Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1988
Miðvikudaginn 21. desember 1988

     Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson):
    Herra forseti. Efri deild hefur fjallað um frv. til laga um breyt. á lögum nr. 10/1988, um ráðstafanir í ríkisfjármálum og lánsfjármálum á árinu 1988. Þetta mál hafði hlotið umfjöllun í hv. Nd. en Ed. gerði á því eina breytingu, þ.e. við c-lið 1. gr. bætist nýr málsliður svohljóðandi:
    ,,Sama á við um stofnlán til fyrirtækja sem hyggjast stunda endurvinnslu úrgangsefna til útflutnings eða sinna öðrum verkefnum á sviði umhverfisverndar``, þ.e. undanþiggja þau fyrirtæki þessu lántökugjaldi. Meiri hl. fjh.- og viðskn. hefur athugað þetta mál og leggur til að fallist verði á þessa breytingu sem hv. Ed. gerði á frv.