Birgir Ísl. Gunnarsson:
Herra forseti. Eins og fram kemur í nál. meiri hl. á þskj. 350 hef ég og hv. 3. þm. Reykv. skrifað undir nál. með fyrirvara og tökum fram að við styðjum ekki frv. Ástæðan fyrir því að við ritum undir nál. á þennan hátt er sú að við unum þessari málsmeðferð en munum hins vegar sitja hjá við afgreiðslu þeirrar brtt. og frv. í heild sem nefndin flytur.
Ég ætla ekki að fjölyrða um þetta hér en frv. sem liggur fyrir hv. deild felur í sér tvö meginatriði, annars vegar að fresta gildistöku fjármálakafla framhaldsskólalaganna og hins vegar að fresta gildistöku þeirra ákvæða laganna sem fjalla um skólanefndir. Það gefur auga leið að það liggur á að fá úrslit um hvort fresta eigi gildistöku fjármálakaflans eða ekki nú fyrir afgreiðslu fjárlaga. Það mál tengist beint fjárlagaafgreiðslunni og því erum við reiðubúin að ljá okkar lið til þess að það mál fái hér greiðan gang í gegnum hv. deild. Um hitt atriðið þarf síðan að fjalla eftir áramótin.
Það má að sjálfsögðu segja margt um þetta mál efnislega. Það er auðvitað slæmt að sveitarfélögin skuli ekki geta treyst því að löggjöf af þessu tagi sem samþykkt er á Alþingi haldi þegar til á að taka. Ég efast ekkert um að ýmis sveitarfélög hafi við fjárhagsáætlanir sínar gert ráð fyrir að þessi lög yrðu í gildi og því reiknað með því í sínum áætlunum. Hins vegar er það ljóst að þetta hefði í för með sér verulegan útgjaldaauka fyrir ríkissjóð, eða um 200 millj. kr. sem ríkissjóður tekur þá á sig einkum í rekstri framhaldsskólanna. Það er því skiljanlegt að hæstv. ríkisstjórn skuli grípa til þess að fresta þessum kafla laganna nú þegar að þrengir.
Ég ætla ekki að fjölyrða um þetta frekar en eins og ég sagði munum við sitja hjá við endanlega afgreiðslu málsins.