Jólakveðjur í Sþ.
Fimmtudaginn 22. desember 1988

     Ólafur G. Einarsson:
    Í nafni okkar alþm. þakka ég hæstv. forseta góð orð og hlýjar óskir í okkar garð og fjölskyldna okkar. Ég þakka hæstv. forseta góða og röggsama fundarstjórn á þessu þingi. Ég óska forseta og fjölskyldu hennar gleðilegra jóla og vonast til að við hittum hana hressa á nýju ári. Ég bið hv. alþm. að taka undir þessar óskir mínar með því að rísa úr sætum. -- [Þingmenn risu úr sætum.]