Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Það frv. sem hér er um að ræða hefur þegar fengið ítarlega umræðu í hv. efri deild. Frv. gengur í fyrsta lagi út á það að fresta þeim breytingum á fjármögnun framhaldsskólanna sem gert er ráð fyrir í framhaldsskólalögunum. Þeim breytingum var frestað strax við gildistöku laganna til 1. jan. 1989 og frv. gengur út á að þessum köflum verði enn frestað til 1. jan. 1990 fyrst og fremst vegna þess að þetta mál er hluti af þeim umræðum sem nú standa yfir og fram hafa farið um kostnaðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Gert er ráð fyrir því að þegar þau mál hafa verið afgreidd taki ríkið við rekstri framhaldsskólanna af sveitarfélögunum.
Í annan stað er gert ráð fyrir því í frv. að ákvæðum framhaldsskólalaganna um skólanefndir, 7. og 8. gr., verði einnig frestað og að þær nefndir sem til þessa hafa starfað sem skólanefndir framhaldsskóla fái áframhaldandi umboð til 1. jan. 1990.
Það er ljóst að fyrri þáttur þessa máls, þ.e. sá sem snertir fjármögnunina, er með þeim hætti að brýnt er að afgreiða hann fyrir áramót. Ég hef hins vegar orðið var við að örðugt er að ná um það samstöðu að á síðarnefnda þættinum, sem lýtur að skólanefndunum, verði tekið. Ég hef því fyrir mitt leyti fallist á, ef það gæti orðið til að greiða fyrir framgangi þessa máls og annarra, að fjármögnunarþátturinn verði afgreiddur nú þegar en afstöðunni til skólanefndanna og afgreiðslu þess máls verði frestað. Jafnvel þó að það yrði ekki afgreitt fyrir hátíðarnar er ljóst að það mál hlýtur að koma hér til meðferðar strax eftir áramót eða þegar þingið fjallar um þessi mál á nýjan leik.
Auk þeirra mála sem snerta skólanefndirnar er menntmrn. með í gangi undirbúning að vissum breytingum á framhaldsskólalögunum, m.a. því sem snertir rekstrarframlög til framhaldsskólanna. Niðurstaða nefndar sem fjallað hefur um þessi mál og reglugerðarútgáfu á grundvelli framhaldsskólalaganna er að núverandi kostnaðarákvæði þeirra séu óbrúkleg eins og þau líta út og því óhjákvæmilegt að lögunum verði breytt á þessu þingi.
Herra forseti. Ég tel ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta mál frekar hér að sinni og legg til að málinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. menntmn.