Tekjuskattur og eignarskattur
Miðvikudaginn 21. desember 1988

     Frsm. 1. minni hl. fjh.- og viðskn. (Geir H. Haarde):
    Herra forseti. Áður en lengra er haldið mætti ég óska eftir nærveru hæstv. fjmrh. og einhvers af ráðherrum Alþfl., hæstv. viðsk.- eða utanrrh.
    1. minni hl. fjh.- og viðskn., sem í eru hv. þm. Ingi Björn Albertsson og ég, hefur skilað nál. á þskj. 335 við frv. til laga um breytingu á lögum um tekju- og eignarskatt. Nál. er svohljóðandi, virðulegur forseti:
    ,,Með frv. þessu er lögð til gífurleg þynging tekjuskatts einstaklinga, tekjuskatts fyrirtækja og eignarskatta einstaklinga. Af hálfu fjmrh. hefur með ýmsum hætti verið látið í veðri vaka að skattahækkanir þessar séu minni en frv. gerir í raun ráð fyrir og eru slíkar blekkingartilraunir vítaverðar.
    Skal nú fjallað um hverja skatttegund frv. fyrir sig.
    1. Tekjuskattur einstaklinga.
    Með frv. er lögð til veruleg hækkun skattbyrði allra hópa gjaldenda frá því sem núverandi lög gera ráð fyrir. Fyrir nefndina hafa verið lagðir skýrir útreikningar sem sanna þetta.
    Verður að teljast sérstaklega ámælisvert að fjmrh. skuli í grg. með frv., í framsöguræðu og í fjölmiðlum hvergi minnast á hvernig tekjuskattar einstaklinga hefðu orðið á næsta ári samkvæmt gildandi lögum heldur einungis bera saman skattbyrði ársins 1988 og áætlaða skattbyrði frv.
    Í gildandi tekjuskattslögum eru ákvæði sem eru þess valdandi að skattbyrði lækkar með minnkandi tekjum en hækkar með vaxandi tekjum.
    Í frv. er gert ráð fyrir að breyta þessu með því að afnema viðmiðun persónuafsláttar, húsnæðisbóta, barnabóta og fleiri liða við lánskjaravísitölu en miða þessar stærðir við skattvísitölu ár hvert. Í kynningu á frv., í greinargerð, framsöguræðu og annars staðar er þess hvergi getið að þessi breyting sé látin koma fram í samanburði á sköttum fyrir og eftir samþykkt þessa frv.
    Hér er um að ræða slíka fölsun að undirritaðir nefndarmenn þekkja ekki dæmi slíks. Forsendum núverandi kerfis er breytt í grundvallaratriðum áður en það er borið saman við afleiðingar frv. og án þess að það sé útskýrt. Gengið hefur verið úr skugga um að hér er ekki um mistök að ræða í framsetningu heldur vísvitandi fölsun. Slíkt siðleysi í vinnubrögðum og málflutningi er bæði til vitnis um spillt hugarfar í stjórnmálum og ömurlegan málstað í því máli sem um ræðir.
    Skattfrelsismörk einstaklings lækka samkvæmt frv. frá því sem verið hefði í janúar nk. samkvæmt gildandi lögum úr 50.681 kr. í 47.513 kr. Sú breyting, sem meiri hl. nefndarinnar leggur til um persónuafslátt, hækkar mörkin um 65 kr. á mánuði eða í 47.578 kr.! Slík hækkun er þvílík háðung að hún hefði betur verið látin ógerð.
    Skattþynging annarra hópa en einstaklinga frá gildandi lögum er síst minni. Vísast um það efni til þeirra útreikninga sem hagfræðingar ASÍ, VSÍ og BSRB hafa sameiginlega sent fjh.- og viðskn. og birtir eru sem fylgiskjal með nál. þessu. Á þeim skal þó

hafður sá fyrirvari að í þá vantar barnabótaauka, bæði í tölur um núverandi kerfi og það sem frv. gerir ráð fyrir.
    Sú gríðarlega skattahækkun, sem hér er gert ráð fyrir, kemur ekki til nokkurra álita við núverandi aðstæður að dómi minni hl. nefndarinnar.
    2. Tekjuskattur fyrirtækja.
    Að því er þennan þátt varðar er sýnt að leitað hefur verið allra hugsanlegra leiða í skattalögum til að þyngja tekjuskatt lögaðila. Er jafnvel gengið svo langt að tínd eru til smáatriði sem á sínum tíma voru sett í lögin til einföldunar og til þess að hreinsa út illframkvæmanleg eldri ákvæði. Er í þetta ráðist í frv. þótt vitað sé að slíkar breytingar muni mjög torvelda fyrirtækjum og skattyfirvöldum framkvæmd og að auki skila litlum peningum í ríkissjóð. Hér er sérstaklega átt við ákvæði 4. og 5. gr. frv. um að fella niður heimildir til að færa kostnaðarverð lausafjár með skamman endingartíma til gjalda við kaup sem og eigna undir tilteknu lágmarksverðmæti.
    Í skýringum með frv. er þess getið að tekjuskattshækkun fyrirtækja sé hin sama og einstaklinga þar sem álagningarhlutfall hækki úr 48% í 50%. Þessi fullyrðing er mjög villandi og beinlínis röng gagnvart þeim fjölda fyrirtækja sem hagnýtt hafa sér heimildir til að leggja í fjárfestingarsjóði. Með frv. á að takmarka þá heimild við 15% skattskyldra tekna í stað 30% áður. Þannig er í raun verið að hækka skatthlutfall fyrirtækja, sem leggja í slíka sjóði, úr 33,6% í 42,5%.
    Þó tekur steininn úr í blekkingum þegar því er haldið fram í grg. með frv. að þetta sé í samræmi við stefnu fyrri ríkisstjórna sem stefnt hafi að lækkun heimilda til að leggja í fjárfestingarsjóði og raunar lækkað hlutfallið úr 40% í 30% í fyrra. Margyfirlýst er og öllum ljóst að stefnan var sú að þrengja þessar heimildir í tengslum við lækkun skatthlutfallsins. Nú á hins vegar að hækka hlutfallið samtímis takmörkun þessara heimilda.
    Frv. gerir ráð fyrir verulega þrengri möguleikum til fyrninga í atvinnurekstri en verið hefur. Er það í samræmi við afstöðu þeirra sem telja að afskriftir séu í eðli sínu óeðlilegar og óþarfar. Engin efnisrök hafa verið
færð fyrir þeim tillögum sem er að finna í frv. og ekkert hefur komið fram um að endingartími eigna, sem afskrifa má samkvæmt skattalögum, hafi lengst að undanförnu. Þvert á móti má halda því fram að endingartími margra tækja í nútímarekstri, eins og t.d. tölva og tölvubúnaðar, hafi styst og þau eigi því að afskrifa á styttri tíma en áður.
    Stjórnarflokkarnir hafa gefist upp við það áform sitt að afnema heimild til þess að draga gjafir til menningarmála, vísindalegra rannsókna og líknarstarfsemi frá tekjum í atvinnurekstri. Ber að fagna því.
    Í frv. er ákvæði til þess ætlað að koma í veg fyrir að hlutafélög láni hluthöfum eða stjórnarmönnum og framkvæmdastjórum fé. Virðast stjórnarflokkarnir telja í lagi að önnur félög, svo sem samvinnufélög, geti

lánað sínum forstjórum fjármuni á vildarkjörum. Að dómi undirritaðra er rétta leiðin til að sporna við misnotkun í þessu efni sú að skylda aðila til að reikna markaðsvexti af slíkum lánum og láta eitt yfir öll félagaform ganga. Meiri hl. féllst ekki á að gera breytingar í þá átt.
    Í stuttu máli eru breytingar á skattareglum fyrirtækja í frv. svo íþyngjandi og órökréttar að undirritaðir hljóta að leggjast gegn þeim í heild sinni.
    3. Eignarskattar einstaklinga.
    Frv. gerir ráð fyrir gríðarlegum hækkunum að því er varðar eignarskatta einstaklinga. Svo miklum að jafnvel meiri hl. stjórnarflokkanna í nefndinni blöskraði og flytur nú brtt. um að hækka viðmiðunarmörk í ráðgerðu stóreignaskattþrepi úr 6 í 7 millj. kr.
    Í upphaflegu frv. var enn gerð tilraun til að blekkja þingheim og almenning með því að láta líta svo út sem 2,7% skattþrep væri aðeins 1,5% þrep. Þessar blekkingar voru afhjúpaðar þegar við l. umr. og hefur meiri hl. nú gert tillögu um að texti frv. segi það sem alltaf stóð til. Þó hefur fjármálaráðherra lagt blátt bann við því að talan 2,7% fái að sjást.
    Einnig var reynt að villa um fyrir fólki með því að upplýsa í grg. með frv. að í stóreignaskattinum lentu aðeins 6 þús. manns af 182 þús. framteljendum. Hinn eðlilegi samanburður er hins vegar við tölu eignarskattsgreiðenda, en þeir munu vera rúmlega 48 þús. og því var áformað að íþyngja 12% þeirra sérstaklega með hinu nýja eignarskattsþrepi. Eitthvað mun fækka í þessum hópi nái brtt. meiri hl. fram að ganga.
    Séu þær hækkanir á eignarskatti, sem hér eru ráðgerðar, og hækkanir á hinum sérstaka skatti á skrifstofu- og verslunarhúsnæði teknar saman er ljóst að ríkisstjórnin áformar að ná sér sérstaklega niðri á því fólki sem á eignir í formi verslunar- og skrifstofuhúsnæðis. Útkoman er hins vegar einnig sú að þeim hluta Íslendinga, sem býr í skuldlausum og þokkalega verðmiklum íbúðum, er freklega refsað fyrir þá sjálfsbjargarviðleitni sína.
    Þannig gerir frv. ráð fyrir því að einstaklingur í Reykjavík, sem býr í skuldlausri eign að fasteignamati 8 millj. kr., greiði á næsta ári 11.600 kr. á mánuði í eignarskatta til ríkis og borgar, en fasteignagjöld til borgarinnar eru 0,421% af fasteignamati.
    Sé miðað við það tekjuskattshlutfall, sem frv. gerir ráð fyrir, 37,5% að meðtöldu útsvari, jafngildir þetta því að slíkur einstaklingur greiddi sjálfum sér 30.900 kr. í húsaleigu á mánuði og innti síðan af hendi skatt af leigunni. Ávöxtunarkrafan, sem ríkisstjórnin telur eðlilegt að gerð sé til slíks húsnæðis, jafngildir því hvorki meira né minna en 4,6% raunvöxtum.
    Meiri hl. leggur til með brtt. sínum að eignarskattar slíks einstaklings verði rúmlega 10.300 kr. á mánuði í stað 11.600 kr. Samkvæmt gildandi reglum er þessi fjárhæð nú tæplega 7.900 kr. á mánuði og mörgu eldra fólki ofviða.
    Undirritaðir nefndarmenn hafna algerlega þeim hugmyndum sem liggja að baki þessum hækkunum og

geta ekki sætt sig við þessa gríðarlegu hækkun á eignarsköttum ofan á allt annað.
    4. Niðurstaða.
    Ljóst er af því sem að ofan greinir að það er eindregin skoðun undirritaðra að frv. beri að fella. Við bendum jafnframt á það siðleysi að ætla að láta hluta frv. koma til framkvæmda vegna tekna á árinu 1988 og hafa þannig afturvirk áhrif. Mjög slæm reynsla er af slíkum ákvæðum og raunar mikill vafi á því að þau standist stjórnarskrá. Nægir í því sambandi að vitna til dómsmála sem spunnust síðast þegar núv. stjórnarflokkar sátu saman í ríkisstjórn, en þá eins og nú létu þeir það verða eitt sitt fyrsta verk að leggja á afturvirka skatta.``
    Undir þetta nál. rita Geir H. Haarde og Ingi Björn Albertsson en 2. minni hl., hv. þm. Kristín Halldórsdóttir, skilar sérstöku áliti.
    Með þessu áliti fylgja jafnframt tvö fylgiskjöl, í fyrsta lagi ályktun skattanefndar atvinnuveganna um fyrirhugaðar skattabreytingar og í öðru lagi útreikningar hagfræðinga ASÍ, VSÍ og BSRB af áhrifum hins upphaflega frv. á tekjuskatta manna. Þau fylgiskjöl hafa hins vegar ekki enn verið prentuð og þeim því ekki dreift í deildinni, en ég féllst á að nál. yrði dreift engu að síður og í trausti þess að álitið í heild sinni með fylgiskjölum lægi prentað fyrir í fyrramálið. --- Forseti. Mætti ég núna ítreka ósk mína um að einhver
ráðherra Alþfl. mæti hér. ( Forseti: Það hefur verið orðið við óskum um að reyna að hafa uppi á ráðherrum Alþfl. og hæstv. viðskrh. mun vera á leiðinni.)
    Ég vil í örfáum orðum, herra forseti, og ætlaði nú reyndar að beina máli mínu ekki síður til ráðherra Alþfl., fara örlítið nánar yfir þau atriði sem gerð eru að umtalsefni í nál. en það er auðvitað ekkert vafamál að í því eru mjög harðar ásakanir á hæstv. fjmrh. fyrir vinnubrögð í þessu máli, fyrir undirbúning hans og þá kynningu sem hann hefur látið frá sér fara á efni frv. Ég tel að það sé stórkostlega ámælisvert að kynna þetta frv. með þeim hætti sem gert var. Það á bæði við um þá kynningu sem fram kom í grg., framsöguræðu og kynningu hæstv. ráðherra á frv. í fjölmiðlum. Ég er fyrst og fremst að tala um tekjuskatta einstaklinga, en það var látið í veðri vaka í þessari kynningu að ekki væri um að ræða neina breytingu skatta hjá þorra almennings. Og ég verð að viðurkenna það að ég var nokkra daga að átta mig á því hversu lymskuleg aðferð var viðhöfð þarna til þess að slá ryki í augun á fólki og telja fólki trú um að ekki væri verið að þyngja skatta hjá fólki með lægri tekjur og jafnvel ekki fólki með miðlungstekjur eins og segir á einum stað í grg. frv.
    Ég tel að það sé stórkostlega vítavert að leggja fram frv. um skattamál, tekjuskatta einstaklinga, og bera það ekki saman við gildandi lög um það efni. Hæstv. ráðherra hefur síðan gert sig breiðan á sjónvarpsskerminum og sagt að það sé ekki hægt að miða við einhver loforð sem fyrrv. ríkisstjórn hefur gefið. Það eru bara engin loforð í gangi um þetta mál.

Það eru gildandi lög í landinu sem verið er að tala um. Það sem hins vegar hæstv. ráðherra hefur leyft sér að gera við kynningu á málinu er að bera saman skattbyrði ársins í ár og áætlaða skattbyrði frv. og kemst að þeirri niðurstöðu að þá sé skattbyrði ekki aukin á fólki með 60 þús. kr. mánaðarlaun eða minna.
    En málið snýst bara ekkert um þetta. Það kemur á daginn þegar farið er að skoða þetta mál betur, og ég viðurkenni að mér yfirsást þetta við 1. umr., að það er ekki verið að miða við það sem stendur í gildandi lögum. Og hvernig í ósköpunum dettur mönnum í hug að bjóða Alþingi upp á þessa ósvífni að koma með samanburð sem er svona villandi og svona mikil fölsun? Ég skal aðeins fara yfir það með hvaða hætti þetta er gert. Þessar blekkingar grundvallast á því að í 21. og 22. gr. frv. er svo lítið ber á lætt brtt. við núverandi lög um að kippa úr sambandi viðmiðun ýmissa stærða við lánskjaravísitölu en í stað þess skuli tekin upp viðmiðun við skattavísitölu sem yrði þá ákveðin á hverju ári.
    Ég vakti reyndar athygli á því við 1. umr. að um þetta atriði segir nánast ekkert í grg. og það eru engin efnisrök færð fyrir þessari breytingu þannig að vafalaust hefur mörgum sýnst hún vera býsna sakleysisleg þó að á daginn komi síðan allt, allt annað því það er á grundvelli þessarar breytingar sem hinum miklu blekkingum um efnisinnihald frv., raunverulegt innihald þess, er haldið fram.
    Í 21. og 22. gr. er sem sagt gert ráð fyrir því að hætta að miða persónuafslátt, sjómannaafslátt, húsnæðisbætur, barnabætur og barnabótaauka við lánskjaravísitölu eins og gert er ráð fyrir í núgildandi lögum, en hins vegar segir hér í skýringum með þessum greinum, með leyfi forseta:
    ,,Skattvísitala skal ákveðin í fjárlögum ár hvert. Þetta þýðir að fjárhæð þessara afslátta og bóta verða ákveðnar í tengslum við fjárlagaafgreiðslu hverju sinni í samræmi við almenna stefnumörkun stjórnvalda í ríkisfjármálum.``
    Hins vegar eru engar efnisútskýringar á því hvers vegna lánskjaravísitalan sé óbrúkleg í þessum tilgangi og ekkert kom fram um þetta mál í framsöguræðu hæstv. ráðherra og ekkert kom fram um þetta mál í máli hans þegar hann svaraði spurningum manna við 1. umr. Það er síðan ekki fyrr en farið er að grennslast fyrir um þetta nánar í fjh.- og viðskn. og þegar aðilar úti í þjóðfélaginu, eins og samtök vinnumarkaðarins, fara að senda frá sér útreikninga sem það kemur í ljós hvað raunverulega hangir þarna á spýtunni. Og það sem hangir á þessari spýtu er það að það er verið að snuða almenning um þá hækkun persónuafsláttarins sem núgildandi lög gera ráð fyrir og þá minnkandi skattbyrði sem menn gengu að opnum augum í þeim lögum sem nú gilda þegar tekjur fara minnkandi.
    Nú koma hins vegar þeir háu herrar sem ráða ferðinni á stjórnarheimilinu, og hafa beitt fyrir sig hv. formanni fjh.- og viðskn., og segja: Ja, við erum hér með brtt. um að hækka persónuafsláttinn upp í þá krónutölu sem hefði verið gert ráð fyrir í gildandi

lögum. Þar með viðurkenna þeir auðvitað óbeint á sig skömmina að því leyti til að þeir telja eðlilegt að því er virðist nú eftir á að fara með persónuafsláttinn upp í það sem óbreytt lög hefðu gert ráð fyrir. En þá gleyma þeir bara alveg óvart hinu lykilatriðinu sem ákveður skattfrelsismörkin og það er auðvitað álagningarhlutfallið sjálft vegna þess að skattfrelsismörkin munu lækka samkvæmt frv. um þó nokkrar fjárhæðir þó að þau að vísu hækki um heilar 65 kr. á mánuði eftir að þessi brtt. er fram komin og af því sjá þeir nú sérstaka ástæðu til þess að stæra sig, talsmenn meiri hl. í fjh.- og viðskn.
    Ég tel að hér hafi verið gerð tilraun til þess að koma í gegnum þingið
veigamiklum skatthækkunum með blekkingum sem ég veit ekki til að eigi sinn líka. Hér er um að ræða það að upp er stillt dæmum þar sem skattbyrðin í ár er borin saman við skattbyrði næsta árs samkvæmt frv. og sagt: Ja, ef skattbyrði þessa árs hefði verið flutt yfir á næsta ár væri ekki nema um svo og svo miklar breytingar að ræða og raunverulega ekki hækkun nema fyrir hluta almennings, þegar beinlínis er gert ráð fyrir því í núgildandi lögum að skattbyrðin eigi að lækka þegar tekjur fara lækkandi. Engin grein gerð fyrir þessu, engar útskýringar gefnar á þessu. Ég verð að segja það að ég tel að þetta séu vítaverðar blekkingar og falsanir sem þarna hafa verið bornar á borð fyrir þingheim og almenning allan.
    Ég lét þess getið áðan, herra forseti, að við sem stöndum að þessu nál. höfðum ákveðið að birta sem fylgiskjal útreikninga frá hagfræðingum aðila vinnumarkaðarins og þar geta menn séð svart á hvítu hver hinn raunverulegi og eðlilegi samanburður er í þessu frv. við það sem ella hefði verið því að þegar menn eru að bera fram skattafrv. eiga menn að bera áhrif frv. á skattbyrði saman við það ástand sem hefði verið að óbreyttum lögum. Annað er auðvitað vítaverð blekking.
    Ég vil hins vegar taka það fram, virðulegi forseti, að ég er ekki að segja með þessu að ekki megi breyta skattalögum þeim, sem hér hafa verið samþykkt og eru komin til framkvæmda á þessu ári, undir nokkrum kringumstæðum til íþyngingar. Auðvitað dettur engum manni í hug að halda því fram. Ef aðstæður eru hins vegar þannig að menn telji að það sé nauðsynlegt er auðvitað ekki annað eðlilegt en að menn komi þá fram og segi fullum fetum hvað þeir eru að gera.
    Ég hefði haldið að hæstv. fjmrh. gæti talað fullkomlega uppréttur fyrir þeim skoðunum sínum að hér þyrfti að hækka skatta án þess að viðhafa blekkingar af þessu tagi sem ég tel að hér hafi verið flett ofan af. Við vitum það, þingmenn, að það er skoðun Alþb. yfirleitt að hafa beri skattana hærri í landinu en þeir eru núna. Að koma hins vegar og segja að ekki sé verið að hækka skatta þegar verið er að gera það í jafnríkum mæli og hér er verið að tala um, það er auðvitað bara ófyrirgefanleg og vítaverð framkoma. Ég tel að hæstv. fjmrh. hefði verið maður að meiri ef hann hefði lagt fyrir þessar upplýsingar sínar og þessar skattahækkunarhugmyndir og sagt: Ja,

ástandið er þannig núna að okkar mati --- ég tek fram að ég er ekki sammála því mati --- að það er óhjákvæmilegt að hækka skatta á öllum landsmönnum og færa niður skattfrelsismörkin. Þetta hefði verið heiðarlegur málflutningur og það hefði enginn getað amast við því að fjmrh. hefði þessar skoðanir og ríkisstjórnin á landsmálunum. Það er hins vegar gersamlega fráleit framkoma að halda því fram að ekki sé verið að þyngja skattana á fólki þegar það er gert í svo ríkum mæli sem gert er miðað við gildandi lög. Ég tel að þetta sé algerlega óafsakanlegt, jafnvel þó að menn hafi þá skoðun að skattana eigi að hækka miðað við núverandi aðstæður.
    Það var talið, herra forseti, eitt af hinum mikilvægari atriðum í staðgreiðslukerfi skatta að inn í það væri byggð ákveðin sjálfvirkni að því er varðar breytingar á skattbyrði með tilliti til sveiflna í tekjum manna. Þegar þetta var sett inn í lögin á sínum tíma gengu menn að því með opnum augum að þetta kynni að þýða minnkandi tekjur fyrir ríkissjóð á tímum samdráttar, hins vegar vaxandi tekjur fyrir ríkissjóð á tímum þenslu í þjóðfélaginu.
    Það var líka um það talað á sínum tíma, herra forseti, að hið nýja staðgreiðslukerfi gæfi betri möguleika til hagstjórnar en áður var í eftirágreiddum sköttum vegna þess að hægt væri að koma fram breytingum á sköttum með áhrifum sem kæmu fram strax ef menn vildu annaðhvort hækka skattana með tilliti til efnahagsástands eða lækka þá. Það liggur því alveg fyrir að í þessu kerfi eru slíkir möguleikar og eins og ég sagði áðan dettur mér ekki í hug að afneita því að menn geti notað slíka möguleika. Ágreiningurinn stendur hins vegar um það hvort í fyrsta lagi er þörf fyrir slíka beitingu þessara möguleika við núverandi aðstæður og í öðru lagi hvort þetta sé kynnt og frá þessu sagt með heiðarlegum hætti. --- Mætti ég biðja um að gert sé fundarhlé á fundinum hér í ráðherraröðinni meðan ég lýk máli mínu. ( Forseti: Forseti tekur undir tilmæli ræðumanns um að menn hlýði á mál hans.) --- Ég er því ekki með þessum orðum að halda því fram að sú skattprósenta sem ákveðin var í staðgreiðslukerfi skatta og í tekjuskatti á sínum tíma eigi að vera óumbreytanleg, henni megi ekki breyta, hvorki upp né niður. Ágreiningurinn snýst sem sagt um það hvort nauðsynlegt sé við núverandi aðstæður að notfæra sér þessar heimildir og svo hitt, sem snýr að málatilbúnaðinum og vinnubrögðunum, hvort sú breyting sem hér er í uppsiglingu hafi verið kynnt með heiðarlegum og eðlilegum hætti og ég tel mig hafa sýnt fram á það að svo var alls ekki.
    Ég ætla nú til viðbótar, herra forseti, að segja örfá orð um hina tvo meginþætti frv., þ.e. tekjuskatta lögaðila og eignarskatta einstaklinga. Í því frv. sem fyrir liggur eru tíndir til svo að segja allir þeir þættir sem e.t.v. er hugsanlegt að geti leitt til hærri tekjuskatta hjá fyrirtækjum sem á annað
borð skila einhverjum hagnaði. Nú hefur að vísu margverið sýnt fram á það að fyrirtæki á Íslandi greiða miklu meiri skatta en bara tekjuskatta og er

ástæðulaust að rekja það enn frekar þó að hæstv. fjmrh. tönnlist á því að fá fyrirtæki greiði tekjuskatt. Hins vegar er svo langt seilst í þeim tillögum sem hér eru gerðar að það vekur mikla undrun að t.d. ákvæði sem á sínum tíma voru sett inn í tekjuskattslögin til þess að hreinsa þar út eldri ákvæði sem illframkvæmanleg voru skuli nú tekin inn á nýjan leik eins og gert er í 4. og 5. gr. Þar er fyrirtækjum samkvæmt orðanna hljóðan gert að afskrifa alls kyns smávarning sem þau nota við starfsemi sína og þeim meinað að færa til gjalda á einu ári smáhluti undir tilteknu verðmæti eða með tiltölulega skamman endingartíma.
    Ég verð að segja að ég botna ekkert í því hvað fyrir mönnum vakir með svona löguðu, ekki síst þegar gert er ráð fyrir að þessi ákvæði séu afturvirk og eigi að ná til þeirra sem hafa staðið í fyrirtækjarekstri og fært bókhald sitt samkvæmt þessum heimildum á þessu ári, enda hafa engar skýringar komið fram á þessu í nefndarstarfinu né annars staðar aðrar en þær að það þurfi að afla peninga í ríkissjóð og þetta séu heimildir sem einhver hafi hugsanlega einhvern tíma misnotað.
    Ég skal ekki hafa mörg orð um fyrningarákvæðin í þessu frv. Ég hef gert það, bæði við 1. umr. og í nál., en ég vek enn og aftur athygli á því að þessar breytingar sem hér er verið að gera tillögu um eru gersamlega órökstuddar. Það er engin tilraun gerð til þess að sýna fram á nein efnisleg rök sem leiða til þess eða gætu leitt til þess að það sé rétt að þrengja heimildir til afskrifta. Það má vel vera að einhvers staðar í þessum afskriftaheimildum sé svo ástatt að þessar heimildir séu fullrúmar. Ég skal ekkert taka fyrir það. En það er auðvitað ekki hægt að samþykkja svona breytingar án þess að fá einhver rök, einhver dæmi, einhvern rökstuðning fyrir því að þetta sé of rúmt og það beri að þrengja þessar heimildir. Því er bara engan veginn að heilsa.
    Að því er varðar síðan ákvæðið um lánastarfsemi í hlutafélögum þá var að vísu gerð heiðarleg tilraun í hv. fjh.- og viðskn. af formanni hennar til þess að setja þar inn ákvæði sem yrði þess valdandi að ekki væri tekið fyrir slík lán ef þau væru með eðlilegum vöxtum, en formaðurinn dró þá tillögu til baka. Hún var af einhverjum ástæðum ekki talin framkvæmanleg þannig að allar athugasemdir sem gerðar hafa verið af minni hálfu við þessa grein standa óbreyttar.
    Að því er varðar 9. gr. og möguleika fyrirtækja til þess að yfirtaka rekstrartap hjá öðrum aðilum gerir meiri hl. brtt. sem er í átt við þá athugasemd sem ég kom með við 1. umr. um það að skilgreiningin á hugtakinu ,,sams konar rekstur`` væri alls ekki á hreinu og lægi ekki fyrir þannig að því hefur nú verið breytt. Engu að síður var bent á það í nefndinni að þessi ákvæði gætu komið sér illa á ýmsum stöðum þó að ég taki hins vegar undir þá meginhugsun sem þarna liggur að baki að það eigi að koma í veg fyrir að menn geti eingöngu í skattalegum tilgangi keypt upp gjaldþrota fyrirtæki eða rekstrartap aðila sem hafa hætt rekstri.

    Það verður ekki sagt um virðulegan meiri hl. í fjh.- og viðskn. að hann hafi komist til vits og ára í öllum atriðum. Hann gerir hér eina tillögu um að fella niður eina grein í heilu lagi og það er 2. gr. frv. sem kvað á um að fella niður heimildir til frádráttar hjá fyrirtækjum sem leggja fé í menningar-, vísinda- og líknarstarfsemi. Það er því engu líkara en að þær brýningar sem hér voru uppi við 1. umr. um þetta atriði hafi hrinið og geri ég þá ráð fyrir að hæstv. ráðherrar Alþfl., minnugir baráttu sinnar á síðasta þingi, hafi komið því til leiðar að þetta ákvæði væri fellt niður á nýjan leik. (Gripið fram í.) Þó það nú væri, segir hæstv. viðskrh. og mætti nú gjarnan beita áhrifum sínum víðar í þessum skattamálum öllum saman fyrst allt í einu er farið að hlusta á Alþfl. í þessum málum. (Gripið fram í.) Alþfl. hefur verið barinn niður í skattamálum í þessari ríkisstjórn hvað eftir annað eins og sýnt er og greinilegt í hverju málinu á fætur öðru af oddvita ríkisstjórnarinnar í efnahags- og fjármálum, hæstv. núv. fjmrh., og það svo að hæstv. fyrrv. fjmrh. lætur ekki sjá sig hér í þinginu þegar skattamál eru til umræðu og telur sér þessi mál nú með öllu óviðkomandi þó að mjög forvitnilegt væri að heyra í honum um eitt og annað sem hér hefur verið á döfinni. Ég nenni hins vegar ekki að elta ólar við hann um hans ferðir og geri ekki athugasemdir við þær á meðan annar ráðherra úr hans flokki er hér viðstaddur.
    Í heild sinni, herra forseti, er það skoðun okkar í 1. minni hl. að breytingarnar sem hér eru lagðar til á sköttum fyrirtækja séu óviðunandi, þær gangi allt of langt til að íþyngja fyrirtækjum, þær séu órökréttar og þeim beri þess vegna að hafna. Ég vakti athygli á einu atriði í 1. umr. sem kemur fram í nál. og ég skal ekki orðlengja um, en það er sú blekking að eingöngu sé verið að hækka skatt fyrirtækjanna úr 48% í 50%. Hjá þeim fyrirtækjum sem hagnýta sér heimildir til að leggja í fjárfestingarsjóði er skattahækkunin mun meiri.
    Ég skal ekki orðlengja frekar um þennan þátt frv., herra forseti, en kem þá
að eignarsköttum einstaklinga sem hér hafa verið ræddir allnokkuð að undanförnu, bæði í tengslum við þetta mál og eins í tengslum við frv. um hækkun skatts á skrifstofu- og verslunarhúsnæði þar sem gert er ráð fyrir tvöföldun skatthlutfallsins. Það runnu reyndar tvær grímur á meiri hl. í fjh.- og viðskn. í þessu efni þegar ég og fleiri höfðum í nefndinni sýnt fram á hvers konar gríðarlegar greiðslur verður um að ræða hjá fólki samkvæmt því frv. sem upphaflega var lagt fram. Þeim blöskraði svo, þeim heiðursmönnum sem sitja í nefndinni að þeir ákváðu upp á sitt eindæmi að hækka viðmiðunarmörkin í hinum svokallaða stóreignaskatti úr 6 millj. kr. upp í 7 millj. kr. og meira að segja án þess að bera það undir fjmrh. Það kom mér mest á óvart að þeir skyldu treysta sér til þess. Þeir höfðu að vísu fögur orð um að bera þetta undir hann, og hafa eflaust gert, eða kannski hafa þeir tilkynnt honum að þeir ætluðu að hafa þetta svona. En þeim var sem sé öllum lokið

þegar sýnt var fram á að einstæður aðili sem býr í skuldlausri fasteign upp á kannski 7 millj. kr. að verðmæti þarf að borga vel á annan tug þúsunda á mánuði til þess að geta staðið undir eignarsköttum af þessari íbúð sinni. Þegar þeim var sýnt fram á þetta ákváðu þeir að hækka viðmiðunarmörkin úr 6 millj. kr. upp í 7 millj. kr. Það er einfalt að sýna fram á að þetta stóreignaþrep hefur auðvitað mikil áhrif á þá sem þar eru fyrir ofan eins og t.d. einstæða aðila sem búa í 8 millj. kr. fasteignum, og ekki er óalgengt að t.d. ekkjur og eldra fólk hér í Reykjavík eigi slíkar eignir. Slíkt dæmi er einmitt í nefndarálitinu og skal ég ekki rekja það frekar.
    Ég tel að eignarskattar af íbúðarhúsnæði eða fasteignum fólks séu komnir út í algjörar öfgar þegar fólk þarf að greiða á milli 10 og 20 þús. kr. á mánuði fyrir það eitt að búa í íbúðum sínum. ( Menntmrh.: Davíð innheimtir líka.) Ég er með fasteignagjöld borgarinnar inni í þessu, hæstv. menntmrh. Eins og kemur fram í nefndarálitinu eru þetta samanlögð eignagjöld til ríkis og borgar sem hér er um að ræða. Hins vegar verður engin hækkun á fasteignagjöldum borgarinnar heldur er eingöngu um að ræða hækkun á eignarsköttum ríkisins. Þess vegna er rétt að geta þess, í tilefni af frammíkalli menntmrh., að borgin, eins og önnur sveitarfélög, hefur ýmsar heimildir til þess að falla frá og lækka fasteignagjöld hjá eldra fólki þegar sérstaklega er ástatt, en slíkar heimildir eru ekki í eignarskatti ríkisins.
    Það má auðvitað segja sem svo að það hafi verið jákvæð viðleitni hjá meiri hl. fjh.- og viðskn. að hækka þessi mörk. Það má kannski orða það þannig að það er þá ekki til einskis barist hér í þingsölum og í þingnefndum þegar hægt er að koma hér smáviti fyrir menn, þegar þeim blöskrar svo mjög að það gengur alveg fram af þeim hve skattahækkanagleðin er mikil hjá ráðherrum og ríkisstjórn.
    Við í minni hl. teljum hins vegar að þessar hækkanir ofan á aðrar skattahækkanir sem verið er að leggja til séu það miklar að á þær verði ekki fallist. Við teljum að þær hugmyndir sem liggja að baki séu byggðar á misskilningi og við höfnum þeim. Við teljum að sú ávöxtunarkrafa sem að baki þessu liggur og hin óbeina húsaleiga sem mönnum er gert að greiða sjálfum sér með þessum sköttum sé svo há að hún sé komið út yfir öll eðlileg mörk, og hafi kannski verið raunar fyrir þessa hækkun eins og kemur fram í nefndarálitinu. Við teljum þess vegna að þessi kafli frv. sé ekki ásættanlegur frekar en nær því allt annað í frv.
    Að lokum vil ég fjalla um þá tilraun til fölsunar sem gerð var í frv. sjálfu þegar látið var í veðri vaka að hæsta eignarskattsþrepið yrði aðeins 1,5%, en þannig hljóðaði frv. í upphafi. Það var athyglisvert að hæstv. fjmrh. vék sér undan að svara beinni spurningu frá 1. þm. Suðurl. við 1. umr. um þetta mál og gerði það ekki fyrr en í sæti sínu þegar sá sem hér stendur gekk á hann um það atriði. Það átti sem sagt greinilega að reyna að komast upp með þetta þó að það hafi komið ljóslega fram í fjh.- og viðskn. hjá

starfsmönnum ráðuneytisins og áður en 1. umr. fór fram að hér átti að standa 2,7%. Það var meiningin. Hins vegar ber öllum lögfróðum mönnum saman um það og öllum sem um þetta hafa fjallað að textinn, eins og hann var upphaflega fram lagður, hlyti að þýða að þrepið væri 1,5 og hækkunin væri úr 1,2% upp í 1,5%.
    Við þessu er gengist í brtt. meiri hl. og orðalagið er þannig að það tekur af allan vafa, þó svo að sögur hermi að fjmrh. sjálfur hafi lagt blátt bann við því að talan 2,7% fengi að sjást í lagatextanum, hann vildi frekar hafa 1,2% + 1,5% en 2,7%. Hann verður sjálfur að eiga það fyrir sig og þær útskýringar sem þar kunna að liggja að baki.
    Ég ætla ekki að hafa fleiri orð um eignarskatta af þessu tilefni, herra forseti, enda styttist væntanlega í matarhlé. Aðeins eitt að lokum um þetta mál sem varðar almennt prinsipp, almennt grundvallarsjónarmið í skattlagningu og það er afturvirkni einstakra ákvæða í frv.
    Við hv. þm. Ingi Björn Albertsson gerum það að umtalsefni í okkar niðurstöðu að það sé gjörsamlega óeðlilegt og siðlaust að láta einstakar greinar frv. virka aftur í tímann eins og ætlunin er. Það er reyndar athyglisverð tilviljun að það skuli einmitt vera þeir þrír stjórnarflokkar, sem nú sitja við völd,
sem glímdu við dómstóla um afturvirkni skatta þegar þeir voru síðast við völd á árinu 1979 í tilefni af sköttum sem þeir lögðu á afturvirkt haustið 1978. Í því dómsmáli sluppu stjórnarflokkarnir naumlega fyrir horn vegna þess að Hæstiréttur taldi nánast að þó að þetta gæti gengið í eitt skipti þá mætti aldrei gera þetta aftur.
    Það er þegar upplýst að einstakir aðilar ætla að höfða mál til að láta á þessi ákvæði reyna ef þau verða að lögum. Þá mundi ég í mesta bróðerni mæla með því við ráðherrana hæstv. að þeir tækju frekar þessi ákvæði út úr frv. í stað þess að láta á það reyna fyrir dómstólum á nýjan leik. Ég tel að það væri affarasælast fyrir alla aðila að gera það í stað þess að fara í veigamikil málaferli út af ákvæðum sem auðvelt er að breyta hér í þinginu. Ef menn vilja það er það auðvitað sjálfsagt því ég efast ekki um að þeir aðilar eru til í þjóðfélaginu sem ekki munu sætta sig við slíkt prinsipp-brot í þessum efnum. Það liggur líka fyrir að hjá dómstólum í landinu hefur verið ákveðin tilhneiging á undanförnum árum í þá átt að dæma í ríkari mæli með hinum almenna borgara á grundvelli almennra mannréttinda og almennra stjórnarskrár-prinsippa í stað þess að dæma ríkinu í hag sí og æ eins og orð lá á að dómstólunum í landinu hætti til. Ég tel að það geti verið varhugavert fyrir hæstv. ríkisstjórn að halda inn á þessa braut en það verður þá ekki sagt að þeir hafi ekki verið varaðir við ef þeir halda þessu til streitu og koma þessum ákvæðum í gegnum þingið. Ég tel að þarna séu á ferðinni mjög varhugaverð ákvæði sem jaðra við brot á stjórnarskránni.
    Ég skal ekki lengja þetta meira, herra forseti. Ég hef komið öllum mínum sjónarmiðum um þau atriði

sem eru í frv. á framfæri í nefndaráliti okkar minnihlutamanna og hér í þessari ræðu og sé ekki ástæðu til að hafa þessi orð fleiri. Ég vil rétt endurtaka það í lokin að ég tel að hæstv. fjmrh. hafi því miður gert sig sekan um mjög alvarlegar blekkingar og falsanir í kynningu sinni á áhrifum frv. á tekjuskatt einstaklinga. Ég hefði gjarnan viljað að hann léti nokkur orð falla um það efni í þessari umræðu vegna þess að ég tel gengið úr skugga um það, tel mig hafa gert það í nefndarstarfinu, að hér var gengið til leiks með opin augu og engin mistök á ferðinni. Ég tel að þetta sé vítaverð framkoma gagnvart þingheimi og gagnvart almenningi og þeim sem borga skattana hér í þessu landi.
    Ég hef lokið máli mínu að sinni, herra forseti.