Tollalög
Fimmtudaginn 22. desember 1988

     Eiður Guðnason:
    Herra forseti. Hér er um að ræða frv. til breytinga á tollalögum, framlengingu á heimild að því er varðar grænmeti. Málið var upphaflega flutt af sex af sjö nefndarmönnum í hv. fjh.- og viðskn. Nd. Þetta mál var lítillega kynnt og rætt stuttlega á fundi fjh.- og viðskn. í morgun með óformlegum hætti og ég legg til að málið verði samþykkt án þess að ég geti talað formlega í umboði nefndarinnar.