Vörugjald
Miðvikudaginn 21. desember 1988

     Kristín Halldórsdóttir:
    Herra forseti. Þetta er satt að segja mjög ruglingslegt allt saman og þar sem hér eru inni í ákveðnir liðir sem eru hér samkvæmt númerum í brtt. og á frv. sem við hefðum getað hugsað okkur að styðja og verða til þess að lækka verð á ákveðnum hlutum til heimilisnota, þá er málið í heild þannig fram sett að við getum ekki greitt slíkum liðum atkvæði nú og því segi ég nei.