Tekjuskattur og eignarskattur
Miðvikudaginn 21. desember 1988


     Geir H. Haarde:
    Herra forseti. Ég vek athygli á því að þingheimur er hér að samþykkja afturvirk ákvæði í skattalögum að hluta til. Þetta gildistökuákvæði er að hluta til með afturvirkum ákvæðum. Slíkt er að sjálfsögðu algerlega óviðunandi. Við sjálfstæðismenn getum ekki borið ábyrgð á slíku ákvæði í lögum og greiðum ekki atkvæði í þessari atkvæðagreiðslu. Ég greiði ekki atkvæði.