Danfríður Skarphéðinsdóttir:
Virðulegi forseti. Tíminn er stuttur, hann er allt of stuttur og það er mjög ámælisvert. Okkur hafa verið gefnar örfáar klukkustundir til að fjalla um þetta frv. til laga sem hérna liggur fyrir og tekur til margra og flókinna þátta. Það er mikill skaði og eins og ég sagði áðan ámælisvert hve tímaskortur háir okkur þingmönnum, að því er mér virðist alltaf á þessum tíma ársins.
Við kvennalistakonur ásamt hv. flokkssystkinum hæstv. fjmrh. gagnrýndum mjög vinnubrögð hér í fyrra en lendum svo í nákvæmlega því sama um þessi jól. Það vil ég gagnrýna alveg sérstaklega því að þau mál sem við erum að fjalla um hér og óvönduð vinnubrögð í kringum þau geta haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar sem koma fram í ýmsum vafaatriðum og beinlínis göllum í lögunum þegar þau hafa tekið gildi og þá hefst gjarnan umfangsmikil leiðréttingarvinna sem ætti að vera alveg óþörf ef betur væri unnið að málum. Þessum vinnubrögðum verður að breyta. Það hefur reyndar oft verið sagt hér úr þessum ræðustól, en ef vinna okkar hér á að vera marktæk verða þessi vinnubrögð að breytast.
Það er rétt u.þ.b. ár síðan að í gildi gengu róttækar breytingar á skattalögunum. Þær voru að mörgu leyti nokkuð vel undirbúnar af nefnd skipaðri fulltrúum allra þingmanna og allra þingflokka og aðilum vinnumarkaðarins. Í því frv. sem við höfum hér til umfjöllunar er lagt til að hætt verði að miða framreiknun persónuafsláttar og barnabóta við lánskjaravísitölu eins og lögin kveða á um en taka þess í stað upp skattvísitölu sem breytist árlega. Með því er horfið frá því markmiði að tengja skattbyrði einstaklinganna við verðlagsþróun, en samkvæmt núgildandi lögum minnkar skattbyrðin hlutfallslega ef samdráttur verður í launum. Auk þess er í frumvarpinu lögð til hækkun á tekjuskattshlutfalli einstaklinga, en sú breyting þýðir hærri álögur á fólk með meðaltekjur og lægri tekjur en ella yrði. Ég vil taka það sérstaklega fram og minna á að auðvitað eru konur í stórum hluta á því launabili sem þar um ræðir. Þetta ætlar ríkisstjórn jafnréttis og félagshyggju að leggja til um þessi áramót.
Eins og fram kom á brtt. sem fluttar voru í Nd. af fulltrúum Kvennalistans getum við ekki sætt okkur við þessar breytingar á útreikningi. Við fluttum í Nd. brtt. sem fela í sér að núgildandi lög verði óbreytt hvað varðar framreiknun persónuafsláttar og barnabóta og að skatthlutfall verði ekki hækkað. Við fulltrúar Kvennalistans hér í hv. Ed. sáum ekki ástæðu til að flytja þær tillögur aftur eftir að þær höfðu verið felldar í Nd. í gærkvöld.
Í máli hæstv. fjmrh. hér sl. nótt kom fram að hann teldi hina nýju skattvísitölu heppilegri því í henni fælist frekar sveigjanleiki til hækkunar á persónuafslætti og barnabótum en með því fyrirkomulagi sem nú gildir. Ég vil hins vegar benda hæstv. fjmrh. á að skattvísitalan gefur líka auðveldlega möguleika á að halda þessu hlutfalli niðri og jafnvel lækka það. En hvað getur launafólk ekki trúað þessari
hæstv. ríkisstjórn jafnréttis og félagshyggju til þess að gera núna með öllum þeim skattaálögum sem verið er að leggja til og það á tíma þegar í gildi er launafrysting? Það hefur því miður verið reynslan að frekar hneigjast stjórnvöld til að halda niðri eða lækka slík hlutföll. Ég vil geta þess líka að það verður erfiðara fyrir fólk að fylgjast með skattvísitölunni þegar stjórnvöld geta ráðskast með hana að eigin vild á þann hátt sem lagt er til.
Varðandi tekjuskatt einstaklinga vil ég minna á að í fyrra fluttum við kvennalistakonur tillögur í þinginu um að háar tekjur yrðu skattlagðar sérstaklega, bæði í tekjuskatti og útsvari. Ekki voru gerðar tillögur um það í Nd. nú, en við erum enn sömu skoðunar og munum vinna áfram að því máli. Við höfum einnig oft lýst þeirri skoðun okkar að skattleggja beri eignir umfram hófleg mörk. Við teljum að sú breyting sem gerð var í meðförum hv. fjh.- og viðskn. í Nd. sem fólst í hækkun viðmiðunarmarkanna hafi verið til bóta. Að öðru leyti teljum við tillögur um eignarskatt engan veginn grundvallaðar á nægilega miklum athugunum og þar kem ég aftur að þeim tíma sem okkur er ætlaður til að kynna okkur hin ýmsu mál á síðustu dögum þinghaldsins fyrir jólin.
Við getum verið sammála ýmsum þeim tillögum sem hér eru til afgreiðslu um skattlagningu fyrirtækja, en ég tel þó að þar beri ýmislegt að athuga og að þar skjóti nokkuð skökku við að ýmsu leyti og vil ég gera sérstakar athugasemdir við tvær greinar er varða skattlagningu á fyrirtækin.
Í fyrsta lagi varðandi 8. gr. þar sem lækkað er úr 30% í 15% það tillag sem fyrirtækjum er heimilað að greiða í fjárfestingarsjóð til að fresta skattagreiðslum. Þetta tillag var lækkað úr 40% í 30% um síðustu áramót og skyldi þá vera fyrsta skrefið til að lækka skatthlutfall fyrirtækja. Nú ber svo við að um leið og þetta er lækkað er skatthlutfall fyrirtækjanna hækkað og vil ég minna á að nú á dögunum vorum við líka að hækka sérstakan skatt á verslunar- og skrifstofuhúsnæði.
Ég nefni þetta hér og bendi á að í hringiðunni sem skapast í þessum önnum er hætta á að yfirsýnin glatist. Það er öllum ljóst að það eru mikil vandamál uppi núna í rekstri fyrirtækja á Íslandi. Ég minntist áðan í umræðum um
síðasta mál sem við fjölluðum um á þann söng, þann jólasálm sem hljómaði í moll í eyrum okkar í fyrra. Ég er ekki viss um að við þær breytingar sem hér er verið að leggja til hafi einu sinni náðst laglína.
Eins og ég gat um áðan sáum við ekki ástæðu til að tillögum okkar í Nd. felldum að flytja þær hér aftur og það eru, eins og ég gat reyndar líka um áðan, ýmsar greinar þessa frumvarps sem við gætum stutt, en við getum ekki stutt frumvarpið í heild sinni eins og það er fram sett hér.