Sighvatur Björgvinsson:
Herra forseti. Ég vísa til mjög glöggra skýringa hv. þm. Ragnars Arnalds á þessu máli og mig furðar að hver þingmaður landsbyggðarinnar á fætur öðrum skuli láta þetta mál fram hjá sér fara og engin afskipti vilja hafa af afgreiðslu þess. Ég segi nei.