Skattskylda innlánsstofnana
Fimmtudaginn 22. desember 1988

     Eyjólfur Konráð Jónsson:
    Herra forseti. Að því tilefni sem hæstv. sjútvrh. gaf áðan get ég lýst því skýrt og skorinort yfir að mér kemur nákvæmlega ekkert við hvaða ríkisstjórnir hafa skoðað þetta mál og hvaða embættismenn hafa lagt það á borð ríkisstjórna að undanförnu, ríkisstjórna sem hæstv. ráðherra hefur alltaf setið í, og ég ætla hvorki að verja að þeir hafi skoðað þetta frá embættismönnunum þá né heldur t.d. skattlagninguna á sl. hausti. Þessi er miklu gífurlegri og stóralvarlegri en þá af því að það var þó ekki komið jafnhátt í skattprósentu og skattaálögum í heild og verður nú á eftir.
    En ég ætla að greiða hér fyrir því að þetta mál gangi nógu fljótt fyrir sig og finnst algjörlega ástæðulaust að vera nokkurn skapaðan hlut að blanda inn í þetta mál hvar og hvenær þetta frv. hefur verið til skoðunar. Þau eru nákvæmlega jafnvitlaus þessi frv. sem ofstjórnarkarlar og kerfiskarlar eru stanslaust að mata ráðherrana á hvert sem ráðherraborðið er hverju sinni. Og ef það er einhver flokkur sem ber ábyrgð á skattpíningu undanfarinna ára er það Framsfl.