Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
Virðulegi forseti. Fyrir nokkru var lagt fram í hv. Nd. frv. til l. um vörugjald. Í því frv. var lagt til að vörugjald, sem verið hefur 14%, á sælgæti, gosdrykkjum og ýmsum öðrum sykurvörum yrði hækkað í 25%. Í öðru lagi var lagt til að vörugjald, sem verið hefur 14%, á byggingarvörum og ýmsum heimilistækjum yrði hækkað í 20% og síðan yrði 10% vörugjald á nokkrum öðrum vöruflokkum.
Í umræðum sem fram hafa farið í hv. Nd. kom m.a. fram það sjónarmið að í fyrsta lagi væri um of hátt gjald að ræða á heimilistækjum, í öðru lagi var af ýmsum talið að þær byggingarvörur sem þarna voru sérstaklega tilgreindar og áttu að vera í 20% vörugjaldsflokki væru þess eðlis að slíkt gæti verið óeðlilegt og í þriðja lagi var sett fram það sjónarmið að ef vörugjald yrði tekið upp með þeim hætti sem þar var lagt til væri eðlilegra að vera með lægri tölu á mun breiðari stofn til að draga úr hættunni á því að atvinnugreinum væri mismunað.
Eftir ítarlegar umræður var ákveðið að leggja til breytingar á þessu frv. á þann veg að eitt vörugjald, 10%, væri tekið upp á alla þá flokka sem lagt er til að vörugjald gildi um og breikka stofninn þar með, en taka til viðbótar upp sérstakt 15% gjald á sætindi, sykurvörur ýmiss konar og gosdrykki. Ég greindi frá því við 1. umr. í hv. Nd. að víða um lönd hafa verið gerðar tilraunir til þess á undanförnum árum að skattleggja sérstaklega sykurvörur af ýmsu tagi. Ástæðan fyrir því er að rannsóknir hafa sýnt að sykurvörur eru orsök margvíslegrar óhollustu og sjúkdóma og neysla þeirra reynist mjög dýru verði keypt fyrir samfélagið vegna heilsugæslu- og hjúkrunarkostnaðar af margvíslegu tagi. Í Danmörku t.d. er lagður á sérstakur sykurskattur sem fer eftir sykurinnihaldi í vörum.
Eftir athugun ýmissa sérfræðinga hér á landi var talið óframkvæmanlegt að velja hliðstæðan sykurskatt og í Danmörku, en þess í stað var ákveðið að fara þá leið að velja úr algengustu sykurneysluvörur almennings, þá kannski sérstaklega unglinga og yngra fólks, til þess að reyna með markvissum hætti að draga að einhverju leyti úr neyslu þessara vara.
Sú ástæða sem að meginhluta liggur að baki þess frv. sem hér er lagt fram er engu að síður sú að við þær erfiðu aðstæður sem eru í okkar ríkisfjármálum er óhjákvæmilegt ef ekki á að reka ríkissjóð áfram með verulegum halla og stuðla þannig að ójafnvægi í efnahagsmálum að efna til þeirrar tekjuöflunar sem hér er gerð tillaga um.
Ég tel við þær aðstæður sem eru í þinginu ekki ástæðu til að fjölyrða mikið meira um þetta frv. Ég vil þó í örfáum orðum víkja að því að utan þings og að nokkru leyti innan hefur komið fram sú gagnrýni að með þessu frv. sé verið að veikja stöðu innlends iðnaðar. Ég vil þó vekja athygli í þessu sambandi á tveimur staðreyndum. Í fyrsta lagi leggst vörugjaldið jafnt á innfluttar og innlendar vörur, en þó þannig að sá stofn vegna tollgjalda sem gildir varðandi erlendu vörurnar er hærri þannig að vörugjaldið hefur í för
með sér að hlutfallslega hækka meira innfluttu vörurnar en hinar innlendu.
Í öðru lagi er rétt að vekja athygli á því að aðföng til innlends iðnaðar sem vörugjald er lagt á eru meðhöndluð með þeim hætti að það vörugjald er endurgreitt og hefur verið um langan tíma. Þessir tveir þættir hafa ekki mjög komið fram í umræðunni, en nauðsynlegt er að nefna þá til upplýsingar.
Ég vil svo mælast til þess við hv. fjh.- og viðskn. að hún taki þetta mál til meðferðar að lokinni 1. umr. í deildinni og vil lýsa því einnig að til samræmis við þau sjónarmið sem fram komu í hv. Nd. erum við reiðubúnir að endurskoða þessa gjaldtöku á næsta ári m.a. og skoða þá hvort þau sjónarmið sem fram hafa verið sett, kannski sérstaklega utan þings, varðandi hugsanleg neikvæð áhrif á innlenda framleiðslu hafa við rök að styðjast eða ekki. Þeir sérfræðingar sem við höfum leitað til hafa komist að þeirri niðurstöðu að ef eitthvað er ívilni vörugjald af þessu tagi frekar innlendu framleiðslunni en hinni erlendu ef verið er að bera saman innflutning vöru og sölu framleiddrar vöru hér í landinu.