalög sem að stofni til voru sett af fyrri ríkisstjórn sl. vor en hefur nú verið breytt í öllum aðalatriðum. Þau eru þess vegna nátengd bráðabirgðalögum hæstv. ríkisstjórnar sem sett voru við myndun hennar í haust sem leið og eru grundvöllur að stefnu núv. hæstv. ríkisstjórnar í efnahags- og atvinnumálum.
Það vekur auðvitað mikla athygli við vegferð þessara mála í gegnum hið háa Alþingi nú fyrir jólaleyfi að þessi frumvörp, sem marka grundvöll efnahagsstefnunnar, skuli afgreidd með þeim hætti sem raun ber vitni um. Löngu er orðið ljóst að gera þarf ráðstafanir til að treysta rekstur undirstöðuatvinnugreina landsmanna, sjávarútvegs og samkeppnisiðnaðar. Eigi að síður hefur hæstv. ríkisstjórn tekið þá ákvörðun undir forustu hæstv. fjmrh. að aðhafast ekkert í þeim efnum, hafna með öllu að gera raunhæfar ráðstafanir í þágu atvinnuveganna.
Eins og kunnugt er var það yfirlýsing núv. hæstv. ríkisstjórnar að koma rekstri sjávarútvegsins á svokallaðan núllpunkt með þeim biðleik sem svo hefur verið kallaður af hv. 10. þm. Reykv. Í reynd hefur þó nánast ekkert gerst. Nafnvextir höfðu farið lækkandi í tíð fráfarandi ríkisstjórnar, lækkað úr 40% niður í um það bil 25% og hafa nokkuð lækkað síðan í tengslum við lækkun á skráðri verðbólgu. Í reynd hefur hins vegar ekki tekist að lækka raunvexti. Það er óumflýjanleg staðreynd að árangur á því sviði hefur ekki orðið í raunveruleikanum. Til marks um það er sú staðreynd að spariskírteini ríkissjóðs hafa ekki selst. Bankar og innlánsstofnanir sitja nú uppi með birgðir upp á tæplega 2 milljarða kr. í óseldum spariskírteinum sem leggjast ofan á fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar um sölu spariskírteina á næsta ári. Það hefur vakið athygli í umræðum um þetta mál að hæstv. fjmrh. hefur í engu getað svarað því hvernig þessu eigi að mæta. Á að mæta þessu falli á spariskírteinum með auknum erlendum lánum? Hvernig á að mæta þessum breytingum sem orðið hafa vegna þess að það er ríkjandi vantraust í þjóðfélaginu á efnahagsstefnu núv. ríkisstjórnar og spariskírteinin hafa hætt að seljast? Það er óhjákvæmilegt að ganga eftir skýrum svörum um það og ef verkstjórinn að því er varðar mótun efnahagsstefnunnar getur ekki svarað spurningum sem þessum er óhjákvæmilegt að beina þeim spurningum til hæstv. forsrh.: Hvernig á að standa að sölu spariskírteinanna? Hvað á að gera í þeim efnum? Það er órækur dómur um það að efnahagsstefna ríkisstjórnarinnar ber ekki árangur og nýtur ekki trausts í þjóðfélaginu að spariskírteini seljast ekki. Og það hlýtur að vera eðlileg krafa þegar þessi frumvörp koma til endanlegrar afgreiðslu á Alþingi að hæstv. ríkisstjórn gefi um þetta alveg skýr svör.
Hæstv. ríkisstjórn hefur heldur ekki efnt það fyrirheit að lækka raforkuverð til frystihúsanna og sjávarútvegsins. Það stendur óefnt, það loforð. Þetta
sem hv. 10. þm. Reykv. hefur kallað biðleik af hálfu ríkisstjórnarinnar hefur því í reynd orðið að eins konar tapleik, engum leik. Það hefur ekkert verið gert. En með því að afleiðingar af efnahagsstefnunni hafa með þessum hætti komið í ljós hlýtur að vera nauðsynlegt að fá skýr svör í þessum efnum.
Það er líka nauðsynlegt að nú sé gerð grein fyrir því hvernig hæstv. ríkisstjórn ætlar að standa að afgreiðslu lánsfjárlaga. Afgreiðsla lánsfjárlaga er á forgangslista hæstv. ríkisstjórnar svo sem eðlilegt er. Það liggur í augum uppi að fjárlög er ekki unnt að afgreiða með sómasamlegum hætti nema um leið séu afgreidd lánsfjárlög fyrir næsta ár. Flest bendir nú til þess að það frv. til lánsfjárlaga sem liggur fyrir Alþingi sé pappírsgagn eitt vegna þess að efnahagsstefnan hefur ekki gengið upp. Ég vil því inna hæstv. ríkisstjórn og hæstv. fjmrh. eftir því hvaða áætlanir hæstv. ríkisstjórn hefur uppi í þeim efnum, hvaða breytingar hún ætlar að flytja við lánsfjárlögin, hvaða nýmæli eru í vændum frá hæstv. ríkisstjórn að því er lánsfjárlögin varðar, eða ætlar hæstv. ríkisstjórn í engu að horfast í augu við það að efnahagsstefnan hefur ekki gengið upp og draga afgreislu lánsfjárlaga fram á næsta ár eða kannski samþykkja engin lánsfjárlög fyrir næsta ár?
Það hefur komið fram í umræðum í þjóðfélaginu af hálfu virtra hagfræðinga að veruleg hætta er á því að efnahagsstefnan í heild leiði til aukinnar þenslu, leiði til þess strax í byrjun næsta árs að markmið um verðbólguhjöðnun og lækkun vaxta fái ekki staðist, vegna þess að að öllu óbreyttu sýnist ríkisstjórnin vera að stefna í mjög auknar erlendar lántökur. Það er einmitt þess vegna sem er óhjákvæmilegt að fá alveg skýr svör um það fyrir áramót, fyrir afgreiðslu fjárlaga, hver stefna stjórnarinnar er í lánsfjármálum, hvernig hún ætlar að taka á þeim viðhorfum sem blasa augljóslega við í þeim efnum.
Dr. Þorvaldur Gylfason hefur bent á að ríkisstjórnin stefni nú í að auka mjög verulega þensluhallann í þjóðfélaginu með því að auka á erlendar lántökur, bæði í því sem hann hefur kallað B-hluta og C-hluta ríkiskerfisins. Í heild telur hann að þensluhallinn verði upp á tæpa 10 milljarða kr. Í ljósi þessara staðreynda er nauðsynlegt að þessar upplýsingar liggi fyrir.
Það er líka nauðsynlegt að nú verði tekið af skarið um það hvers konar
vísitölukerfi á að vera í gildi frá og með næstu áramótum. Hæstv. forsrh. hefur lýst því yfir að um áramótin eigi að taka gildi ný lánskjaravísitala sem tengd verði launabreytingum. Hann hefur jafnframt lýst því yfir, hæstv. forsrh., að það sé óeðlilegt að margar lánskjaravísitölur séu í gildi í einu. Samt er það svo að nokkrir þingmenn Framsfl., þingmenn úr flokki hæstv. forsrh., hafa flutt um það tillögur hér á Alþingi, vegna þess að þeir eru ósammála þeirri breytingu sem hæstv. forsrh. er að gera á lánskjaravísitölunni og telja hana ófullnægjandi, að skipuð verði sérstök nefnd sem taki þessi mál úr höndum hæstv. viðskrh. og geri tillögu um aðra samsetningu lánskjaravísitölunnar. Og nú er óskað eftir
því að hæstv. forsrh. svari því hvort hann er sammála tillöguflutningi þm. Framsfl. í þessu efni, hvort hann er sammála því stefnumiði sem þar kemur fram, að það eigi a.m.k. að vera tvenns konar lánskjaravísitala.
Loks er nauðsynlegt að fá svör vegna frétta sem birst hafa í blöðum um það að hæstv. fjmrh. hafi lýst því yfir í samningum við lífeyrissjóðina að í samningum milli ríkissjóðs og lífeyrissjóðanna eigi að vera óbreytt lánskjaravísitala. Hér rekst hvað á annars horn. Þingmenn Framsfl. flytja tillögur gegn tillögu hæstv. forsrh. Hæstv. fjmrh. leggur á það áherslu að óbreytt lánskjaravísitala verði í gildi þrátt fyrir ákvarðanir og yfirlýsingar hæstv. forsrh. um að breyta eigi þessari vísitölu. Nú er óskað eftir því að hæstv. ríkisstjórn geri hreint fyrir sínum dyrum í þessu efni og skýri þinginu frá því hver hin raunverulega stefna stjórnarinnar er. Fregnir hafa spurst um það að hæstv. fjmrh. hafi í samningum við lífeyrissjóðina boðið 0,2% vaxtalækkun á nýjum lánum í næstu þrjá mánuði til lífeyrissjóðanna, að vextirnir lækki um 0,2% næstu þrjá mánuði, en vextir af lánum sem tekin voru á síðasta ári hækki um 0,1% sem í fljótu bragði virðist þýða að auka eigi vaxtagreiðslur ríkissjóðs á næsta ári til lífeyrissjóðanna. Ef þetta er rétt sýnist augljóst að ríkisstjórnin er að viðurkenna það í verki að um frekari vaxtalækkanir verði ekki að ræða þó að fara eigi svona skringilega leið að því að reyna að draga fjöður yfir þá staðreynd að aðilarnir úti í þjóðfélaginu og þar á meðal lífeyrissjóðirnir treysta ekki efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar. Ég óska eftir því að áður en þessari umræðu er lokið fáist um þetta skýr svör.
Frv. sem hér liggur fyrir tekur á kjarasamningum í þjóðfélaginu. Auðvitað er það svo og það hefur æðioft hent í þjóðfélagi sem byggir á miklum sveiflum að þær aðstæður geta verið fyrir hendi að stjórnvöld þurfi um skamman tíma að grípa inn í gerða kjarasamninga. Þessi lög eru að stofni til sett í maímánuði sl. í tengslum við gengisbreytingu, sem hliðarráðstöfun við breytingu á gengi krónunnar. Þá var gildistími laganna áætlaður til 10. apríl vegna þess að öllum var ljóst að með hausti þyrfti nýjar aðgerðir til þess að tryggja afkomu atvinnuveganna og einkanlega sjávarútvegsins. Nú hefur það hins vegar gerst að ný ríkisstjórn neitar með öllu að gera slíkar ráðstafanir, sendir þau skilaboð, þann jólaboðskap, þann nýársboðskap, til fólksins í sjávarútveginum, fiskvinnslunni, útgerðarmanna og sjómanna, að engar ráðstafanir eigi frekar að gera, en að vísu eigi að safna nokkrum skýrslum til viðbótar. Þessar aðstæður hafa auðvitað gjörbreytt þeim forsendum sem lágu fyrir þessari lagasetningu.
Nú hefur það gerst hér í hv. deild í dag, svo sem boðað var við myndun þessarar ríkisstjórnar, að huldumenn mundu koma til liðs við stjórnina þegar mikið lægi við og það hefur komið fram í röksemdum við atkvæðagreiðslu fyrr í dag um þetta mál að breytt afstaða byggist m.a. á því að hæstv. forsrh. hafi lýst því yfir að hann ætli að hefja viðræður við verkalýðshreyfinguna nú um áramótin. Auðvitað ber
að fagna þessu. Ég tek undir það að það er skynsamlegt og rétt við þessar aðstæður af hálfu hæstv. ríkisstjórnar að hefja þessar viðræður. Um leið og það er tilkynnt að þessar viðræður eigi að hefjast hlýtur ríkisstjórnin hins vegar að hafa mótað afstöðu til þess hvaða boðskap hún ætlar að flytja verkalýðshreyfingunni í landinu. Á hvaða grundvelli eiga þessar viðræður að fara fram? Hvað ætlar hæstv. ríkisstjórn að leggja fyrir verkalýðshreyfinguna? Það hlýtur að liggja alveg skýrt fyrir um leið og yfirlýsing sem þessi er gefin hver sá boðskapur er. Og nú er óskað eftir því að við þessa umræðu geri hæstv. forsrh. skilmerkilega grein fyrir því hver viðræðugrundvöllurinn er, hvaða efnahagsstefna það er sem hæstv. ríkisstjórn leggur fyrir verkalýðshreyfinguna, hvaða aðgerðir það eru í efnahags- og atvinnumálum, hvaða stefna það er í kjaramálum sem hæstv. ríkisstjórn leggur fyrir verkalýðshreyfinguna. Þessi yfirlýsing hefur verið gefin með ótvíræðum hætti og hún hefur verið forsenda fyrir atkvæðagreiðslu hér í hv. deild í dag. Þess vegna verður ekki undan því vikist að í einstökum atriðum skýri hæstv. ríkisstjórn frá þessum áformum og hvað liggi til grundvallar viðræðunum. Því verður ekki trúað að óreyndu að yfirlýsing sem þessi sé gefin án þess að ákvarðanir þar að lútandi liggi fyrir.
Hæstv. sjútvrh. hefur lýst því yfir hér á Alþingi og víðar að ráðstafanir verði ekki gerðar við þessar aðstæður öðruvísi en að þær hafi kjaraskerðingu í för með sér. Ég er sammála hæstv. sjútvrh. í þessu efni. Mín skoðun er sú að við þær aðstæður sem við búum við í þjóðfélaginu í dag verði engum raunhæfum
ráðstöfunum komið fram sem tryggi rekstur útflutningsgreinanna og samkeppnisiðnaðar í landinu nema þær hafi þessar miður heppilegu afleiðingar að um sinn rýrni kaupmátturinn í þjóðfélaginu. Því miður eru aðstæður með þessum hætti og ég er sammála þessu mati hæstv. sjútvrh. ef gera á raunhæfar aðgerðir. Því miður liggur það enn fyrir og ekkert annað hefur komið fram en að ríkisstjórnin ætli að sitja aðgerðalaus. Nú þegar hæstv. forsrh. hefur hins vegar boðað viðræður við verkalýðshreyfinguna og þær hafa verið forsendur fyrir atkvæðum einstakra þingmanna er eðlilegt að eftir þessu sé gengið: Hver er stefnan? Hvað verður lagt fyrir aðila vinnumarkaðarins og launafólkið í landinu? Hvaða aðgerðir eru það sem gera á og hvaða kjarastefna kemur fram í þeim viðræðum? Er ríkisstjórnin sammála um það sem hæstv. sjútvrh. hefur sagt, að það þurfi að rýra kaupmáttinn í landinu? Getur hæstv. fjmrh. svarað því hér alveg skilyrðislaust hvort hann er sammála því mati og hvort það verður lagt til grundvallar í viðræðum ríkisstjórnarinnar við verkalýðshreyfinguna?
Herra forseti. Ég sé að svo stöddu ekki ástæðu til þess að fara fleiri orðum um frv. eins og það liggur nú fyrir en vil ítreka þær fyrirspurnir sem hér hafa verið bornar fram. Svör við þeim eru nauðsynleg til þess að unnt sé að standa að afgreiðslu mála með
eðlilegum og málefnalegum hætti fyrir áramót.