Vörugjald
Miðvikudaginn 21. desember 1988

     Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir:
    Herra forseti. Þegar við stöndum nú frammi fyrir gjaldþroti nýfrjálshyggjunnar þurfum við þingmenn ekkert að efast um að við verðum að gera fleira en okkur líkar. Ég hef beðið eftir því í allan vetur að við í stjórnarandstöðunni, öll, legðum fram einhver fjáröflunarfrumvörp sem tækju þeim fram sem ríkisstjórnin nú leggur fram. Það höfum við ekki gert. Við erum með engin fjáröflunarfrumvörp á borðinu. Því segi ég já.