Halldór Blöndal:
Herra forseti. Með þessu frv. er vörugjaldinu breytt í grundvallaratriðum og skattstofninn breyttur mjög verulega, sérstaklega þó þannig að vörugjaldið leggst með miklu meiri þunga á innlenda framleiðslu en áður hefur verið. Það sést best á því að við núverandi kerfi eru 40 gjaldendur á vörugjaldi af innlendri framleiðslu, en verða eftir frv. a.m.k. 400 og eru þá ekki taldir allir þeir fjölmörgu trésmiðir og þau fjölmörgu trésmíðaverkstæði sem verða vörugjaldsskyld samkvæmt frv. Ég veit að hæstv. menntmrh. hefur sérstaklega borið fyrir brjósti að halda gjaldendum sem fæstum, sérstaklega þegar talað hefur verið um virðisaukaskatt. Nú eru þeir búnir að ákveða að fresta gildistöku virðisaukaskattsins, en við fáum þá í staðinn margföldunina á framteljendum og gjaldskyldum einstaklingum eða fyrirtækjum í gegnum vörugjaldið.
Um leið og gjaldstofninn er þannig breikkaður nær hann að sjálfsögðu til fjölmargra vörutegunda sem áður voru undanskildar og skal ég nú gera nokkra grein fyrir því.
Í fyrsta lagi er því haldið fram að það sé lagt á sérstakt 16% vörugjald vegna óhollustu þeirra vörutegunda sem um ræðir og er þá sérstaklega talað um sykur. Undir þessa skilgreiningu fellur hreinn ávaxtasafi samkvæmt frv., hreinn ávaxtasafi sem er talinn einhver hollusturíkasta fæða sem til er. Ekki opnar maður svo heilsufræðibækling þar sem maður er áminntur um að borða ekki feitt lambakjöt að um leið sé ekki tekið fram að maður eigi að drekka eins mikinn ávaxtasafa og maður getur torgað. Það er auðséð að ríkið ætlar að hafa af því góðan tekjustofn.
Það er jafnframt gert ráð fyrir því að á jógúrt og kakómjólk, svo að dæmi séu tekin, er lagður samkvæmt þessu frv. 25% hráefnisskattur sem kemur beint inn í verðlagið og er það til umhugsunar fyrir menn hvað lagt er til grundvallar um hollustuna og óhollustuna.
Í öðru lagi vil ég vekja athygli á því að lagt er til að af húsgögnum og innréttingum eigi að greiða 9% vörugjald. Og þá fer að vandast málið. Í fyrsta lagi liggur fyrir að í húsgagnaiðnaðinum og innréttingaiðnaðinum hefur orðið vart mikils atvinnuleysis og í mjög ítarlegri ályktun sem þessir aðilar hafa sent Alþingi er gerð nánari grein fyrir því í einstökum atriðum hversu illa þetta vörugjald kemur til með að leika húsgagnasmiði og trésmiði almennt og eru þá látnar í ljós miklar áhyggjur yfir þeim afleiðingum sem þetta mun hafa fyrir þessa framleiðslu og enginn vafi á að það mun leiða til þess að staða hinna erlendu samkeppnisaðila mun styrkjast mjög mikið.
En það er kannski ekki kjarni málsins heldur hitt, hvernig á að skilgreina t.d. innréttingar. Ég spurði ríkisskattstjóra að því í morgun hvort það væri vörugjaldsskylt nú ef verið væri að reisa hús og fataskápar væru innbyggðir í húsið eða bókahillur væru innbyggðar í húsið. Hann sagði að slík smíði væri söluskattsskyld. Hann viðurkenndi að vísu að
miklum erfiðleikum gæti verið bundið að greina á milli hvað væri almenn húsasmíði og hvað væri innréttingasmíði undir slíkum kringumstæðum, en taldi þó að það væri vel framkvæmanlegt. Ég spurði hann að því: Hvað um það ef fjölskylda kallar á trésmið, biður trésmiðinn um að rífa niður gömlu skápana og byggja aðra í staðinn? Þá sagði hann að slík smíði væri vörugjaldsskyld. Við erum m.ö.o. búin að setja fjölda fjöldskyldna á landinu í þá klemmu að geta ekki gert sér grein fyrir því hvernig hún eigi að svara út skattinum til ríkisins vegna þess að reglurnar eru svo flóknar að ógerningur sé að skilgreina í stuttu máli.
Ef ég t.d., herra forseti, ætlaði mér að kaupa bókahillur og ég hefði þann háttinn á að fara í eitt verkstæði og biðja þá sem þar ynnu að saga fyrir mig fjalir í ákveðnar lengdir, þá er undir engum kringumstæðum hægt að segja að þessar fjalir séu bókaskápur þannig að ég slepp við vörugjaldið. Ef ég síðan kalla trésmið heim til mín og bið hann um að festa fjalirnar saman þannig að þær myndi bókaskáp, ég er ekki mjög laghentur maður og mundi kjósa að biðja einhvern annan að gera það fyrir mig, þá yrði ég að greiða vörugjald af þeirri vinnu. Ef ég á hinn bóginn mundi kaupa bókaskápinn í verslun félli vörugjaldið undir eins líka á hráefnið. Með þessum hætti er m.ö.o. verið að flækja svo málin fyrir bæði trésmiðum og einstaklingum að þeir að síðustu vita ekki sitt rjúkandi ráð og gera sér kannski ekki grein fyrir muninum á því að endurnýja gamla eldhúsinnréttingu eða smíða nýja, hvað eru viðgerðir og hvað endurbætur, hvað er nýsmíði. Allt þetta hringsnýst auðvitað í höfðinu á skattheimtumönnunum þegar þeir eru spurðir fyrir fram og ógerningur að átta sig á hvað fyrir löggjafanum vakir nema það eitt að fjölga gjaldendum sem mest, reyna að ná sem flestum krónum inn í ríkissjóð, finna til hvert skattatilefnið á fætur öðru í vonlausri baráttu sinni við að fylla upp í gatið á ríkissjóði sem er þegar orðið svo stórt og mikið að ógerningur er að ná því saman á nýjan leik.
Ég vil enn benda á að samkvæmt þessu frv. er undir vissum kringumstæðum lagt vörugjald á hráefni sem flutt er til landsins sem hinir innlendu framleiðendur verða að bera, en hins vegar sleppa innflytjendur við að greiða vörugjaldið
undir vissum kringumstæðum. Þar get ég tekið sem dæmi grautargerð hér á landi. Innfluttur ávaxtagrautur ber ekki vörugjald, en hins vegar verða innlendir grautargerðarmenn að greiða vörugjaldið 25% af hráefninu.
Ég skal ekki, vegna þess að við erum að reyna að flýta þessum umræðum, setja á þetta mikið lengri tölu. Aðalatriðið er að með þessari skattheimtu er verið að valda innlendum framleiðslufyrirtækjum margs konar óhagræði og fjárbindingu sem kostar mikið fé vegna þess að þeir verða að leggja út peninga sem þeir að vísu stundum fá endurgreidda en verða að bera allan fjármagnskostnað af og undir öðrum kringumstæðum er ekki um það að ræða að vörugjaldið fáist endurgreitt þó svo að enginn slíkur skattur falli á
erlendu framleiðsluna.
Ég spurði fulltrúa fjmrn. að því hvort ekki væri hægt að koma þessu í betra horf þannig að innlendu framleiðendurnir gætu sloppið við útgjöldin ef svo stæði á að þeir ættu ekki að bera vörugjald í endanlegu verði --- við getum tekið sem dæmi brauðgerðir sem verða að greiða vörugjald af sykri þegar hann er fluttur í landið en fá hann síðan endurgreiddan síðar. Ég spurði hvort ekki væri hægt að koma því svo fyrir að innlenda framleiðslan þyrfti aldrei að leggja peningana út. Þá var mér svarað að það væri út af fyrir sig ekki flókið mál, en það stæði þó á einu. Það stæði á því að fjmrn. hefði ekki efni á því að kaupa tölvu til þess að fylgjast með endurgreiðslunum og gera þannig framkvæmdina í senn fljótvirka og örugga.
Ég þarf svo ekki að hafa mikið fleiri orð um þetta. Ég tek undir það sem hv. 8. þm. Reykv. sagði. Með þessu vörugjaldi er verið að hverfa mörg ár aftur í tímann. Það er verið að gera skattheimtuna almennari og flóknari, það er verið að grafa undan fjölda fyrirtækja og það er verið með ég vil segja beinum hætti að vinna að því að atvinnuleysi breiðist út meðal þess fólks sem vinnur við húsgagnaiðnað, innréttingar og margvíslegan annan iðnað og síðast en ekki síst við byggingariðnaðinn. Það er kapítuli út af fyrir sig.
Við ræddum um það í gær, ég og hæstv. félmrh., hvaða erfiðleikar væru á að fjármagna húsnæðislánakerfið þannig að það gæti staðið við þær skuldbindingar sem til þess væru gerðar og búið er að leggja á það lögum samkvæmt. Hæstv. húsnæðisráðherra kvartaði undan því að fjmrh. væru ekki nógu örlátur við sig. Að öðrum kosti færist sér framkvæmdin betur úr hendi. Nú vil ég, herra forseti, mælast til þess, vegna þess að ég veit að forseti deildarinnar hefur mikil áhrif í ríkisstjórninni, hvort ekki sé hægt að ná samkomulagi um að vörugjaldið af byggingariðnaðinum renni þá í húsnæðiskerfið og komi þá húsbyggjendum til góða þeim megin frá. Það gæti kannski stytt biðröðina og þannig létt áhyggjum og armæðu af fólki og það fengi þá eitthvað til baka af skattinum. Ég geti ekki séð að fyrir þessu geti verið nein önnur réttlæting og ítreka þessa beiðni mína til forsetans, að hann beiti sér fyrir þessu, um leið og ég legg til að frv. verði fellt.