Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
Virðulegur forseti. Þeirri fyrirspurn sem hv. þm. bar fram og lýsti í ræðu sinni áðan að hann hefði ítrekað við umræðurnar og snertir afstöðu mína til skattlagningar á matvæli tel ég að ég hafi þegar svarað á þessu þingi með því að vísa til þess að þeir þættir koma til umfjöllunar við endurskoðun laganna um virðisaukaskatt. Eins og fram hefur komið í þessari hv. deild og hv. Ed. er ætlunin að þeir flokkar sem ekki eiga aðild að ríkisstjórninni eigi einnig aðild að þeirri endurskoðun og vænti ég þess að þar gefist rækilegri og betri vettvangur til að fjalla um það mál en hér.