Vörugjald
Fimmtudaginn 22. desember 1988

     Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Eiður Guðnason):
    Herra forseti. Á þskj. 364 er að finna nál. frá meiri hl. fjh.- og viðskn. um frv. til l. um breytingu á lögum um vörugjald. Til fundar við nefndina þegar hún fjallaði um þetta mál komu Ólafur Davíðsson, framkvæmdastjóri Félags ísl. iðnrekenda, Víglundur Þorsteinsson, formaður Félags ísl. iðnrekenda, Sigurður B. Stefánsson hagfræðingur, Garðar Valdimarsson ríkisskattstjóri og frá fjármálaráðuneytinu Bolli Þór Bollason, Lárus Ögmundsson, Maríanna Jónasdóttir og Guðrún Ásta Sigurðardóttir.
    Þetta frv. hefur tekið miklum breytingum frá því að það fyrst var lagt fram í Nd. Breytingin er í því fólgin að gjaldprósentan hefur verið lækkuð niður í 9% þannig að hér er aðeins um eina prósentu að ræða með þeirri undantekningu sem ég mun nefna á eftir en gjaldstofninn er hins vegar breikkaður. Þetta hefur það í för með sér að þetta vörugjald leggst nú á ýmsa vöruflokka sem það lagðist ekki áður á. Hins vegar hefur þetta líka í för með sér að vörugjald á ýmsum munum, svo sem ýmsum heimilistækjum, lækkar frá því sem áður var. Við þetta er því að bæta að sérstakt 16% gjald er lagt á sykur og sælgæti og fengu nefndarmenn ítarlegar útskýringar nú í morgun á framkvæmd þess á því ákvæðis. Það sem ræður þessari skattlagningu á sykur og sykurneyslu, sælgæti, eru kannski fyrst og fremst manneldissjónarmið. Ég get tekið undir að það væri kannski ástæða til að skattleggja og undanþiggja ekki ýmislegt annað sem sykur er í eins og t.d. kökur sem þetta kemur ekki á.
    Auðvitað eru skiptar skoðanir um gjaldtöku af þessu tagi. Þetta er einn af meginliðunum í tekjuöflunaráformum ríkisstjórnarinnar og forsenda fyrir fjárlagagerðinni og enda þótt mönnum sé misjafnlega ljúft að samþykkja þessa gjaldheimtu leggur meiri hl. nefndarinnar til að frv. verði samþykkt óbreytt eins og það kom frá hv. Nd.
    Undir þetta nál. rita, auk þess er þetta mælir, Margrét Frímannsdóttir, Valgerður Sverrisdóttir og Jóhann Einvarðsson.