Tekjuskattur og eignarskattur
Miðvikudaginn 21. desember 1988

     Forseti (Kjartan Jóhannsson):
    Úr því að þessari umræðu er ekki lokið, þá vill forseti fresta umræðu um þetta mál vegna þess að nú er farið að ríða á að geta afgreitt til Ed. það sem þegar er lokið umræðu um og mundi þá fresta umræðum um þetta mál að sinni. ( ÞP: Þetta þarf aðeins að taka eina mínútu.)