Friðrik Sophusson:
Virðulegur forseti. Það er óþarfi að hafa mörg orð um þetta frv. sem hér er til 3. umr. Margt hefur verið sagt og bent á hvers konar árás er hér á ferðinni á kjör heimila og fyrirtækjanna í landinu en allt hefur komið fyrir ekki. Hæstv. ríkisstjórn undir forustu hæstv. fjmrh. hefur haft sitt fram og komið hefur í ljós að nokkur fylgisaukning hefur orðið í stjórnarliðinu þegar lagðar voru enn nýjar skattaálögur á almenning.
Það er óþarfi að tína upp öll þau atriði sem hv. stjórnarandstæðingar hafa gert að umræðuefni og gert ágætlega, m.a. í nál. 1. minni hl., sem skipaður var þeim hv. þm. Geir H. Haarde og Inga Birni Albertssyni. Það var mjög ítarlegt og gott nál. Ég tek heils hugar undir það að líklega hefur sjaldan ef nokkurn tíma verið reynt að beita jafnmiklum blekkingum eins og gert var í þessu máli af hálfu hæstv. fjmrh., svo miklum að sjálfsagt hlýtur hann ævarandi skömm af. Í því sambandi þarf ekki að rifja upp nema eitt dæmi. Það er þegar hann heldur því fram að verið sé að hækka tekjuskattshlutfall fyrirtækja til samræmis við hækkun á tekjuskattshlutfalli einstaklinga um 2 prósentustig eins og gert var ráð fyrir í upphaflegu frv. En þegar betur er að gætt kemur í ljós að auðvitað er hækkunin mun meiri vegna þess að það hlutfall af hreinum tekjum sem leggja má í fjárfestingarsjóð er lækkað úr 30% í 15%.
Það hlýtur að teljast furðulegt að Alþfl. skuli láta teyma sig blindan í þá göngu sem hafin er undir forustu hæstv. fjmrh., ekki síst þegar það er rifjað upp að á síðasta ári þegar hlutfall hreins ágóða sem mátti leggja í fjárfestingarsjóði var lækkað um 10 prósentustig, úr 40% í 30%, þá var það gert um leið og tekjuskattshlutfallið var lækkað en ekki hækkað. Þannig hafa þeir hv. alþýðuflokksmenn --- sem gjarnan guma af því að það eigi að heiðra þá sem hafa starfað í fyrirtækjum af fyrirhyggju og ráðdeildarsemi og skynsemi, enn fremur að leita til þeirra og reyna að koma, ja, að þeirra áliti a.m.k., vitinu fyrir þá sem hafa fjárfest umfram getu --- nú hafa þeir tekið þátt í þeim leik með hæstv. fjmrh. sem öllu ræður í efnahagsstefnu hæstv. ríkisstjórnar, ef hægt er að kalla hana stefnu, og þar með jarðsett sínar fögru yfirlýsingar frá fyrri tíð.
Það sem þó öðru fremur rekur mig hér upp í ræðustólinn eru orð sem voru látin falla við atkvæðaskýringu þegar greidd voru atkvæði um brtt. á þskj. 341, en það var brtt. frá hv. þm. Hreggviði Jónssyni og Albert Guðmundssyni. Hv. þm. Ragnar Arnalds og Sighvatur Björgvinsson stóðu upp fullir vandlætingar og töldu að síðari hluti þessarar tillögu lýsti þeim skoðunum að utanbæjarfólk ætti að greiða hærri skatta en þeir sem búa í Reykjavík eða á Reykjanesi. Hér er um mjög alvarlegan misskilning að ræða sem ég held, virðulegur forseti, að nauðsynlegt sé að leiðrétta því að auðvitað eru allir skattar greiddir af launum eða tekjum þeirra sem skattana þurfa að greiða. Og það er í meira lagi ósanngjarnt að ætlast
til þess að á þeim svæðum, þar sem húseignir eru mjög dýrar og oft erfiðara að komast yfir húsnæði, skuli fólk verða skattlagt af launum sínum jafnvel helmingi meira en þeir sem hafa sömu laun og búa í nákvæmlega jafnstóru húsnæði annars staðar á landinu.
Við sjálfstæðismenn sátum hjá við atkvæðagreiðsluna um þessa tillögu. Við töldum ekki ástæðu til að breyta frá því að hafa eignarskatta tiltölulega hógværa. Þær kasta tólfunum röksemdir hv. þm. Ragnars Arnalds og Sighvats Björgvinssonar af þeirri ástæðu sem ég hef nú nefnt, en hún er sú að menn sem búa í nákvæmlega jafnstóru húsnæði, jafnvel allt sitt líf, þurfa að greiða hærri skatta ef þeir búa hér á þeim svæðum þar sem fasteignamat er hærra. Þetta verður auðvitað þeim mun meiri mismunun sem eignarskattar hækka. Nú kynni einhver að segja að það sé hægt að breyta álagningu eins og gert er í fasteignagjöldum til viðkomandi sveitarfélaga. En hér er ekki slíku til að dreifa því að hér er um eignarskatta að ræða sem renna til ríkisins.
Þetta, virðulegur forseti, vildi ég fá að láta koma hér fram við 3. umr. þannig að öll rök komist til skila en hv. alþm. sitji ekki undir þeim áróðri sem kom fram hjá hv. þm. og ég hef nú þegar nefnt.
Ég sé síðan ekki ástæðu til þess, enn á ný, að lýsa yfir þeim vonbrigðum sem hljóta að vera í brjóstum allra þeirra sem töldu að ríkissjóður ætti að rifa seglin eins og almenningur og fyrirtæki. Það hefur komið í ljós að hæstv. ríkisstjórn ætlar sér með stefnu sinni eða stefnuleysi, aðgerðarleysi í atvinnumálum, að koma fyrirtækjunum á kné. Nú skulu þau fyrirtæki, sem hafa haft þá fyrirhyggju að fjárfesta ekki en leggja í sjóð, hundelt og enn á ný er hert á skattpíningarstefnunni gagnvart heimilunum í landinu. Þetta hefur komið skýrt í ljós. Hv. stjórnarsinnar hafa enga afsökun. Þetta hafa þeir gert vitandi vits og við það situr að sjálfsögðu á ábyrgð þeirra sem nú sitja að völdum hér á landi.
Að svo mæltu, virðulegur forseti, læt ég í ljós þá veiku von að hv. þm. ríkisstjórnarinnar sjái að sér og hjálpi til við að fella þetta frv. nú við 3. umr.